Pressan


Pressan - 04.03.1993, Qupperneq 20

Pressan - 04.03.1993, Qupperneq 20
E RLE NT 2Q PRESSAN Fimmtudagurinn 4. mars 1993 Maður vikunnar Fidel Castro Á hraðri leið á sorphauga " Vondaufur og vinafár Hann er orðinn vinafár eftir rúmlega þrjátíu ára valdasetu á Kúbu. Hálfsjötugur situr Fidel Castro í pólitískri kreppu í hálf- gjaldþrota hagkerfi og finnur það helst tii lausnar að boða til þingkosninga. Að marxískum hætti náttúrlega, enda stendur ekki til að svíkja málstaðinn og láta undan ofsóknum yanqui- heimsveldisins í norðri. Hetju- legt, segja sumir. Sorglegt dóm- greindarleysi, muldra jafnvel vinir félaga Fidels. í viku hverri reyna hundruð • ímanna að flýja Kúbu yíir sundið til Miami. Flestir nota bátskeljar eða heimasmíðaða fleka, en æ fleiri úr hærri þrepum þjóðfé- lagsins, menntafólk, embættis- menn og hermenn, nota aðrar leiðir. Um áramótin yfirbuguðu flugstjóri og farþegar í innan- Jandsflugi aðstoðarflugmann- inn, rændu vélinni og flugu til Miami. Allir farþegarnir 53, að fimm undanskildum, sóttu um hæli sem pólitískir flóttamenn, þótt það hefði ekki verið ætlunin í upphafi ferðar. I’etta var efna- fólk á kúbverskan mælikvarða _pg var reyndar á leið á vinsælan 1 ferðamannastað í frí. Flestir flýja einfaldlega ömur- Iegt efnahagsástand. Sérfræðing- ar áætla að kúbverska hagkerfið hafi dregist saman um næstum helming eftir hrun austur-evr- ópsku kommúnistaríkjanna árið 1989, þegar Sovétblokkin hætti ''Svo til allri aðstoð við Kúbu. Svarti markaðurinn er hugsan- lega orðinn stærri en sá sem er ofan jarðar. Skömmlunarseðlar duga fyrir einu bjúga á mánuði, einu litlu brauðstykki á dag, fjór- um eggjum á viku og um 350 grömmum af kaffi á mánuði. xRafstraumur er rofinn t átta til tíu tíma á dag. Olía og bensín er varla fáanlegt og hestvögnum Ijölgar ört. Vinum Castros innanlands fer fækkandi og mótmæli þeirra heyrast æ oftar opinberlega. Einn slíkur var Carlos Aldana, yfirmaður hugmyndafræði og alþjoðatengsla hjá miðstjórn flokksins. Hann hugsaði upphátt um umbætur í átt til markaðs- búskapar og vísaði til reynslu gömlu kommúnistanna í Aust- ur-Evrópu. Hann varð að finna sér aðra vinnu. Annar var Alvaro Prendes, fyrrum ofursti í hern- um og þjóðhetja frá misheppn- aðri Svínaflóainnrás. Hann skrifaði félaga Fidel opið brél'þar sem hann hvatti til umbóta, op- inna umræðna og lýðræðis. bingkosningarnar í síðustu viku voru líklega ekki það sem Prendes hafði í huga með auknu lýðræði, enda breyta þær engu um stjórnmál eða efnahag landsins. Einu frambjóðendurn- ir voru kommúnistar og cina ógnin sem embættismönnum stóð at' kjósendum var að fólk myndi strika yfir nöfn á kjör- seðlum. Hættulegustu andstæðingar Castros eru þó kúbversku útlag- amir í Miami. Þeir eru vel skipu- lagðir, eiga valdamikla vini og hafa úrslitaáhrif á stefnu Banda- ríkjastjórnar gagnvart Kúbu. Sumir áhrifamenn meðal demó- krata vilja þó halda sig í hæfiiegri fjarlægð frá þeim, enda margir þeirra ekki beinlínis neinir lýð- ræðiselskendur. Þeir bíða þess að Castro falli og þjóðfélagsgerð- in á Kúbu hrynji og ætla þá að fylla tómarúmið. Vandinn er að einungis 15 prósent útlaganna í Miami segj- ast myndu snúa aftur til Kúbu ef Castro missir völdin. Þeir hafa það einláldlega of gott í Miami. Það er nefnilega líklegra að straumurinn lægi í hina áttina: að tugþúsundir Kúbana myndu nota tækifærið og flýja til Miami þegar farbanni væri aflétt. 51)c 'JJctu 5tmcs Fagmaðurinn Warren Christopher Warren Christopher er ekki þekktur fyrir áhrifamikið látbragð, en af'honum fer það orð að hann geti af fagmennsku greitt úr alvarleg- um og flóknum vandamálum. Hann notaði fyrstu ferð sína sem utanríkisráðherra til að kljást við tvö stórmál á verkefnaskrá utanrík- ismála; hleypti nýju lífi í friðarviðræður Miðausturlanda og seildist yfir til Boris Jeltsín í Rússlandi. Niðurstöðurnar, sem utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rúss- lands, Warren Christopher og Andrei Kozyrev, kynntu sameiginlega í Genf, eru hvetjandi, ekki síst þar sem þær gefa til kynna, að Bill Clinton forseti hafi tekið ákvörðun um að bægja utanríkismálunum ekki ffá sér með útréttan arminn, líkt og í amerískum fótbolta. Warren Christopher hefúr sýnt og sannað að hann er góður hlust- andi og varkár viðmælandi. Yfirmaður hans er enn sem komið er einkum upptekinn af innanríkismálum. Með leiðtogafundinn í apríl í sjónmáli verður utanríkisráðherrann nú að krefjast þess að Banda- ríkjaforseti gefi utanríkismálunum meiri gaum. Dularfullur dauði bresks njósnara, sem starfaði fyrir Bandaríkin að frelsun gísl- annaíBeirút, hefurvakið feikna athygli. Málið er óupp- lýst og nú, fjórum mánuðum síðar, er mörgum óþægilegum spurningum enn ósvarað. Hver kom njósnaranu Spiro fyrir kattarnef? « € i C Fjölskylda Spiros fannst myrt á heimili sínu í Kaliforníu í nóv- ember. Viku síðar fannsthann sjálfur látinn íbílsínum og benti allt tilþessað um sjálfsmorð hefði verið að ræða. Fljótlega vöknuðu þó grunsemdir um morð, tengd íran-Contra-málinu. Terry Waite erkibiskup, fyrrum gísl í Beirút Spiro sagðist hafa fengið Waite lausan úr haldi mannræn- ingja með því að greiða þeim reiðufé fyrir hönd bresku rík- isstjórnarinnar. Á níunda áratugnum starfaði breski njósnarinn Ian Spiro með bandarísku leyniþjónustunni CIA að því að fá lausa hina mörgu gísla sem hafðir voru í haldi í Líbanon. Spiro reyndist þó ekki allur þar sem hann var séður og með tímanum fór hróður hans minnkandi. í nóv- ember síðastliðnum fundust eiginkona hans og þrjú börn skotin til bana á heimili fjöl- skyldunnar í Suður-Kaliforníu. Viku síðar fannst Ian Spiro lát- inn af völdum eiturs í bfl sínum. Málið vakti þegar í stað mikla athygli, enda allt hið dular- fyllsta, og var því slegið upp í fjölmiðlum, bæði í Bandaríkjun- um og á Bretlandi. Áður en varði var farið að tengja örlög fjölskyldunnar Íran-Contra- málinu. Eiginkonan og börnin myrt Eiginkona Ians Spiro, Gail, og börn þeirra þrjú sáust síðast á lífi á heimili sínu 1. nóvember 1992. Daginn eftir mætti heimil- ishjálpin eins og venjulega til vinnu sinnar. Enginn virtist vera heima. Skyndilega birtist Spiro, klæddur morgunslopp og afar þreytulegur. Hann sagði að fjöl- skyldan væri ekki heima og ekki væri þörf á aðstoð þann daginn. Spiro sendi stúlkuna heim og kvaddi hana afsakandi með þeim orðum að „hann ætti í vandræðum". Næstu fjóra daga sást ekkert til Spiro-fjölskyld- unnar, hvorki Ians, Gail né barnanna. Nágrönnunum þótti það einkennilegt, enda hafði enginn heyrt á það minnst að fjölskyldan ætlaði í ferðalag. Við nánari eftirgrennslan sáu þeir í gegnum svefnherbergisglugg- ann hvar húsmóðirin Gail lá í blóði sínu í rúminu. Gail var úrskurðuð látin af Iögreglu. Hún hafði verið skotin í höfúðið með kraftmiklu vopni og var hræðilega illa útleikin. Börnin þrjú, Adam, Sara og Dina, fundust öll látin í her- bergjum sínum og höfðu sömu- leiðis verið skotin í höfuðið. Hvorki fannst tangur né tetur af fjölskylduföðurnum, Ian. í fyrstu féll grunurinn ekki á hann og voru uppi getgátur um að honum hefði verið rænt. Þegar rannsóknarlögreglan hins vegar fann fingraför hans í blóðbletti í þerbergi sonar hans var Ian Spiro samstundis grunaður um morð á fjölskyldunni og hafin að honum umfangsmikil leit. Spiro finnst látinn Ekkert fréttist af Spiro fyrr en viku síðar, er ferðalangar gengu fr am á bíl hans á afviknum stað í Anza-Borrego-þjóðgarðinum í Kaliforníu. Bfllinn var læstur en við nánari eftirgrennslan kom í ljós að Spiro lá látinn í ffamsæt- inu og voru bíllyklarnir í kveikjulásnum. í farþegasætinu lá plastpoki með leifum af natr- íumblásýrusalti. Ekkert vopn fannst í bflnum. Nokkrum vik- um síðar fannst skjalataska Spi- ros og tvær ferðatöskur í gljúfri skammt frá staðnum þar sem líkið fannst. í töskunum var að finna ýmis skjöl, minnisbækur með punktum yfir öll mikilvæg samtöl sem Spiro átti í við- skiptaerindum sínum og segul- bandsspólu. Lögregla vildi ekki upplýsa hvort um væri að ræða týndu spóluna úr símsvara Spi- ros, en skömmu áður en hann fannst látinn hafði hann sagt mági sfnum að einhver ókunn- ugur hefði skilið eftir óhugnan- leg skilaboð á símsvaranum, þar sem honum var hótað öllu illu. Líkskoðun leiddi í ljós að Gail og börnin þijú höfðu látdst af völd- um byssuskots í höfuðið. Ian lést af völdum blásýrueitrunar og hafði því hlotið afar kvalafull- an dauðdaga. Samsæriskenningar fjölmiðlanna Harmsaga Spiro-fjölskyld- unnar komst strax í hámæli og ruku fféttamenn upp til handa og fóta, enda ljóst að um óvenjulegt mál var að ræða. Breskir fjölmiðlar sökuðu bandarísku rannsóknarlögregl- una um að reyna að afgreiða málið með þeirri „þægilegu“ skýringu, að Ian Spiro hefði myrt konu sína og börn og síðan tekið inn í eitur. Ymsar samsær- iskenningar voru á lofti á Bret- landi. The Sunday Telegraph hélt fast við þá skoðun að Spiro og fjölskylda hans hefðu verið myrt. Líklegasta skýringin væri að Spiro hefði átt í miklum erf- iðleikum með að framfleyta fjöl- skyldunni og halda uppi lúxus- lifnaði sínum og því í örvænt- ingu sinni reynt að kúga fé út úr líbönsku mannræningjunum. Þeir hefðu hins vegar séð til þess að hann ónáðaði þá ekki framar. The Observer sagði að Spiro hefði haft milligöngu um vopna- sölu til írans og upp hefði kom- ist að hann tók þrisvar sinnum hærri umboðslaun en eðlilegt gat talist. Fyrir það hefði Spiro þurft að gjalda með lífi sínu. Bandarískir fjölmiðlar sýndu harmleik Spiro-fjölskyldunnar ekki sama áhuga og þeir bresku og lítið fór fyrir samsæriskenn- ingum. The New York Times og The Washington Post gáfú mál- inu engan gaum og flest önnur blöð sögðu söguna, en létu spurningunni um það hver myrti hvern ósvarað. Tveimur mánuðum effir morðin birti The San Diego Union-Tribune nýjar upplýsingar um týndu segul- bandsspóluna, sem komu sér illa fýrir Ian Spiro, enda þótt lát- inn væri. Fram kom að á spól- unni væri að finna vísbendingu óþekkts aðila, um að Spiro yrði að „fórna fjölskyldu sinni“. Ólíklegar skýringar Mánuði síðar birti The Los Angeles Times frétt um að á spólunni hefði jafnframt komið ffam að Spiro-hjónin hefðu átt í erfiðleikum í hjónabandinu og | Gail hefði haft í hyggju að yfir- gefa eiginmann sinn. Fram að þessu höfðu allir fjölmiðlar látið í veðri vaka að um fyrirmyndar- hjónaband hefði verið að ræða, enda benti ekkert til annars. Nýju upplýsingarnar urðu til hleypa enn meiri hita í rannsókn málsins og vangaveltur um það. En allt kom fyrir ekki. Hvorki lögreglu né blaðamönnum tókst að komast til botns í málinu, enda voru spurningarnar ótelj- andi, þar sem hvað útilokaði annað. Mörgum þótti upphaflega skýringin, að Spiro hefði myrt m fjölskyldu sína og síðan stytt sér aldur, lfldeg, en þó var ákaflega margt sem mælti gegn þeirri út- gáfú sögunnar. Hefði fýrirætlun hans til dæmis verið sú hefði verið mun nærtækara fyrir hann « að skjóta fyrst konuna og börnin og binda síðan enda á líf sitt á staðnum, í stað þess að bíða í heila viku og keyra út í óbyggðir til að fullkomna verkið. Sömu- leiðis reyndust getgátur um að Spiro hefði verið mjög illa staddur fjárhagslega ekki á rök- um reistar og því gátu peninga- áhyggjur tæpast verið skýringin. Þeir sem aðhylltust þá kenningu að utanaðkomandi aðilar hefðu myrt Spiro-fjölskylduna ráku sig sömuleiðis á vegg. Til dæmis benti ekkert til þess að brotist hefði verið frm í húsið. Þá fannst engin skýring á því, hvernig á því stóð að Spiro tilkynnti ekki lögreglu að fjölskylda sín hefði verið myrt, en fullsannað þótti að þau hefðu öll verið látin þeg- ar heimilishjálpin mætti til vinnu og fann Spiro, að hans « sögn, einan fyrir í húsinu.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.