Pressan - 18.02.1993, Síða 31

Pressan - 18.02.1993, Síða 31
Undarleg græn slikja við ijárhús í Vestur-Landeyjum TEL ÞETTA VERA ÚRGANG ÚR FLJÚGANDI - segir bóndinn á bænum, Lár- Vestur-Landeyjum, 18.febrúar. „Ef þetta væri af mannavöldum gæti ég snúið mér að einhvetjum, annaðhvort einstaklingi eða fyrirtæki, og kært. En þar sem ég tel að þetta sé úr- gangur úr fljúgandi furðuhlut er ég algjörlega varnarlaus,11 segir Lárus Daníelsson, bóndi á Hömrum í Vestur-Landeyjum, en hann telur að verur ffá öðrum hnöttum noti slakka við fjárhús- in við bæinn sem losunarstað fyrir úrgang. Lárus segist fyrst hafa orðið var við þennan úrgang í haust. „Þetta er ólíkt öllu sem ég hef séð. Það er yfir þessu græn slikja og lyktin er ekki góð,“ segir Lárus. Lárus segist hafa óskað eftir styrk frá umhverfisráðu- neytinu til að fjarlægja úrganginn en fengið neikvætt svar. „Mér finnst þetta ekki mitt einkamál. Það getur hver sem er lent í þessu. En ráðuneytið sagði að þetta mál væri fyrir utan valdsvið sitt,“ segir Lárus. Lárus Daníelsson segist fyrst hafa orðið var við þessa grænu slikju eftir mikinn Ijósagang um nótt í haust. Síðan hefur það ekki brugðist að þegar hann vaknar við Ijósaganginn hefur bæst á slikj- una morguninn eftir. Karen og Unnar eiga dótturina Helenu, sem þau ættleiddu, og son- inn Bárð, sem er glasabarn. Giftust fyrir 15 árum HAFA ALDREI HAFT KYNMÖK „Við höfum horft upp á mörg hjónabönd fara í vaskinn vegna kynlífsins," segja hjónin Karen Vigfusdóttir og Unnar Finnsson, sem lifa í hamingjusömu hjónabandi. Kópavogi, 18.febrúar. „Þetta þykir kannski merki- legt nú á síðustu tímum þegar kynh'f er orðið svo áberandi að maður getur ekki farið út í sjoppu án þess að rekast á dónaskapinn upp um alla veggi,“ segir Unnar Finnssori, en hann hefur aldrei haft kyn- mök við eiginkonu sína, Kar- enu Vigfúsdóttur, þótt þau hafi verið gifit í 15 ár. „Foreldr- ar mínir höfðu einnig þennan háttinn á. Ég er tökubarn,“ segir Unnar. Unnar og Karen kynntust í hér- aðsskólanum á Laugarvatni. Þau segjast hafa kysst eitthvað þar á böllum en séu einnig hætt því að mestu. „Við hötðum ekki heldur trú á kynlífi fyrir hjónaband svo það varð aldrei meira úr þessu hjá okkur en þessir kossar.“ Þrátt fyrir kynlífsbindindi sitt hafa þau Unnar og Karen alið upp tvö börn. Eldra barnið ættleiddu þau en það yngra er glasabarn. „Við munum ekki reyna að hafa áhrif á hvort börnin okkar leggjast í kynlíf eða ekki, en það mundi óneitanlega hryggja okk- ur,“ segir Karen. Jóhann Bergþórsson hjá Hagvirki (nú Fórnarlambinu) VILL FÁ AÐ HEITA PÍSLAR- VOTTUR BERGÞÓRSSON „Ég er hræddur um að það kunni að reynast erfitt að verða við þessum óskum þar sem þetta nafn er ekki í nýju nafnabókinni," segir Ólafur Skúlason biskup. Lögreglan gerir húsleit hjá Nýaldarsamtökunum LAGÐIHALDÁ BYSSUR MEÐ TRÉ- KÚLUM OG BANN- AÐISÖLU Á ÞEIM Byssurnar eru aðeins vörn gegn vampírum, - segir Krist- ján Nikulásson, formaður samtakanna. Hafnarfirði, 18. febrúar. „Ég óskaði eftir að fá að láta skíra mig upp á nýtt um leið og drengurinn minn fermist í vor en það eru einhverjar vöflur á Stéttarsamband bænda VILL ÁVAXTA NIÐUR- GREIÐSLURN- ARÁWALL STREET Með því að taka niður- greiðslurnar og fjárfesta með þeim í amerískum hlutabréfum gefur ís- lenskur landbúnaður af sér stórgróða, - segir Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsam- bandsins. prestinum með að láta það eft- ir mér,“ segir Jóhann Berg- þórsson, forstjóri Hagvirkis/- Kletts (áður Hagvirkis og að hluta til nú; Fómarlambsins). Samkvæmt heimildum GULU PRESSUNNAR leitaði sóknar- presturinn í Hafnarfirði til bisk- upsins yfir Islandi og bar undir hann hvort heimilt væri að skíra Jóhann nafninu sem hann hefur valið; Píslarvottur. Biskup mun hafa tekið afar dræmt í þessa beiðni. „Mér er svo sem sama hvað hann Jói heitir. En ég held að börnin hans mundu líða fyrir að vera Píslarvottsson eða Píslar- vottsdóttir," sagði Ólafur Skúla- son biskup í samtali við GULU PRESSUNA. Jóhann Bergþórsson; nú Píslar- vottur Bergþórsson. Reykjavlk, 18. febrúar. Lögreglan í Reykjavík lagði hald á átta byssur, hlaðnar með trékúlum, við húsleit á skrifstofum Nýaldarsamtak- anna í nótt. Aðspurður sagði Böðvar Bragason, lögreglu- stjóri í Reykjavík, að lögregl- unni hefði borist nafnlaus ábending um að vopnasala færi fram hjá samtökunum. „Þetta afhjúpar nú þekkingar- skortinn hjá lögreglunni," segir Kristján Nikulásson, formaður Nýaldarsamtakanna. „Byssurnar voru aðeins hlaðnar trékúlum, en eins og flestum er kunnugt er eina ráðið til að ráða niðurlögum vampíra að reka tréfleyg í hjarta þeirra. Byssur með trékúlum eru aðeins nútímaleg útgáfa gamla tréfleygsins." Kristján sagði fráleitt að ætla að þeir sem keyptu byssurnar not- uðu þær gegn fólki. „Ég bara spyr: Til hvers eru kúlumar þá úr tré?“ sagði Kristján. Kristján sagðist óttast að þessi aðgerð lögreglunnar ætti eftir að draga dilk á eftir sér þar sem tré- fleygurinn gamli væri mun erfið- ari í allri meðhöndlun en nýju byssumar. „Ég veit ekki hvernig lögreglan ætlast til að fólk verji sig,“ segir Kristján. „Næsta skref hlýtur að vera að taka af okkur saltstaukana svo við getum ekki haldið aftur- göngum í skefjum.“ Það er fráleitt að halda að við- skiptavinir okkar muni nota byssurnar á fólk. Ef það væri ætlunin væru þær ekki með tré- kúlum heldur blýi eins og aðrar byssur, - segir Kristján Nikulás- son hjá Nýaldarsamtökunum. Einar Guðfinns- son hf. tekinn til gjaldþrotaskipta LEIÐIR AF SÉR SPARN- AÐ í SNJÓ- MOKSTRI - segir Friðrik Sop- husson Qármálaráð- herra. „Á þessum bölmóðstím- um er rétt að líta á jákvæðu Jdiðarnar," sagði Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra þegar GULA PRESS- AN óskaði eftir viðbrögðum hans við gjaldþroti Einars Guðfinnssonar. „Ein af afleiðingum þess verður að nánast óþarft verður að moka Óshlíðina og við það munu sparast miklir ijármunir sem nota má í annað. Ég bjó einu sinni þarna fyrir vestan og veit því fullvel hversu snjó- þungt þar getur orðið,“ sagði Friðrik.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.