Pressan


Pressan - 04.03.1993, Qupperneq 2

Pressan - 04.03.1993, Qupperneq 2
FYRST & FREMST 2 PPESSAN Fimmtudagurinn 4. mars 1993 EFNISYFIRLIT 4 „Ég berst áfram fyrir hin börnin“ Segir Jóhanna Guðbrands- dóttir, sem missti son sinn úr krabbameini. 6 Valdabarátta i íslandsbanka Tíu menn berjast um sjö stjórnarsœti 7 Kaus Vöku tvisvar Framámaður í stúdentapóli- tíkinni í eldlínunni eftir að upp komst að hann greiddi ekki aðeins einu sinni atkvœði í kosningum til stúdentaráðs. Ætluðu að flytja inn kókaín en keyptu staðdeyfilyf með ótrúlega líku nafni 8-9 Hörður Sigurgestsson Risinn íEimskip 11 íslandsbanki hefur tapað 7 krónum af hverjum 10 sem hann fékk í hlutafé 12 Á Albýðuflokkurinn fylgis- hrunið skilið? 13 Hvers vegna eru þrír bankastjórar í Seðlabankanum? 14 Tíska 15 Nú á hárið að vera stutt Ástir og örlög dyravarðanna 16 Næturlífið í Reykjavík 18 Lögmenn eru leikarar örn Clausen skammar Stíga- mót og talar um lauslœti ís- lenskra kvenna 20-21 Hver kom njósnaranum Spiro fyrir kattarnef? Saga úr samtímanum um njóstii ogglœpi 22-23 Hvaða íslendingar eru ofmetnir? Þeirri áleitnu spurningu svarað 24-25 Af hverju taka skáldin ekki þátt í umræðunni? Guðrún Gísladóttir 26-27 Koma Bono og U2 tíl Hafnarfjarðar? Popp og Bíó 28-29 Sjónvarp og íþróttir 31 GULA PRESSAN Lítil eftirspurn eftir fréttamönnum UMMÆLI VIKUNNAR „Ég vilfrekar hlusta á góða tónlist en horfa á sjónvarpið, en égfer yfirleitt að sofa um ellefuleytið.“ ^■ SÆVAR KARL ÓLASON KAUPMAÐUR Skalla-Grímur hefði hins vegar kunnað við DV „Það er gott að Ari fróði er dauður og þarf ekki að lesa DV.“ SteingrímurJ. Sigfússon Hefði þjóðböninga- úQHho eHHi dugað? „Ég flutti til fslands vegna þess að íslensk stúlka, sem fór til náms í Noregi, vildi hafa minjagrip með sér heim.“ Jon Kjell sigurvegari. Vill hann ekki bara að skipstjórinn fari niður með bátnum? „Jón Baldvin er pottþétt- ur í brúnni.“ Guðmundur Oddsson Kópavogskrati. Athyglisgáfa „Sýslumaður og fjármálaráðherra eru bræður.“ Guðmundur Sophusson sýslumaður. Væri ekki líka sparnað- ur í að hafa bara einn stjórnarandstæðing? „Árlega væri hægt að spara um 20 milljónir með því að hafa einungis einn bankastjóra í Seðlabankanum.“ Ólafur Ragnar Grímsson stjórnarandstæðingur. SlGRÍÐUR DÚNA KRISTMUNDSDÓTTIR. Væntanleg hörð kosn- ipgabarátta til að koma henni ístjórnarnefnd UNESCO. ÁGÚST ElNARSSON.Bætir á sig rósum, nú síðast í stjórn Vimmavinafélagsins með öðrum frjálslyndum krötum. Sígríður Dúna x öðruvísi kosn- ingabaráttu í haust fer fram kjör í stjórn- arnefnd UNESCO, menningar- málastofnun Sameinuðu þjóð- anna, og eiga íslendingar nokkra von um fulltrúa þar í þetta sinn. Framboð verður væntanlega ekki tilkynnt íyrr en skömmu áður en frestur rennur út í apríl, en heimildir okkar herma að kandídat íslendinga verði Sigríður Dúna Krist- mundsdóttir. Hún er engan veginn örugg um kjörið, þar sem flogið hefur fyrir að Bretar og Bandaríkja- menn hugleiði aftur inngöngu í UNESCO og ættu væntanlega stjórnarmann vísan, en allt um það kostar töluverða kosninga- baráttu að tryggja henni kjör. Ef Sigríður Dúna hlýtur kjör fylgja því nokkurra vikna fundasetur á ári í París, en hún nyti væntan- lega aðstoðar nýs sendiherra í Frakklandi, hver svo sem það verður. Ágúst gerist frjálslyndur__________ í síðustu viku var kjörin ný stjórn Félags frjálslyndra jafnað- armanna, eins aðildarfélaga Al- þýðuflokksins, en uppistaðan í því eru gamlir Vimmavinir og aðrir ’68- kynslóðarkratar. Úr fyrri stjórn vék Guðmundur Einarsson, nú starfsmaður EFTA í Genf, en í stað hans tók sæti Ágúst Einarsson, hag- fræðiprófessor og formaður stjórnar Seðlabankans. Formað- ur félagsins er sem fyrr Margrét S. Björnsdóttir, endurmennt- unarstjóri og fyrrum allaballi. Barist um stjórnarsætin í Stöö 2 eign þeirra mjög mismunandi og enginn á einn og sér nægilega mikið til að vera öruggur með stjórnarsæti sitt. Tíminn hættur aö standa í staö Framkvæmdastjóri Tímans, Hrólfur Ölvisson, undirbýr nú róttækar breytingar á blaðinu. Heyrst hefur að hugmyndin sé meðal annars að breyta Tíman- um í fjórblöðung, líkt og Al- þýðublaðið er, að minnsta kosti til að byrja með. I tengslum við þær breytingar hefur blaða- manni og ljósmyndara blaðsins verið sagt upp störfum frá og með 1. júní næstkomandi. Þeir sem fengu reisupassann eru Atli Magnússon, gamalreyndur blaðamaður, fyrrum fféttastjóri og starfsmaður blaðsins til fjölda ára, og Ámi Bjamason, eini starfandi ljósmyndari Tím- ans. Já ráöherra... Árleg þingveisla var haldin á dögunum og kostaði skattgreið- endur ríflega eina milljón lö-óna. Sem fyrr voru kvennalistakonur fjarstaddar, enda ákváðu þær fyrir margt löngu að taka ekki þátt í veislum af þessu tagi. Það var ekki síst fyrir áeggjan Sig- ríðar Dúnu Kristmundsdótt- ur, þá þingkonu, að þessi stefna var teldn. Innan Kvennalistans heyrum við að það hafi valdið stallsystrum hennar undrun og vonbrigðum að hún hafi nú skipt um skoðun og mæti til þingveislna á kostnað skatt- greiðenda, reyndar í fýlgd Frið- riks Sophussonar fjármálaráð- herra. Búist er við hörðum átökum á aðalfundi fslenska útvarpsfé- lagsins sem haldinn verður 12. mars. Þar verður tekist á um eitt af þremur stjórnarsætum þeirra Jóhanns J. Ólafssonar stjórn- arformanns, Jóns Ólafssonar í Skífunni og Haraldar Haralds- sonar í Andra. Þeir þremenn- ingar (þrír/fjórðu „fjórmenn- ingaklíkunnar") eru nú í minni- hluta innan stjórnarinnar, sem skipuð er sjö mönnum, og ráða aðeins yfir um 200 af um 548 milljóna króna hlutafé stöðvar- innar. Meðal þeirra sem taldir eru styðja þremenningana eru Víðir Finnbogason í Teppa- landi, Guðjón Oddsson í Litn- um, Gunnar Ólafsson í Út- herja og Sigurður G. Guðjóns- son lögmaður. Styrkur meiri- hlutans, sem ræður yfir 350 milljóna króna hlutafé, er hins vegar orðinn slíkur að lfldegt er talið að einn þremenninganna verði að gefa eftir stjórnarsæti sitt. Ljóst er að Jóhann verður ekki áfram stjórnarformaður, en hver missir sæti sitt í stjórninni er ekki gott að segja. Þótt hluta- fjárstyrkur þeirra sé mjög áþekkur er persónuleg hlutaþár- JÓHANN J. ÓLAFSSQN. Sæti hans ístjórn Stöðvar 2 er eitt þriggja sem óvissa ríkir um. FRIÐRiK S0PHUSS0N. Fékk Sigríði Dúnu til að skipta um skoðun varðandi þingveislurnar. ÓLAFUR G. ElNARSSON. Ofsterkur íþingflokknum til að honum verði hnikað úr ráðherrastóli. JÓN SlGURÐSSON.Gefur enn ekki gert upp hug sinn um bankastjórastöðuna. ElÐUR GUÐNAS0N. Sá eini sem fer örugglega, fái hann sjálfur um ráðið og fáist sendiherrastaðan. ATLI MAGNÚSS0N. Fékk reisupassann vegna skipulagsbreytinga eftirmargra ára starfá Tímanum. Kratar bxöa eftir Jóni Stólahrókeringar í ríkisstjórn- inni eru í biðstöðu í báðum stjórnarflokkunum þessa dag- ana, þótt af ólíkum ástæðum sé. Innan úr Sjálfstæðisflokknum heyrum við að á þessu augna- bliki séu litlar líkur á að nokkrar breytingar verði á ráðherraskip- an flokksins; sá eini sem foryst- an teldi hugsanlega að ætti að víkja, Ólafur G. Einarsson, njóti stuðnings í þingflokknum til að sitja sem fastast, auk þess sem annað ráðherraefni úr Reykjanesi finnist ekki. í Al- þýðuflokknum er þess nú beðið að Jón Sigurðsson ákveði hvort og þá hvenær hann vill verða seðlabankastjóri, en heim- ildir herma að hann sé alls ekki búinn að gera það upp við sig. Þó þykir líklegt að hann leggi seint í að fara affur í ffamboð á Reykjanesi álverslaus. Óvissa ríkir einnig um fyrirætlanir Karls Steinars Guðnasonar, sem gæti í reynd valið á milli ráðherrastöðu og forstjórastóls í Tryggingastofhun, en lætur ekk- ert uppi enn sem komið er. Heimildum okkar ber hins veg- ar saman um að Eiður Guðna- son geti hugsað sér að láta af embætti og líti til sendiherra- embættis í því sambandi. Innan úr Alþýðuflokknum heyrum við að mörgum þyki orðið nóg um bitlingana sem „umbótaflokkur- inn“ hefur verið að dreifa til flokksmanna. • °S Ingimar og Sigrún til Genfar. Bogi vildi til Köben... Eru það meint lág laun eða er eitthvað meira að á fréttastofu Sjónvarps? Undanfarnar vikur hafa nefnilega að minnsta kosti þrír fféttamenn Sjónvarpsins sótt um stöður erlendis, án þess þó að hafa árangur sem erfiði. Við höfum áður skýrt ffá því að frétta- stjórinn, Bogi Ágústsson, sótti nýlega um stöðu upplýsingafull- trúa Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn og fór meðal annars þangað í viðtal af því tilefni. Lengi vel var rætt um að Bogi væri líklegur til að hreppa hnossið, en nú fféttir PRESSAN að Bogi ætli að sitja sem fastast og fara hvergi. Ekki af því að hann langi ekki, heldur af því að annar verði fyrir valinu. Reyndar er ekki búið að taka endanlega ákvörðun um ráðningu, en af þeim sem enn koma til greina þykir líklegast að annaðhvort Svíi eða Dani verði ráðinn. Sem var eitthvað svipað og gerðist með Ingimar Inginiarsson og Sigrúnu Stefáns- dóttur. Þau voru bæði á ferð í Genf í síðustu viku til að eiga viðtöl við evrópska embættis- menn. Bæði sóttu um stöðu upplýsingafull- trúa við væntanlega eftirlitsstofnun EFTA, sem verður til með EES- samningnum. Auk þeirra sótti um stöðuna samkvæmt upplýs- ingum okkar Sigríður Hrafnhildur Jóns- dóttir, deildarsérff æðingur á forsetaskrifstof- unni. Heimildir okkar ytra herma hins vegar að sáralitlar líkur séu á að íslendingur fái þetta starf — það verði umsækjandi af meg- inlandi Evrópu. Aukið Evrópusamstarf opnar nýja at- vinnumöguleika fyrir vel menntað fólk héð- an, en úr utanríkisráðuneytinu heyrum við að illa gangi yfirleitt að tryggja íslendingum störf í toppstöðum hjá alþjóðastofhunum, hverju svo sem það er um að kenna. Ríkisstarfs- mannalaunin verða því að duga eitthvað lengur.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.