Pressan - 18.02.1993, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. FEBRÚAR 1993
B f Ó
27
POPP VEITINGAHÚS
B A R I R
■n
C
Z
5?
vt
H
73
>
vt
m
Hljómsveitin Funkstrasse er búin
að vera hálfgerð feluhljómsveit síðan
hún var stofnuð síðasta sumar.
Hljómsveitin er funkdeild rokksveit-
arinnar HAM að viðbættri Möggu
Stínu úr Risaeðlunni. Annað kvöld,
föstudagskvöldið 19., treður sveitin
upp í fyrsta skipti á Tunglinu.
Funkstrasse hefur átt lög á safnplöt-
unum Bandalögum 5 og Sódómu-
Reykjavík og miðað við þau gleði-
verk ætti stuðið annað kvöld að
verða magnað. PRESSAN fékk Pró-
fessorinn (alias Óttarr Proppé),
söngvara Funkstrasse, tii að segja
undan og ofan af starfi sveitarinnar.
„Island er vagga funksins," segir
Prófessorinn, sem hefur stúderað
fúnkleifafræði. „Funkið er alheims-
gleðiafl sem sendi Papana til íslands
til að frjóvga jörðina af fúnki. Áhrif
Papanna eru margvísleg, þau bárust
t.d. með Tyrkja-Guddu til Affíku og
þaðan til Ámeríku með þrælunum.
Nú hefúr fúnkið náð þeim þroska að
breiðast út um heimsbyggðina.
Hlutverk mitt, og okkar í Funk-
strasse, er að endurvekja þessa fomu
hefð á íslandi. Þetta hyggjumst við
gera með því að framleiða fúnk og
einnig er ætlunin að fjármagna kaup
á flugvélinni TF-STUÐ, sem notuð
verður til að ná í partíguðinn. Hann
mun síðan skipa öllum í gott stuð.“
(junnar Hjálmarsson
Það er mun meiri klassiyfir
þeim veitingastöðum sem
Humphrey Bogart sótti í
kvikmyndinni Casablanca
en skemmtistaðnum
Casablanca, en hver veit
nema útlit hans eigi eftir að
teljast til sígildrar hönnunar
eftir 45 ár.
Casablanca
SO ára en
Casablanca
Sára
Það er einstök tilviljun að kvikmyndin Casa-
blanca og skemmtistaðurinn Casablanca eiga af-
mæli um sömu mundir. Hin ódauðlega kvikmynd
Casablanca á fimmtugsafmæli á árinu en hefur
aldrei verið vinsælli, enda í hópi bestu mynda sem
gerðar hafa verið. Humphrey Bogart og Ingrid
Bergman fóru með aðalhlutverkin og myndin fékk
þrjá Óskara; fyrir myndatöku, leikstjórn og leik-
mynd.
Skemmtistaðurinn Casablanca á reyndar aðeins
fimm ára afmæli en hefur þó gengið í gegnum ýmis-
legt. Að sögn Árna Geirs Arinbjarnarsonar, eins af
sex skemmtistjórum staðarins, hefúr Casablanca þó
aldrei verið betri.
Af þessu tilefni ætla Casablanca (þ.e. skemmti-
staðurinn) og Sambíóin að taka höndum saman.
Sambíóin ætla að sýna myndina og geta þeir sem
fara á hana á föstudagskvöld nýtt miða sína inn í
Casablanca, þar sem Órnar í Hárclass klippir alla
lúðana, Jói Bachmann rokkar og flugeldasýning
verður á miðnætti, ef leyfi fæst.
BARIR
• Eitt er það einkenni íslenskra bara sem menn
verða ekki varir við svona dags daglega, enda ein-
kennið ósýnilegt í eðli sínu. Það er ekki nema
þegar einhvers staðar er brugðið út af vananum
sem drykkjusvolar borgarinnar uppgötva hvers
þeir hafa faríð á mis. Drykkjumaður PRESSUNNAR
er á því að það sé þessi leiðindavanafesta sem er
að fara með langfiesta bari landsins. Gera má ráð
fyrir að þorri gestanna fari út til að gera sér daga-
mun, en hvers vegna gera barirnir sér ekki oftar
dagamun?
Með orðasambandinu „að gera sér dagamun" er
ekki átt við þessi elstu og ömurlegustu tríx ís-
lenskra öldurhúsaeigenda þar sem reynt er að
trekkja inn karipening með því að halda tískusýn-
ingu á kvennærfötum, eða leyfa skrílnum að kyrja
með einhverjum trúbadornum eða (Gud bevare
os) tæknin er látin hefja innreið sína í gervi kara-
oke-apparats. Það er ekki þetta sem þyrstir ís-
lendingar þurfa á að halda til að létta lund sína á
þessum síðustu og verstu.
En hvað er þá til ráða? Til að mynda vildi drykkju-
maður PRESSUNNAR sjá fleiri taka upp „happy
hourí'-kerfið þar sem boðið er upp á áfengi á hálf-
virði árla kvölds. Þetta hafa reyndar ýmsir vertar
reynt en með misjöfnum árangri því landinn virð-
ist ekki hafa tekið við sér sem skyldi. (Sem er stór-
furðulegt því yfirleitt hafa fslendingar kunnað að
meta áfengi á hálfvirði, sbr. ráðherrabrennivín-
ið.)
Og hvar eru grínistarnir? Steinn Ármann (leikari)
treður upp sem „stand-up-comedian" en þá er
það iíka upp talið. Miðað við hvað fslendingum
finnst þeir sjálfir yfirleitt fyndnir og skemmtilegir
er með ólíkindum að þessi ágæta listgrein, að
standa og segja sögur, skuli ekki hafa náð hér fót-
festu. Eins og sumir geta rifið af sér brandarana
þegar þeir sitja við borð með glasið í heljargreip-
um.
Drykkjumaður PRESSUNNAR varð þess heiðurs að-
njótandi fyrír skömmu að vera boðið á tveggja
ára afmæli Bíóbarsins, þar sem drykkjumannaað-
all Reykjavíkur var saman kominn, barþjónarnir í
kjól og hvítu og ókeypis áfengi; sumsé sollurinn
eins og hann gerist bestur. Gamall siður, sem þvi
miður hefur legið allt of lengi niðrí, var endur-
reistur með þvi að hafa sígarettur á boðstólum
um getvallan staðinn. Hið eina sem að mátti
finna var hörgull á eldspýtum við sigarettuglösin.
Til að rífa stemmninguna frekar upp komu KK,
Kommi og Þorleifur og héldu uppi akústísku
djammi, en i kjölfarið sigldi Blái hatturinn.
Sannast sagna var skemmtunin þvílík að drykkju-
maður PRESSUNNAR hefði verið reiðubúinn að
kaupa sig inn. Nú veit hann reyndar ekki hvað
áfengisgjöfin hefur kostað Bíóbarínn, en með til-
liti til þess að hætt var að splæsa klukkan tíu og
barinn opnaður fyrir hefðbundnum viðskiptum
kæmi honum ekki á óvart þótt halast hefði inn
fyrir veigunum. (ofanálag gladdi barínn fasta-
kúnna, sem munu vafalaust sýna barnum enn
frekari tryggð í framtiðinni.
Það sem mestu máli skipti var þó sú stemmning
sem þama skapaðist og eralltof sjaldgæf á ís-
lenskum börum. Og í sjálfu sér er engin sérstök
von til þess að þetta batni almennt og yfirleitt
þótt til séu kærkomnar undantekningar. Helsta
von drykkjumannsins er sú að með tilkomu EES
streymi hingað ftalir og Spánverjar og sýni land-
anum hvernig reka á veitingastaði, kaffihús og
barí. Þá hefur ión Baldvin einhverju áorkað sem
máli skiptir.
Jane March, táningsstúlkan
sem leikur aðalhlutverkið
í Elskhuganum, hefur
neitað þeim sögu-
sögnum að ástadífs-
senurnar í
myndinni séu
Ekkert eftir handa
ímyndunaraflinu
Eftir fáeina daga verður
ein umtalaðasta og djarf-
asta kvikmynd síðasta árs
Elskhuginn frumsýnd.
Myndin er byggð á sam-
nefndri metsölubók eftir
Margaret Dumas og segir
frá evrópskri unglings-
stúlku sem verður ást-
kona vel efrtaðs Kínverja á
nýlendutímanum. Brími
þeirra er forboðinn af
mörgum ástæðum en þau
láta allt tiltal sem vind um
eyru þjóta.
Fjölmiðlar veittu
myndinni mikla athygli
þegar hún var sýnd ytra.
Höíðu gagnrýnendur
meðal annars orð á því í
greinum sínum að svo
langt væri gengið í kyn-
lífssenunum að ímyndun-
araflið hefði þar fáu við að
bæta og Sharon Stone
væri eins og Mjallhvít 1
samanburði við hina ní-
tján ára gömlu aðalleik-
konu myndarinnar, Jane
March. March sjálf hefúr
hins vegar andmælt öllum
sögusögnum um að hún
og mótleikari hennar,
Tony Leung, hafi átt mök
fyrir framan kvikmynda-
vélarnar og segir það firru
að gengið hafi verið al!a
leið.
Hvað sem því líður eru
flestir á einu máli um að
leikstjóranum, Jean
Jacques Annaud (Leitin
að eldinum, Björninn,
Nafn rósarinnar), hafi
tekist vel upp við gerð
mjög erótískrar en jafn-
framt fallegrar myndar
sem segir einfalda, heita
sögu.
Umsátrið Under Siege-k-trk
Töffaramynd. Eins konar
þjófnaður á Die Hard. Þrátt
fyrir að Steven Seagal eigi all-
an heiður skilinn stelur
Tommy Lee Jones senunni
(það gera vondu mennirnir
reyndar oftast í svona mynd-
um).
Háskaleg kynni Consenting
Adults kk Þrátt fyrir undir-
förult samsæri vantar allan
neista í myndina.
Lífvörðurinn The Bodyguard
★
Aleinn heima 2 - Týndur í
New York Home Alone 2 -
Lost in New York kkkk
3 ninjar ★
Fríða og dýrið The Beauty
and the Beast kkk
Umsátrið Under Siege •kirk
Betra framhald af Die hard en
Die Harder.
Háskaleg kynni Consenting
Adults ★★ Vondur maður
rústar lífi ótrúlega venjulegs
fólks.
Farþegi 57 Passenger 57 kk
3 ninjar★
Systragervi SisterAct kk
Eilífðardrykkurinn Death
Becomes Her irk
Aleinn heima 2 - Týndur í
New York Home Aione 2 -
Lost in New York kkkk
HASKOLABIO
Laumuspil Sneakers kk
Hæg f gang og heldur
ómerkileg þegar upp er stað-
ið. En Redford og öllum hans
ólíkindatólum tekst að láta
áhorfandann gleyma sér eftir
hlé.
Baðdagurinn mikli ★★
Forboðin spor Strictly
Ballroom kkk
Karlakórinn Hekla ★
Geðklofinn Raising Cain ®
Brian de Palma er sjálfsagt of-
metnasti leikstjóri Hollywood.
Hér er hann hrár, óblandaður
og óþolandi, nema fyrir þá
sem finnst gaman að hnippa
í sessunautinn, benda á tjald-
ið og segja með gáfulegu
röddinni: Þetta er frá
Hitchcock.
Rauði þráðurinn Tracesof
Red ★★ Þokkalegur þriller
fyrir þá sem vilja horfa á fleiri
en einn á viku. Nemo litli
★ ★★
Eilífðardrykkurinn Death
BecomesHerkk
REGNBOGINN
Síðasti móhíkaninn The
Last of the Mohicans kkk
Ævintýramynd fyrir fullorðna.
Svikráð Reservoir Dogs
kkk (raun er þessi mynd
bölvað ógeð, en frábær día-
lógur og ágætur leikur gera
hana að sérstæðri upplifun.
Rithöfundur á ystu nöf
NakedLunch kkk Burro-
ughs og Cronenberg eru góð
blanda fyrir þá sem hafa út-
hald í yfirgengilegri raunir en
hjá þeim Sjón og félögum.
Miðjarðarhafið Mediterr-
aneo kkk
Lcikmaðurinn The Player
kkkk
Tommi og Jenni ★★★
Sódóma Reykjavík ★★★
Prinsessan og durtarnir
★★★
STJÖRNUBIÓ
Hjónabandssæla Husbands
and Wives kkkk Woody
Allen upp á sitt besta — eða
að minnsta kosti næstbesta.
New York-útgáfa af Bergman;
laus við leiðindin og snilldar-
broddinn.
Þrumuhjarta Tliunderheart
kk
Heiðursmenn A Few Good
Men kkk
Meðleigjandi óskast Single
White Femalc kkk
Á lausu Singles kkk Hjart-
næm unglingasaga. Þorgrím-
ur Þráinsson töluvert glöggari
og miklu fyndnari.
Lífvörðurinn The Bodyguard
k
Fríða og dýrið The Bcauty
and the Beast kkk
Jólasaga Prúðuleikaranna
The Muppet Christmas Carol
kkk