Pressan - 15.04.1993, Blaðsíða 7
F R E TT I R
Fimmtudagurinn 15. april 1993
PRESSAN 7
sýna að samtökin hafa
sem
stundað víðtækar persónunjósnir
ARNI
FlNNSSON
;t meira með Magnúsi
hann vill vera láta.
Fylgist
en
„MAGNUS
BORÐARALLT"
Ýmsar upplýsingar er
að finna ískjölunum
og hér er sýnishorn af
því.
PRESSAN hefiir í fórum sín-
um skjöl sem sýna fram á að
Grænfriðungar (Geenpeace)
hafa fylgst sérstaklega með
Magnúsi Guðmundssyni kvik-
myndagerðarmanni um nokk-
urra ára skeið. í skjölunum
kemur meðal annars ffam að til
þess hafi þurft einn starfsmann
í fullri vinnu.
í síðustu viku kom fram í
fréttaþættinum „60 Minutes“ á
Nýja-Sjálandi að Grænfriðungar
hefðu stundað víðtækar njósnir
um Magnúsi Guðmundsson,
kvikmyndagerðarmann og höf-
und myndarinnar Lífsbjargar í
Norðurhöfum. PRESSAN heiur
komist yfir skjöl sama eðlis úr
tölvukerfi Grænfriðunga, og
sýna þau ffam á svo ekki verður
um villst að Magnús hefur verið
samtökunum sérlega hugleik-
inn og fylla upplýsingar um
hann og mynd hans hundruð
blaðsíðna.
Skjölin sem blaðið hefur
undir höndum ná allt fram til
15. mars 1993 og eru meðal
annars skrifuð af þeim Árna
Finnssyni, sem starfar á skrif-
stofu Grænfriðúnga í Gauta-
borg, og Jakob Lagercrantz,
starfsmanni alþjóðadeildar
Grænfriðunga, en hann hefur
aðsétur í Amsterdam. í skjölun-
um er meðal annars að finna
þýðingar á viðtölum og umfjöll-
un um Magnús í íjölmiðlum hér
á landi. Svo virðist sem engin
viðtöl við hann, sama hvaða
fjölmiðill á í hlut, hafi farið ffam
hjá árvökulum augum og eyr-
um Grænffiðunga. Þá eru einn-
ig persónulegar upplýsingar um
Magnús, svo sem um álit „koll-
ega“ Magnúsar á honum, hvað
honum þykir skemmtilegast að
gera og svo ffamvegis. Þá má sjá
á skjölunum að Grænffiðungar
hafa fylgt honum effir á ferða-
lögum erlendis. Einnig inni-
halda þau vangaveltur og full-
yrðingar um tengsl Magnúsar
við stjórnvöld hér á landi, auk
þess sem nokkrir þekktir ein-
staklingar fá mjög neikvæða
umfjöllun, þar á meðal Ólafur
Sigurðsson, fféttamaður Sjón-
varps.
Fullt starfað fylgjast
með Magnúsi
Hinn 15. febrúar 1990 skrifar
Lagercrantz til áróðursstjóra
Grænffiðunga að mál Magnúsar
Guðmundssonar eða „The
Gudmundsson Affair“ hafi sýnt
ffam á þörfina á því að samtök-
in bregðist við „vandamálun-
um“ sem eiga upptök sín á
Norður-Atlantshafssvæðinu.
„Ég hef talað við nokkra um
þörfina á því að fá eina mann-
eskju í fullt starf við að berjast
við „vandamálið“ í tiltekinn
tíma,“ segir hann. Síðan bætir
hann því við „að Magnús muni
ekki hverfa af sjónarsviðinu að
eigin frumkvæði“, hvað svo sem
meint er með því. Á ensku segir
orðrétt: „It is apparent that
Gudmundsson just doesn’t go
awaybyhimself.“
í öðru bréfi ffá Lagercrantz,
þar sem fjallað er um málefni
Grænffiðunga, er sérstakur kafli
helgaður Magnúsi. Þar kemur
sitthvað fram um þá áætlun
samtakanna að gera Magnús að
ómerkingi í fjölmiðlum og
losna þannig við óþolandi at-
hugasemdir hans. Tillaga Lag-
ercrantz er eftirfarandi:
1. Safna saman þeim upplýs-
ingunum sem samtökin hafa
þegar aflað sér um Magnús og
leita jafnffamt með aðstoð Áma
eftir nýjum upplýsingum á ís-
landi.
2. Kynna öðrum mögulegar
MagnúsGuðmundsson
„Æði sjúklegt"
„Mér varð illa við þegar ég
frétti af skjölunum. Þetta kom
mér þó ekki á óvart, nema þá
hversu ítarlegt þetta er. Það
setti óneitanlega að manni dá-
lítinn hroll.“
Hvaðfinnst þér um samtök
Grænfriðunga í Ijósi þessa
mdls?
„Þetta sýnir að samtökin
eru afskaplega vafasöm. Þau
stunda persónunjósnir þegar
þau þykjast raunverulega vera
að berjast fýrir umhverfis-
vernd og eitthvað hljóta þessi
ósköp að kosta. Mér þykir
hæpið að þeir, sem gefa þeim
peninga, myndu gefa þá til
þessa markmiðs — að njósna
um fólk. Ég er sannfærður um
að ég er ekki sá eini sem er f
þessum sporum, þar sem
gagnrýnendur samtakanna
eru farnir að skipta einhverj-
um hundruðum í heiminum.
Annars finnst mér þetta fyrst
og ffemst æði sjúklegt.
Þeir einstaklingar sem eru
þarna að velta fyrir sér mínu
ágæti, minni persónu og lífi,
þeir ganga tæplega heilir til
skógar. Eg hef hitt alla þessa
menn og ég viðurkenni það
fuslega að mér hefur ekki liðið
vel í návist þeirra. Hatrið sem
skín í gegn, sérstaklega frá
Árna Finnssyni, er langt frá
því að vera normalt. Þá finnst
mér einnig að margt af því
sem hann skrifar sé frekar til-
raun hans til að upphefja sjálf-
an sig í augum yfirboðara
sinna. Hann gerir mikið úr
hlutverki sínu sem duglegs
spæjara og þeim samböndum
sem hann hafi hér á landi, svo
sem nánum vinskap við fjöl-
miðla, sem ég leyfi mér að
draga í efa að sé til staðar.“
aðgerðir sem kunna að gera lítið
úr eða skaða Magnús og fullyrð-
ingarhans.
3. Bjóða Magnúsi birginn í
fjölmiðlum við hentug tækifæri.
Af ofangreindu má sjá, að eitt
af verkefnum Árna Finnssonar
á fslandi hefur verið að fylgjast
náið með Magnúsi.
Líta á Magnús sem
óvin númer eitt
Augljóst er af þessum skjöl-
um að Grænfriðungar líta á
Magnús sem sinn helsta óvin.
Þar kemur ffarn að hann hafi
skaðað samtökin verulega og
komið fram á sjónarsviðið á
versta tíma. „f mars 1989 (sama
mánuði og Lífsbjörgin var
ffumsýnd) vorum við alveg við
það að fá almenning á okkar
band vegna viðskiptabannsins,
og því er ákaflega ergilegt að h'ta
yfir jákvæðar blaðagreinar ffá
þessum tíma,“ segir Lagercr-
antz í einu bréfi sínu. Hann
bætir því við, að mál Magnúsar
hafi fært mönnum heim sann-
inn um að hægt sé að skaða
samtökin, en fyrir þann tíma
hafi þeim ekki staðið ógn af
neinum — samtökin hafi með
öðrum orðum ekki átt sér
„óvini“.
Ýmsar áætlanir samtakanna
er að fmna í þessum skjölum,
svo sem hvernig sérstaklega
skuli ráðist á þau lönd þar sem
mynd Magnúsar hafi verið tek-
in til sýningar. Þá kemur einnig
fram, að samtökin hafi fólk á
sínum vegum á íslandi, sem sé
tilbúið að gagnrýna Magnús.
Það muni þó bera meiri árangur
ef efnið komi annars staðar ffá
en úr smiðju Grænffiðunga. Því
er svo bætt við, að fólkið bíði
einungis eftir rétta augnablik-
inu. „Markmið okkar er að
grafa undan stuðningi almenn-
ings við Magnús á íslandi,“ seg-
ir Lagercrantz. Og bætir við að
samtökin sjái sér ekki fært að
kveða niður ásakanir Magnúsar
án stuðnings annarra.
Nýjustu skjölin
manaðargömul
Grænfriðungar hafa greini-
lega fylgst vel með Magnúsi á
erlendri grundu. f skjölunum er
meðal annars fjallað um þátt-
töku Magnúsar í ráðstefnu í
Utah í Bandaríkjunum, og einn-
ig um dvöl hans vestanhafs í
öðrum erindagjörðum. Þar
kemur fram að samtökin hafi
fundið út að utanríkisráðuneyti
íslands hafi pantað hótelher-
bergi fyrir Magnús Þó að slík
þjónusta sé eðlileg í hugum ís-
lendinga telur Lagercrantz að
þetta gæti litið grunsamlega út í
augum útlendinga og því væri
vert að nota það gegn honum.
Til dæmis gætu Norðmenn litið
á þetta sem skýra sönnun þess
að Magnús nyti fjárstuðnings
ffá Jóni Baldvini Hannibals-
syni.
Hlutverk Árna Finnssonar í
skrifunum virðist greinilega
hafa verið að senda allt sem
Hvenær leið honum best?
„Þegar hann sá börn sín
koma í heiminn."
Hvað finnst honum
skemmtilegast?„Að lesa
góðar bækur."
Hver er uppáhaldsmatur
hans?„Hann borðar allt."
Hvað likar honum best i
fari fólks? „Húmor."
Hvað gerir hann í fritíma
sínum?„Les eða horfir á
sjónvarp."
Hvað finnst honum leiðin-
legast? „Aðgera skatt-
skýrsluna." (Arni bætir inn
í að þetta sé afsökun hjá
Magnúsi vegna þess að
hann hafi staðið í vafa-
sömum fjármálaævintýr-
um!)
„Hvala-Magnús, eins og
stjórnandi þáttarins
kynnti hann eða Magnús i
Hvalnum eins og hún
sagði síðar. Aumingja
maðurinn. Hún var að
gera grin að honum," seg-
irÁrni í bréfi til Grænfrið-
unga.
„Mér er sagt affólki sem
þekkir hann að hann
skorti dómgreind og i
þessari viku sannaði
hann það rækilega,"
sagði Árni.
„Skilaboð okkar eru þau
að ásakanir Magnúsar
séu rangar og honum sé
ekki treystandi. Við sýn-
um fram á tengsl milli
hans og sjávarútvegs-
ráðuneytisins og Sjón-
varpsins. Með því að sjá
til þess að fjölmiðlum ber-
ist upplýsingar um for-
sögu Magnúsar, svo trú-
verðugleiki hans verði at-
hugaður," segir Jakob
Lagercrantz í plaggi þar
sem lögð eru á ráðin fyrir
réttarhöldin gegn Magn-
úsi í Noregi.
birtist um Magnús í íslenskum
fjölmiðlum til höfuðstöðvanna.
Nýjustu skjölin sem PRESSAN
hefur komist yfir eru mánaðar-
gömul. I þeim fjallar Árni meðal
annars um grein sem birtist ný-
verið í Vikublaðinu þar sem
greint er ffá því að Magnús hafi
fengið hálfrar milljónar króna
styrk úr hinum svokallaða
„Hvalasjóði“. „Þetta er allt sem
við þurftum. Nú getum við hik-
laust kallað Magnús erindreka
ríkisstjórnarinnar,“ segir Árni.
Nýjasta mynd Magnúsar,
„Paradís endurheimt“, er Árna
mjög hugleikin og 15. mars sl.
skrifar hann Grænfriðungum
að ekkert nýtt sé í myndinni, ef
marka megi íslenskan blaða-
mann sem hafi séð myndina. Þá
segir hann að íslenskir fjölmiðl-
ar séu lítið spenntir fyrir nýju
myndinni fyrir utan Sjónvarpið.
Þess má geta að í skjölunum
kemur margoff ffam að Græn-
friðungar telja óeðlilegt sam-
band vera á milli Sjónvarpsins
og Magnúsar.
Ekki náðist í Árna Finnsson,
sem nú er staddur í Stokkhólmi,
en síðastliðinn laugardag lét
hann eftirfarandi orð falla í út-
varpsfréttum Bylgjunnar:
„Einkalíf Magnúsar Guð-
mundssonar er engan veginn
áhugavert fyrir Greenpeace,
ekki á nokkurn hátt.“ Um full-
yrðingar Magnúsar í aðra veru
sagði hann: „Ég veit ekki akkúr-
at um hvað Magnús er að tala,
en ég á bágt með að ímynda
mér að hann hafi nokkuð undir
höndum í þá áttina vegna þess
að ekki hef ég séð neitt eða heyrt
sem heitir, eða getur verið
nokkurs konar umfjöllun um
hann sérstaklega, an'nað en að
hann er kvikmyndagerðarmað-
ur sem býr á Islandi og rekur
kvikmyndagerðarfýrirtæki sem
hefur einkum unnið að því að
gera kvikmyndir um Green-
peace og önnur umhverfis-
verndarsamtök.*1_____________
Jónas Sigurgeirsson