Pressan - 01.04.1993, Page 19
Fimmtudagurinn l.apríl 1993
S K I L A BOÐ
PRESSAN
19
FJOLFROÐUR UTVARPS-
RÁÐSMAÐUR...
’Það eru ekki allir trúnaðarmenn
stjórnmálaflokkanna sleipir í
þeim málefhum sem þeim er fal-
ið að fjalla um. Hjálmar Jónsson, prest-
ur og varaþingmaður sjálfstæðismanna
af Norðurlandi vestra, á sæti í útvarps-
laganefhd og í útvarpsráði. Um daginn
var að hann að ræða við samflokksmann
sinn og sagði að það væri ánægjulegt
skref í einkavæðingu Rfkisútvarpsins að
það væri komið á B-hluta fjárlaga.
Ókunnugum skal
bent á að B-hlutinn
er yfirlit yfir allar
Iríkisstofhanir. Ríkis-
útvarpið einkavæð-
ist því ekki þótt tölur
úr reikningum
þeirra birtist þar.
V
1 »
GAMLIR DRAUGAR ÚRVEITINGA-
BRANSANUM SÆRÐIR BURT...
Veitingahúsin halda áfram að spretta
upp og falla. Nokkur þrotabú veitinga-
húsa hafa verið gerð upp nýverið og að
vanda eignalaus. Reykvískar veitingar hf. ráku
Berlín í alls þijá mánuði en fóru þá í gjaldþrota-
skipti og lauk þeim nýverið með því að ekkert
fékkst upp í 22 milljóna króna kröfur. Það sam-
svarar um 2 milljóna króna töpuðum kröfum
um hverja helgi hjá aðstandendum hlutafélags-
ins, þeim Úlfari Emi Valdimarssyni, Sigur-
jóni Bjömssyni og Þorláki EinarssynL Þá er
búið að gera upp þrotabú Argentínu steikhúss
hf., þess félags sem upphaflega rak veitingahús-
ið með þessu nafhi, þegar aðalforsprakkinn var
Anton Narvaez. I þessu þrotabúi töpuðust
rúmar 12 milljónir. Loks má nefna að búið er að
gera upp gamlan veitingadraug, Eyland hf.
Pálma Lórenssonar og töpuðust þar 18 millj-
ónir.
BUNAÐARBANKINN SETTIFYRRUM
IÐNAÐARBANKASTJÓRA í ÞROT...
Búið er að gera upp þrotabú Sigurðar J. Ringsted, fyrrverandi útibússtjóra
* J gamla Iðnaðarbankans á Akureyri. Sigurður var ábyrgðarmaður vegna
greiðslukorts og skuldabréfs fyrir dóttur sína, sem ekki reyndist borgunar-
maður fyrir skuld sinni. Búnaðarbankinn fékk dóm á Sigurð fyrir skuldinni, en þá kom
í ljós að hann hefði selt fasteign sína þótt hann byggi þar enn. Fjámám bar ekki árang-
ur og því setti Búnaðarbankinn Sigurð í gjaldþrotaskipti. Skiptum lauk þannig að Sig-
urður reyndist éignalaus og fékkst því ekkert upp í rúmlega 16 milljóna króna kröfur.
Bjöm Jósef Amviðarson var skiptastjóri og veltu menn því fyrir sér hvort Búnaðar-
bankinn mundi krefjast riftunar á sölu Sigurðar á einbýlishúsi sínu, en af því virðist
ekki hafa orðið.
KAUPGARÐURVILL2,7
MILUÓNIR FRÁ ÞROTABÚI
KRON...
f vikunni var tekið fyrir í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur mál Kaup-
garðs, sem er í eigu þeirra feðga
Torfa Torfasonar og Ólafs Torfason-
ar, gegn þrotabúi KRON. I tíð Þrastar
Ólafssonar sem stjórnarformanns hafði
KRON á leigu húsnæði Kaupgarðs í
Engihjalla þegar til gjaldþrots kom og átti
Kaupgarður inni leigu, auk þess sem
húsnæðið var ekki tæmt fýrr en fjórum
mánuðum effir gjaldþrot. Krafa Kaup-
garðs er að fá þriggja mánaða leigu á því
tímabili sem ekki var hægt að nýta hús-
næðið og nemur krafan 1,9 milljónum,
en 2,7 milljónum í raun með vöxtum og
kostnaði. Þrotabúið hefur í reynd viður-
kennt kröfuna sem réttmæta, en bústjór-
inn flokkaði hana sem almenna kröfu og
þar með í raun glataða. Dómsmál Kaup-
garðs snýst um að fá kröfuna viður-
kennda sem forgangskröfu í búið og þar
með væri hún að hluta eða öll trygg.
OKEYPIS
SMÁAII6-
LÝSIN6AR
% Áskrifendur fá birt-
ar smáauglýsingar í
PRESSUNNI sér að
kostnaðarlausu. Þú
þarft aðeins að hringja
auglýsinguna inn í
síma 64 30 80.
l*i m
PostScript
Prentarar
fýrir PC og MAC.
Stöðugar framfarir, gæði og verð
sem vekja athygli.
ÞÚLEST
PRESSUNA
MEU M0R6-
# Áskrifendur fá blað-
ið í bítið áfimmtu-
dagsmorgni, ná að lesa
það áður en þeirfara í
vinnuna og eru manna
best inni í málum í
morgunkaffinu.
QMSPS410
Margur er knár
þótt hann sé smár
45 PostScript letur
Mac tengi (Local Talk)
og tvö PC tengi (Centronics
og RS 232C)
Samhliða vinnsla að
PC/MAC (SIO)
Sjálfvirk aölögun að
PostScript/HP PCL (ESP)
2MB RAM stækkanlegt í 6 MB
DECnet, Token-Ring
39 letur
• 12 MB, stækkanlegt í 32 MB
• „Crown“ tækni.
og RS 232C)
• Samhliða vinnsla að
PC/MAC (SIO)
• Sjálfvirk aðlögun að
PostScript/HP PCL (ESP)
• 6MB RAM stækkanlegt í 8 MB
SKIPHOLT117 ■ 105 REYKJAVÍK ^NBB^VsÍMI: 91- 627333 • FAX: 91- 628622
aco ..
Traust og örugg þjónusta í 15 ár
KRISTINN P. VILL FÁ AÐ BYGGJA FYRIR RAT-
SJÁRSTOFNUN...
Nú stendur fyrir dyrum bygging fjögurra íbúðarhúsa vegna
ratsjárstofnunar á Gunnólfsvíkurfjalli. Ekki hefur verið
ákveðið hvar húsin verða sett niður en sem gefur að skilja
er það stórt keppikefli fyrir fámenn
byggðarlög að fá húsin og er þegar
komin upp þræta á milli Bakkafjarð-
ar og Þórshafhar. Ljóst er að stöðin
sækir nánast alla þjónustu inn á
Þórshöfn, þar sem meðal armars er
flugvöllur. Þeir starfsmenn sem
sjálfir verða að útvega sér húsnæði
hafa einnig komið sér fyrir á Þórs-
höfh. Á Bakkafirði er hins vegar
Kristinn Pétursson, fyrrverandi
þingmaður sjálfstæðismanna, og
hann sækir það fast að fá húsin. Ekki
síst fyrir þá sök að hann á bygging-
arfyrirtækið Gunnólf hf. sem hefur
ekki haff of mikið að gera að undanförnu eftir að verk uppi á fjallinu
kláruðust. Eins og aðrar ffamkvæmdir fyrir varnarliðið er talið um
nokkuð hagkvæmt verk að ræða og hefur verið skotið á að fyrirtæk-
ið sem fær verkið græði tvær milljónir á hús.
Flísalagnir - múrverk
Allt viðhald á steyptum húsum
eða nýbyggingum.
Múrarameistarinn. S: 6116672
Ökukennsla - æfingatímar
Kenni á Nissan Sunny SLX '92Euro -Visa
Hallfríður Stefánsdóttir, s: 681349 og 985 - 20366
Ibúð óskast
Einstaklingsíbúð óskast, helst í Hafnarfirði.
Skilvísum greiðslum og reglusemi heitið.
Upplýsingar í s: 652544 til kl. 18:00
Skjaldbökur + búr
4001 búr með öllu tilheyrandi
& 3 skjaldbökur til söiu
Tilboð óskast í s: 39031, e. kl. 19:00
Til sölu
Til sölu 2 hvít rimlarúm m/stuðpúðum & dýnum. 2
Hókus Pókus stólar & 3 sæta sófi. Uppl. í s: 30666
j. V'' . ''
Til sölu
2 húsbóndaleðurstólar, annar með skammeli.
Barnaborð og stóll, stórt persneskt teppi. S: 671201
Ökukennsla
Kenni á Hyundai Elanta.
Ökuskóli og prófgögn ef óskað er.
S: 676129-985-39200
QMS 860 QMSPS815MR
600 punkta Meiri upplausn,
A3 prentari skarpara letur
• RISC fjölvinnsla • 600x600 punkta upplausn
• Fínkorna geislaprentari • 8 síður á mínútu
• PostScript Level 2, • 45 PostScript letur
HP-PCL4, HP-GL, LN03 • Mac tengi (Local Talk)
■
Til sölu - óskast
ísskápur, tvískiptur, 1,45 sm á hæð, 5 ára.
Verðkr. 15.000,-.
Þvottavél, lítið notuð, Zerowatt. Selst á hálfvirði.
Á sama stað óskast bókahillur og fataskápur.
Allt kemurtil greina.
Uppl. í síma 620702
Til leigu
Stór 120 fm, 4 herb. íbúð til leigu í miðbæ
Reykjavíkur. Tilvalin fyrir 3 einstaklinga sem vilja
deila íbúð. Fallegt útsýni. Suðursvalir.
uppl. í s: 620702
Til leigu
Stórt herbergi með sér-inngangi og salerni í
gamla vesturbænum. Aðgangur að eldhúsi og
sameiginlegri stofu. Láo leiga.
Laust nú þegar. Uppl. í s: 64 30 87 á daginn.
■