Pressan - 15.04.1993, Blaðsíða 19

Pressan - 15.04.1993, Blaðsíða 19
PO P P & B I O Fimmtudagurinn 15. apríl 1993 PRESSAN is ‘Birna íVórðardóttir bíaðamaður: „Ég held það fari ekki á milli mála að Bíóbarinn er uppáhaldskráin mín. Oftast rekst maður á ein- hvern kunnugan og þjón- ustan þar er mjög góð. Á föstudögum og laugar- dögum er að vísu heldur mikið affólki þar, sem getur verið þreytandi. í biðröðinni nenni ég yfir- leitt ekki að standa, þótt Bjarni TeCiyson ípróttafrétta- maður „Þrátt fyrir að Rauða Ijón- ið á Seltjarnarnesi sé nefnt íhöfuðið á mér fer ég afar sjaldan þangað eða á aðra bari yfirleitt. Ég var hins vegar á Rauða Ijóninu þegar hann var opnaður og hef einu sinni komið síðan. Ég á mér því enga sér- staka uppáhaldskrá, því ég hefyfirleitt öðrum hnöppum að hneppa á kvöldin en að sitja á bör- um. Efég hefði hins vegar tíma til þess færi ég hik- laust á Rauða Ijónið, enda er hann nálægt heimili mínu og ber ágætt nafn." ÓCi ‘Tyties fréttamaður „Hverfispöbbinn minn er Kringlukráin. Þar hafa þeir frábært starfsfólk sem þekkir þarfir sinna kúnna. Þegar maður kemur þangað inn og býður gott kvöld sest maður við borðið og seg- ir ekki meir. Þeir vita ná- kvæmlega hvað maður vill. Um leið og maður sést í dyrunum byrja þeir að afgreiða mann með stóran bjór og tvöfaldan brennivínssnafs. Snafsinn nota ég til að ná smá- "rössi" en síðan dunda ég mér við bjór það sem eftir lifir kvölds. Kringlukrána sæki ég þó ekki reglulega og hef enga sérstaka vini þang- að að sækja. Þangað er mjög gott að rölta, hafi maður ekkert betra við tímann að gera, og fá sér ölkollu og spjalla. Það kemur fyrir að manni eru sagðar fréttir. Svo hittast gamlir starfsmenn Arnar- flugs alltafá Kringlu- kránni 19. hvers mánað- ar, en það er sérdæmi." það komi að vísu fyrir, en hún kemur vart að sök þvístutt er til allra átta; á 22 og aðra bari. Yfirleitt lít ég inn á Bíóbarinn í kringum helgar og kíki þó alloft við á sunnudög- um líka." Mörður Árnason ísCensíju- frczðingur: „í sannleika sagt hefég átt í dálitlum erfiðleikum með barina í Reykjavík. Ég hefekki fyrr verið far- inn að venja komur mín- ar á einhvern þeirra en staðurinn er annaðhvort lagður niður eða þá að viðmót starfsfóíksins kólnar og þjónustan versnar, eftir því sem staðurinn verður vinsælli. Ekkert afþessu hefur hent Bíóbarinn, sem ég hefsótt síðustu misseri. Hann er prýðisgóður bar, enda þótt stundum sé margt um manninn og ansi hávær tónlist. Þar ræður auðvitað mestu góð þjónusta og gott starfslið, sem gerir vel við sitt fólk og gætir þess að halda utan um stemmn- inguna. Því fer ég ennþá á Bíóbarinn þegar mig langar í bjór." Popp FIMMTU DAGU R I N N 1 5. APRÍL • Richard Scobie mun víst vera meiddur á hendi. Það aftrar honum þó ekki frá því að syngja við undirspil Birgis Tryggvasonará Barrokkfram á aðfaranótt sunnudags. • Undir tunglinu er í minn- ingunni austfirsk en samt nokkuð góð grúppa. Hún verður á Gauk á Stöng. • Haraldur Reynisson trúbador kyrjar á Fógetanum. • Kandís leikur á Plúsnum í kvöld og verður í beinni út- sendingu á Bylgjunni þar sem þeir eiga mikið spilaða gamla lummu. • Lipstick Lovers leikur sveiflurokk í anda Rolling Stones á Hressó. Þeir sem þar sameina krafta sína eru An- ton Már, Sævar Þór, Ragnar Ingi og Bjarki. Þeir gefa út breiðskífu von bráðar. Upp- hitunarsveit þeirra er hin dul- arfulla... • Brain Child, sem enginn veit neitt um. Þeir byrja að spila klukkan 23.00 á Hressó. FOSTUDAGURINN 1 6. APRÍL • Richard Scobieer von- andi orðinn betri í hendinni. Hann og BirgirTryggva verða á Barrokk. • UndirTunglinu skemmtir gestum Gauksins. • Blúsbrot er stórgóð blús- sveit með Vigni Daðason fremstan í flokki. Hún verður á Blúsbarnum. • Nýdönsk hefur lítið spilað ÍVíkinni að undanförnu að undanskildu Ingólfscafé. Nú spila þeir á þesta tónleika- staðnum; Tveimur vinum og öðrum í fríi. • Haraldur Reynisson fast- ará Fógetanum. • Stjórnin tekur hafnfirska syrpu í kvöld í Firðinum eftir að Stjórnin fékk það ekki um síðustu helgi. • KK-band eralltaf gottá Plúsnum. Það er svo skrítið að sumar sveitir eiga betur heima í sumum húsum. • Paula er bráðhress söng- kona og píanóleikari sem reytir af sér barandara á Café Romance. inni? Móðirin hafði uppi hörð mótmæli við eiganda bóka- búðarinnar sem útvegaði henni bókina siðlausu, og sá hann sig loks tilneyddan að fjarlægja Valla og brjóstaberu konuna úr búðarhillum sínum. Rosalega efnileg í hléi Ifalli vídförli í slæmum félagsskap LAUGARPAG U RI N N 1 7. APRÍL • Húsavíkurbíó fær þau Aðalstein Ásberg og Önnu Pálínu til að flytja samskonar * * 1 tónlist og í Grófargili. Tón- leikarnir hefjast nú kl. 17.00. • Þotan, Keflavík Stjórnin leikur og skemmtir og allt hitt. • Sjallinn, Akureyri verður með Evítu, hljómsveitina Herramenn og Guðmund « RúnarúrHafnarfirði. • Hótel Akranes: Rúnar Júlí- usson og Cuba Libre skemmta Skagamönnum. STUTTUR FRAKKI EFTIR GlSLA SNÆ ERLINGSSON SAMBÍÓUNUM ★★★ Stuttur írakki er hreint ósköp skemmtileg bíómynd — fram að hléi. Langt írameftir mynd er áhorfandinn forvitinn um per- sónurnar og skemmtir sér vel yfir ljúffi kímni. En þegar búið er að kynna persónurnar, flétta söguþráð og rekja hann um tíma kemur að því að loka sög- unni og binda lausa enda. Þá fatast höfúndum myndarinnar flugið. í blálokin gefast þeir upp og hespa sögulokin af. Með Stuttum frakka er ljóst að það er komin ffam ný kyn- slóð kvikmyndagerðarmanna. Það er ekki bara að höfundar Stutts frakka séu á svipuðum aldri og höfundar Sódómu og Veggfóðurs heldur eru þeir allir á sömu buxunum. I raun má skipta íslenskum bíóleikstjór- um í tvær kynslóðir. Sú fyrri á bágt vegna bókmenntaarfsins og listræns skandínavísks þunglyndis. Myndir hennar sækja minni sín í bækur eldri kynslóða og tóninn í sænsk sjónvarpsleikrit. Seinni kyn- slóðin býr til sínar eigin sögur úr samtímanum og sækir fyrir- myndirnar í bíó. Fyrri kynslóð- in talar um menningarlega nauðsyn íslensks bíós, ábyrgð og skyldur. Hún haggast ekki nema hún fái styrk úr Kvik- myndasjóði. Seinni kynslóðinni finnst auðsjáanlega gaman að búa til bíó. En þetta kemur bíómyndinni Stuttum frakka ekki við. Sjálf- sagt hefði hún ekki orðið neitt verri þótt hún hefði fengið góð- an styrk úr Kvikmyndasjóði. Hún hefði heldur ekki orðið betri. Kvikmyndasjóður hefur Sú staðreynd er óhagganleg að það þarf ekki mikið tii að of- bjóða siðgæðisvitund Banda- ríkjamanna. Eins og allir vita er það raunin víða á sólarströnd- um vestanhafs að konum er bannað að bera á sér brjóstin og eru ströng viðurlög við því að fara úr að ofan. Það er þó aldeilis ekki ein- göngu á sólarströndum í Bandaríkjunum sem ber brjóst eru bannfærð, eins og sannaðist þegar stráklingur- inn Valli víðförli tók upp á því í einni bókinni sinni að verja góðum degi á sólar- strönd. Valli er íslenskum börnum að góðu kunnur, enda þótt hann sé eilíff að fela sig; bækurnar hafa alls staðar fallið í góðan jarðveg og ekki hefur þótt ástæða til að hafa uppi minnstu efasemdir um siðgæði þeirra. Henni var þó greinilega ofboðið, bandarísku móður- inni, sem eftir langa leit kom auga á berbrjósta kvenmann innan um alla krakkana í bók- inni Hvar er Valli á strönd- sýnt það gegnum árin að hann er ekki vandfýsinn á handrit og því hefðu gallarnir á handriti Stutts frakka ekki truflað út- hlutunarnefnd. Stuttur frakki er skemmti- mynd. Hún flytur engin skila- boð og persónur hennar eru hvorki góðar né vondar. Hún gerir góðlátlegt grín að íslend- ingum, rembunni og minni- máttarkenndinni. í myndinni er enginn maður fatlaður, eng- inn gamall og enginn í sálar- kreppu. Helstu geðshræringar persónanna eru stress, afbrýði, mont og fýla. Þetta er því lítil mynd og stendur ágædega sem slflc. Frásögnin er brokkgeng. Stundum fá atriðin sjálfstætt líf og eru á skjön við frásögnina. Það gengur upp í einræðu Egg- erts Þorleifssonar en ekki í spaugstofuþætti myndarinnar. Rónarnir tveir eru einfaldlega of bjánalegar persónur til að lifa á breiðtjaldi. Tónleikaatriðinu er skotið inn af fuflmikilli kurteisi við hljómsveitirnar. Hver fær akkúrat eitt lag og það er sam- viskusamlega sýnt frá upphafi til enda. Tónleikarnir eru í seinni helmingi myndarinnar og innskotin þaðan kæmu sjálf- sagt ekki að sök ef sagan væri ekki að missa kraft á sama tíma. Frakkinn Jean-Philippe Lab- adie er góður í hlutverki sínu og Elva Ósk Ólafsdóttir sleppur ffá sinni persónu þótt handritshöf- undur hafi ekki gefið henni mikinn þokka. Hjálmar Hjálmarsson á góða spretti en tekst samt ekki að fylla upp í þetta annars þakkláta hlutverk. Kvikmyndafólkið skilar sínu vel. Myndin er skemmtilega klippt og tónleikaatriðin kvik- mynduð af krafti. Aðalgalli myndarinnar er að handrit sem lofar góðu missir „Frakkinn Jean- Philippe Labadie er góður í hlutverki sínu ogElva Ósk Ólafsdóttir sleppur frá sinni persónu þótt handritshöf- undur hafi ekki gef- ið henni mikinn þokka. Hjálmar Hjálmarsson á góða spretti en tekst samt ekki að fylla upp íþetta annars þakkláta hlutverk. “ dampinn undir lokin. Ferð Frakkans verður leiðinleg um leið og hann opnar koníaks- flöskuna við Perluna. Og hremmingar Hjálmars og Elvu Óskar eru ekki nægjanlega vel gerðar til að þær dugi áhorfand- anum. Stuttur frakki er í raun tveggja stjörnu mynd. En í hlé- inu stefndi hún í þrjár. Gunnar Smárí Egilsson • Todmobilefærirokkur storminn á Tveimur vinum í kvöld eftir páskahelgi í Vest- mannaeyjum. • Richard Scobie og Birgir Tryggvason á Barrokk. • Björgvin Halldórsson og söngsjóið á Hótel Sögu. • Blúsbrot blúsar og blæs §“ f Blúsbarnum í kvell. Stórgóð skemmtun þar. • Haraldur Reynisson tek- ur í á Fógetanum. • SSSól ætlar að taka við af Stjórninni í Firðinum í kvöld, Guðmundi Árna og félögum til mikillar gleði. • Vinir Dóra eru komnir aft- ur á heimaslóðir eftir yfirreið um landið. Þeirtaka sjálfsagt rokk og blús á Plúsnum. • Paulafærflestatilað hlæja þegar hún byrjarað reyta af sér offitubrandarana. Hún skemmtir á Café Ro- mance. • JetBlackJoetælirvænt- anlega til sín fjölda áheyr- enda á Gauk á Stöng í kvöld. Þeir verða þar einnig annað kvöld. En eru orðnir hund- leiðir á stólabröndurum. Sveitaböll FOSTUDAGU RIN N 1 6. APRlL • Grófargil, Akureyri verður skipað dúettnum Skipað þeim, það er að segja Aðal- steini Ásþergi Sigurðssyni og Önnu Pálínu Árnadóttir, sem flytja vísnatónlist með djass- og blúsívafi. • Sjallinn, Akureyri fær þá félagana úr Jet Black Joe til að haga sér vel. I kjallaranum, verður enginn annar en Guð- mundur Rúnar Lúðvíksson.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.