Pressan - 15.04.1993, Blaðsíða 9

Pressan - 15.04.1993, Blaðsíða 9
Fimmtudagurinn 15.apríl 1993 F R E TT I R PRESSAN Endurtekin stór gjaldþrot hjá meðferðarstofnunum í rannsókn eftir grfðarlegt tap á að þurrka erlenda áfengissjúklinga BANKINN ÆTLAR AD RANNSAKA VIÐSKIPTI MEBFERDAR Á næstunni er ætlunin að ljúka skiptum á þrotabúi Með- ferðar hf. sem teldð var til gjald- þrotaskipta 14. ágúst 1991. Að sögn skiptastjórans, Sveins Sveinssonar héraðsdómslög- manns, er beðið eftir lítilsháttar upphæð sem fannst á reikningi erlendis, en að því loknu verður búinu lokað. Það blasir við að nánast eng- ar eignir eru í þrotabúi Með- ferðar hf., sem stofnað var í febrúar árið 1988 til að reka meðferðarstöð íyrir áfengis- og vímuefriasjúklinga. Frá upphafi einbeitti fyrirtækið sér að því að sinna áfengissjúklingum ffá Norðurlöndunum. Kröfur í þrotabúið eru geysi- háar. Lýstar almennar kröfur eru upp á 160 milljónir og for- gangskröfur 22 milljónir. Þessar tölur þarf reyndar að setja frarn með fyrirvara vegna þess að ekki hefur verið fyllilega útilok- að að um tvílýsingar sé að ræða. Samkvæmt heimildum PRESSUNNAR hafa komið upp hugmyndir meðal kröfu- hafa um að gjaldþrotið verði rannsakað nákvæmar en ein- föld meðferð skiptastjóra býður upp á. Óljóst er þó hver ætti að kosta slíka málsmeðferð. í sam- tali við blaðið upplýsti einn kröfuhafinn að mönnum þætti ekki einleikið hvernig til skuld- bindinga hefði verið stofiiað. Einnig finnst mönnum fram- ganga nokkurra af aðstandend- unum úti í Svíþjóð einkennileg í ljósi þeirrar stöðu sem skilin var eftir hér heima. Eru meðal ann- ars uppi grunsemdir um að há- ar útistandandi kröfur Með- ferðar hf. erlendis hafi aldrei skilað sér heim. Um getur verið að ræða nokkra tugi milljóna. Þá hefur Búnaðarbanki ís- lands falið Hróbjarti Jónat- anssyni hæstaréttarlögmanni að fara ofan í saumana á þessu máli og leita eftir möguleikum á að fýlgja kröfum bankans eftir erlendis. Forverarnir líka gjaldþrota Það var ekki ný hugmynd að nýta sérþekkingu íslendinga í áfengismeðferð til að lækna er- lenda sjúklinga. Var í því sam- bandi rætt um útflutning á ís- lensku hugviti þar sem með- ferðarfulltrúar og læknar væru íslenskir auk þess sem byggt væri á íslenskum aðferðum. Á undan Meðferð hf. komu líknarfélagið Von, Sjúkrastöðin Von hf. og dönsku félögin Von ÓlafurRagnarGrímsson Milljónirnar hans bárust til Meðferðar í þá mund sem fyrirtækið varð gjaidþrota. veritas og Von behandling. Samhliða Meðferð hf. var rekið húsfélagið Fitjar hf. sem átti húseignina Fitjar í Mosfellsbæ sem keypt var af Kristni heitn- um Finnbogasyni. Meðferð hf. greiddi 700.000 krónur fyrir það í húsaleigu á mánuði. Öll þessi félög eru gjaldþrota eða til gjaldþrotaskipta. Skipt- um á Sjúkrastöðinni Von hf. lauk 28. júní 1992 og fékkst ekk- ert upp í almennar kröfiir upp á 45 milljónir. Skiptum á Fitjum hf. lauk 7. desember síðastlið- inn og fékkst ekkert upp í al- mennar kröfur upp á 26,4 millj- ónir. íslandsbanki leysti hins vegar húseignina til sín á nauð- ungaruppboði. Fluttu sig til Svíþjóð- ar Stjórn Meðferðar hf. var skipuð þeim Bergi Guðna- syni, sem var stjórnarformað- ur, Kristjáni Omari Krist- jánssyni og Bjarna Stein- grímssyni. Auk þeirra voru meðal hluthafa þeir Grétar Haraldsson, Skúli Thorodd- sen, Brynjólfur Hauksson, Jóhannes Jónsson og Grettir Gunnlaugsson. Hlutafé var skráð 480 þúsund krónur. Það er ljóst að menn eru ekki á eitt sáttir um hvernig málum hefur lyktað. Þrír þ e s s a r a manna, Skúli, Brynjólfur og Bjarni, hafa flutt sig til Svíþjóðar og stofnað nýja stöð, Saga Svartnes, sem er um 300 km frá Stokkhólmi. Skúli stjórnaði lengst af Norður- landasamskiptunum og rak skrifstofu í Svíþjóð sem sá um að afla sjúklinga og sambanda. Heyra má á þeim sem eru eff- ir hér heima að þeir telja þre- menningana hafa svikið sig í tryggðum. Kom meðal annars fram hjá Bergi Guðnasyni að hann taldí þá ekki hafa unnið af 'heilindum fyrir Meðferð hf. al- veg síðan haustið 1990 eða í um það bil ár áður en fyrirtækið varð gjaldþrota. Sagðist Bergur telja að þeir hefðu unnið allan þann tíma að því að koma undir sig fótunum í Svíþjóð og taka um leið það verðmætasta úr rekstri Meðferðar, semsagt þekkingu og viðskiptasam- bönd. Bergur baðst undan að tjá sig að öðru leyti um málefni Meðferðar en játaði aðspurður að hann hefði tapað verulegum fiárhæðum á þessu öllu saman. I svipaðan streng tók Grettir. Þess má geta að Bergur var eig- andi Fitja ásamt þeim Bjarna óg Skúla. Fóru gjaldþrota út en hafa mikil umsvif þar Þremenningarnir sem fóru til Svíþjóðar bjuggu allir við það að vera persónulega gjaldþrota, en samkvæmt heimildum frá Svf- þjóð sér þess ekki merki í um- svifiun þeirra þar. Effir því sem komist verður næst er Saga Svartnes í einkaeigu þeirra, en þeir hefa fengið opinbera að- stoð, meðal annars frá sænsk- um þróunarsjóðum, við að koma rekstrinum af stað. Einn- ig bárust sögur af því að þeir notuðu hagnað af rekstrinum úti til að endurheimta eignir sínar hér heima. Slíkt fékkst þó ekki staðfest. Við Saga Svartnes vinna sautján íslendingar. „Ég h't svo á að þeir séu land- Fitjar í Mosfellssveit Meðferð borgaði 700.000 krónur á mánuði í húsaleigu flótta þarna úti í Sví- þjóð og þeir láta ekki einu sinni ná í sig í síma til að ræða málefni Meðferðar," sagði maður kunn- ugur rekstri Með- ferðar hér heima. Skúli sagðist ekki geta fallist á að þeir væru landflótta: „Ég hef dvalið erlendis síðan 1988 og unnið við það lengst af að senda sjúklinga til íslands. Starf mitt hér í dag er í beinu framhaldi af því, en þetta fyrirtæki teng- ist ekki Meðferð og Von á neinn hátt,“ sagði Skúli þegar náðist í hann úti í Svíþjóð. Hann sagði að þrennt hefði stuðlað að því að niðurstað- an varð sú sem raun ber vitni: Of lítið fé í fyrirtækinu í upp- hafi, fjarlægð frá markaðnum og skortur á opinberri fyrirgreiðslu. Fengu 20 milljónir frá ríkinu rétt fyrir gjaldþrotið Þessi síðasttöldu ummæli eru forvitnileg í ljósi þess að í fjár- aukalögum haustið 1991 var farið fram á 20 milljóna króna heimild á lánsfjárlögum undir liðnum „bindindisstarfsemi“. Heimildin sem þarna var sótt um var vegna framlags sem þá- verandi fjármálaráðherra, Ólaf- ur Ragnar Grímsson, hafði samþykkt í mars 1991 (skömmu fyrir kosningar) að veita Meðferð hf. Þess má geta að Ólafur Ragnar og Skúli voru flokksbræður. Þessi upphæð var greidd út í tvennu lagi og hefur seinni upphæðin borist rétt fyrir gjaldþrotið. Á því ári Skúli Thoroddsen Stjórnar nú rekstri með- ferðarheimilis í Svíþjóð. var 34 milljónum króna varið til bindindisstarfsemi. Þessi opin- bera fyrirgreiðsla vekur reyndar einnig athygli vegna þess að við gjaldþrotið skuldaði fyrirtækið mikið af opinberum gjöldum, enda fór upphæðin ekki í það að standa skil á þeim eins og þó eru fordæmi fyrir. Samkvæmt heimildum PRESSUNNAR fóru milljón- irnar 20 beint til Búnaðarbank- ans til að laga stöðu Meðferðar gagnvart honum. Meðferð var í viðskiptum þar og nema kröfur bankans í þrotabúið um 36 milljónum króna. Mikið af því er tilkomið vegna yfirdráttar í bankanum. Þess má reyndar geta að eftir því sem komist verður næst átti bankinn að standa skil á launum og launa- tengdum gjöldum en sveikst um hið síðarnefhda. Aðstandendur fyrirtækisins verja þessa fyrirgreiðslu með því að fyrirtækið hafi flutt mikla starfsemi inn í landið án fyrir- greiðslu í líkingu við það sem fiskeldi og loðdýr fengu. Sala á eignum Vonar vakti furðu Þann tíma sem Meðferð starfaði munu um 1.000 sjúk- lingar hafa komið þangað til meðferðar. Um 600 þeirra voru ffá Svíþjóð en hinir ffá Færeyj- um, Grænlandi, Noregi og Dan- mörku. Fljótlega hættu þó við- skiptin við Færeyinga, sem þótti meðferðin of dýr. Velta fyrir- tækisins þennan tíma nam um 380 milljónum en starfsmenn voru um fjörutíu. Fyrirtækið var með skrifstofur í Nuuk á Græn- landi, í Svíþjóð og Noregi. í apríl 1991 urðu blaðaskrif í DV vegna ásakana um fjármál- amisferli aðstandenda Meðferð- ar. Ásakanirnar voru settar ff am af Gylfa Guðmundssyni, sem lengi rak knattborðsstofu hér í bæ og er núna búsettur í S- Afríku. Gylfi hélt því fram að með prettum hefði húseign ver- ið höfð af sér og konu sinni. Bjarni Steingrímsson Rekur nú heimili í Svíþjóð. Ásaknirnar beindust í raun að þeim sem ráku Sjúkrastöðina Von, en þar voru þeir Bjarni og Brynjólfur eigendur ásamt Ew- ald Bemdsen, Hinrik Bernd- sen og Þóru Hallgrímsson. Eftir því sem komist varð næst höfðu Gylfi og kona hans selt þeim einbýlishúið á Bárugötu 11 út á skuldabréf útgefin af Von. Þau greiddust aldrei og töpuðu þau andvirðinu. Við skiptameðferð á Sjúkra- stöðinni Von kom ýmislegt fram sem orkaði tvímælis í bók- haldi og voru á tímabili uppi hugmyndir um að fara fram á opinbera rannsókn. Af því varð þó ekki. Eitt af því sem skipta- ráðanda fannst þar athugavert voru viðskiptin með eignir Sjúkrastöðvarinnar Vonar sem Meðferð hf. keypti. Voru gefin út þrjú skuldabréf vegna þessa, hvert að fjárhæð 1.250.000 krónur, og áttu 2.700.000 krón- ur að vera greiðsla fyrir eignir Sjúkrastöðvarinnar Vonar. Greiðsla þessi kom ekki fram sem eign í þrotabúi Vonar og ekki vitað hvað um hana varð. Sigurður Már Jónsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.