Pressan - 15.04.1993, Blaðsíða 11

Pressan - 15.04.1993, Blaðsíða 11
Fimmtudagurinn 15.apríl 1993 S T E L P U R STELPULEGIR STRAKAR PRESSAN 1 1 Thelma Guðmundsdóttir Komin á samning í Tókýó. íslensíai fyrirsœturnar Siqursœlar í j\few Yorfc Hvorki meira né minna en níu verðlaun komu í hlut ís- lensku keppendanna í svokall- aðri MAAI-íyrirsætukeppni, sem er ein virtasta keppni sinn- ar tegundar í heiminum í dag. Keppnin var haldin í New York um páskahelgina á Waldorf As- toria-hótelinu (þar sem A1 Pac- ino dansar tangó í Konuilmi). AIls kepptu þarna 600 fyrirsætur hvað- anæva úr heim inum, þar af tuttugu frá íslandi. „Þetta var besti árangur einn- ar þjóðar. Við megum vera mjög stolt af íslensku fyrirsæt- unum,“ segir Eydís Eyjólfs- dóttir, starfsmaður hjá Mód- el/mynd og íslenskum fyrirsæt- um og ein þeirra er þjálfuðu ís- lensku fyrirsæturnar fyrir keppnina úti. Hrund Teitsdóttir og Hrönn Johannsen fengu alls sautján tilboð og margir fleiri nokkur tilboð um að starfa sem fyrir- sætur úti í hinum stóra heimi. Keppnin var núna haldin í 33. sinn og þarna voru fulltrúar ffá ekki minni umboðsfyrir- tækjum en ENG Models, Pau- line, Premiére og Vilhelmina. íslensku fyrirsæturnar áttu að koma heim í gær en vegna velgengninnar seinkar heim- komunni. Elva Hrönn Eiríksdottir Komin á samning á Ítalíu. Fáir eru spámenn í sínu „föður- landi“. Þetta sannaðist enn og aftur í lítilli grein sem birtist um indversku prinsessuna Leoncie í hinu víðlesna víkutímaríti Entertainment. Þar fær nafnspjald prinsessunnar hvorki meira né minna en titilinn „Nafn- spjald mánaðarins“. Blaðinu berast víst nafhspjöld frá tónlistarfólki hvað- anæva, en í þetta sinn barst þeim eitt O U S » « 8 » » Ja> k> Lady "tVs' »*»'*'»" Wkevlv, f a-> f»T | sírvot* . Jj vrkhaíútntéKiu'Indhu, , slbtuftír*- ; » fíroetiltf*. Úöá | -ew by wöfhilwsf-) I a m\ig «“4lkd . *.*&*>&> m. >í (fx&0*istsAsf. m i Kísrr - - «*«•■■ - findodwl /«! slíkt í fyrsta sinn alla leið frá íslandi. Entertainment hefur að auki aldrei áð- ur fengið nafnspjald dans- og söng- meyjar með slíkan og þvílíkan titil, söngkonu sem hefur tekið upp plötu í Tékkóslóvakíu er ber nafnið Story From Brooklyn og hefur að geyma tit- illagið Madonna is Dead (That is the Question). Leoncie ritar að auki: „Svo virðist sem ég hafi hneykslað fslend- inga með nektardansi mínum. Kjaftaganginum ætlar aldrei að linna... Komir þú til íslands skal ég bjöða þér heim til mín í mat.“ Entertainment spyrt hvort nektardans sé inni- falinn! ICEICE LADY Entertainment fannst nafnspjaid Leoncie óendanlega fyndið; indversk prinsessa frá íslandi!!?? íslendingarnir fengu fyrstu verðlaun í svokölluðu „group- modelling“ sem byggist á tísku- sýningum, dönsum og pósum. Fllutskörpustu ljósmyndafyrir- sæturnar voru einnig frá ís- landi; þau Steindór Gíslason og Hrund Teitsdóttir. Önnur verðlaun í svokallaðri tískugöngu fengu þær Díana Bjarnadóttir og Hrönn Jo- hannsen, en hún vann Elite- keppnina fyrir tveimur árum. Þá lentu áðurnefndur Steindór og Ingvar Bj. Ingvarsson, báðir frá Akureyri, í verðlauna- sæti fyrir framkomu í auglýs- ingum. Elva Hrönn Eiríks- dóttir fékk 1.000 dollara verð- laun og er komin á samning á Ítalíu; Thelma Guðmunds- dóttir fékk 500 dollara og samning í Tókýó; Ásdís María Franklín var boðuð í viðtöl við 23 umboðsskrifstofur vestra; 19 umboðsskrifstofur vilja tala við Oddnýju Arnbjörnsdóttur; Hrund teitsdóttr Varkjörin besta Ijósmyndafyrirsætan, sem Bonni Ijósmyndari á reyndar nokkuð stór- an þátt í, því Ijósmyndamappan hennar þótti heldur gæðaleg. -kvenleg áhrif í karlatískunni IMivVKBK* PRINSCÖÖAN \kr xm xmteŒSS; IXONOE - í • ttas’ Lagskipting er lykilorðið. Skyrta yfir bol. Vestiyfir skyrtu. Jakki yfír allt saman. Klútar vafðir um háls- inn. Pottlok á hausinn. Jafnvel pils. Nett-kvenlegt! Prjónaefni eru allsráðandi og hugmyndum stolið frá ýmsum tímabilum tískunnar. Það erþví hæfíleg blanda afhippastílsjöunda áratugarins, töffara- tísku og amerískri gallabuxnatísku sem nánast hver einasti tískufrömuður lætur frá sér fyrir sumar- ið; Dolce e Gabbana, Jean Paul Gaultier, Michiko Koshino, Emporio Armani, Comme des Gargons, Paul Smith, Joseph, Nicole Fahri og Nick Cole- man. Frekar fríkað stöff. Stuttmyndadögum á Hressó lauk á skírdag. Myndbandið Athyglissýki eftir Reyni Lyngdal var valið besta myndin. Flestir eru sammála því að fr amtak eins og Stuttmyndadag- ar sé bráðnauðsynlegt til eflingar íslenskri kvilonynda- gerð. Á stuttmyndadögunum var meðal annars að finna Ara Matthíasson leikara, Júlíus Kemp og Ingibjörgu Stefáns- dóttur, Kristínu Jóhannes- dótturkvik- myndaleik- stjóra, Bryndísi Schram ffam- kvæmdastjóra kvikmyndasjóðs (nema hvað!), dótturina Kol- finnu Baldvinsdóttur ásamt Birni Jörundi Friðbjörnssyni, Sveinbjöm I. Bald- vinsson og kvik myndagerðar- mennina Jón Tryggvason, Snorra Þórisson og Guðmund Þórarinsson, umbann Þor- stein Kragh sem fær þessa dagana ekki frið fyrir tréstólum og Úlli á Gauknum brosti breitt. Þá var þar einnig borgar- stjórinn Markús Örn An- tonsson sem afhenti verð- launin fyrir bestu myndina og því má ekki gleyma að Hrafn Gunnlaugsson kom þar einnig við. f frumsýnmgarteitinu sem haldið var til heiðurs Stutta frakkanum og stutta fótbrotna Frakkanum á Tveimur vinum voru fjölmargir, þar á . meðal þau Þor- t valdur Bjarni og lAndrea úr /Todmobile, Helgi /Björns úr SSSól, ''antípartíkarlarnir "Þorsteinn Kragh um- bi og Páll Rósinkranz söngvari úr Jet Black Joe, Bergþór Páls- ^son söngvari, þó ekki . grand tenore, l Björn Jörundur lFriðbjörnsson log Daníel Ágúst rHaraldsson úr rNýdanskri, Þorgeir Ólafsson listfræðing- ur, Þorsteinn J. hjálmsson þetta þetta líf, Birgir Bíl- velta pizzaumbi og Lilja Pálmadóttir úr' Hagkaupsveldinu, flestallt leikaragengið úr Stuttum frakka og margir, margir, margir fleiri.... H-moll-messan eftir Bach hreyfir jafnan mikið við fólki. Var hún flutt í Langholtskirkju á föstudaginn langa. Það var mál manna að kórinn, undir stjórn Jóns^ Stefánssonar,i hefði aldrei náðí ' betur saman. Þessi má geta að líklega* verður sama messa^ flutt í London að ári7 Fullt var út úr dyrum en það sást þó til Friðriks Erlingssonar og hans unnustu, Markúsar Arnar Antonssonar, Bryndísar Schram og Jóns Baldvins Hanni- balssonar, séra Sigurðar Hauks Guðjónssonar, Guð- rúnar Gunnarsdóttur svan- fríðar og Valgeirs Skagfjörð leikstjóra, Guðmundar Pét- urssonar gítarista, Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings og Þórunnar Sveinbjamardótt- ur starfsmanns Kvennalista. Þess má geta að séra Flóki Kristinsson labbaði að vanda út úr kirkjunni þegar lófatakið hófst, enda mun það fara fyrir brjóstið á hon- um að klappað sé í kirkju. ... að sundlaugarnar verði opn- ar til miðnættis í sumar það er ekkert betra en fara seint að kveldi í sund. ... fleiri frídögum það er svo þægilegt að liggja með lappirnar upp í loft. ... Stuttum írakka ætli maður sér að komast í smá- stuð Líkamsrækt. Hreyfing. Ið. Með hækkandi sól er ekki hægt að þver- fóta fyrir trimmurum, enda afar góð hreyfmg þótt slíkt hopp geti orsakað of mikið álag fyrir hin ve- sælu hné. Og margir nota einmitt sem skothelda afsökun. Eftir nýj- ■fe ustu uppgötvunina í Bandaríkj- SB unum verða slíkar afsakanir að- ■ eins hjómeitt. Hxerloper-farartæki ■ eru nýjasta uppgötvunin vestra. I Það eru einhvers konar trimm- ■ skór, sem minna þó meira á skíða- WM skó á bogum. f raun réttri trimmar Hf rnaður ekki beinlínis á þeirn heldur H líkjast hreyfmgarnar nieira hoppi, H líkt og væri maður staddur á tungl- H inu. Maður svífur. Álagið á hnén H verður nánast ekkert! Og þótt maður stækki um 10 sentímetra á H þessum skóm eru þeir stöðugir, Hf hraðvirkir og hreint frábærir M „trimmskór“. Hlaupin verða helm- m ingi hraðari, álagið á hnén er nán- ast ekkert. Exerloper eru inni, svo 0 framarlega sem fslendingar fá að njóta þeirra hið fyrsta, enda yrðu i svífandi trimmarar á götum hin skemmtilegasta sýn. „Persónulega skil ég ekki þetta áfengisbann umpáskana. Sjálfurer' ég til dœmis aldrei jji guði en þegar ég er edrú. Þá upplifi éghelvíti. Hinsvegar' líður mér stundum guðdóm- lega þegar ég erfullur. Einu sinni sá ég meira að segja guð áfylleríi og talaði við hann — þótt kunningi minn haldi þvífram að éghafi talað við Ijósastaur. Hann birtist bara þannig, al- veg eins oghann birtist í runn anum forðum.“ Fáránleikinn. Fáránlegar ráðn- ingar. Fáránleg sambönd. Fárán- legir skemmtistaðir. Fáránlegt fólk. Og síðast en ekki síst fáránlegir brandarar og svolítið klúrir, á borð við þennan: Bóndi átti í stökustu vandræðum með hana nokkurn sem var svo graður að allar hæn- urnar í búrinu lágu máttlausar all- an sólarhringinn; offullnægðar. Þessu undi bóndinn ekki og ákvað að bjarga hænunum frá hananum og setti hann hjá kindunum. Graði haninn setti ekki aðra dýrategund fyrir sig heldur tók einnig í allar kindurnar. Með sömu afleiðing- um. Bóndinn gat með engu móti látið þetta viðgangast og ákvað því að setja hanann einan í griðingu. Næsta dag, þegar bóndinn fer að vitja hanans, liggur hann hreyfing- arlaus innan girðingarinnar og horfir upp í Ioft. Yfir honum sveima hrægammar. Bóndanum bregður í brún því hann heldur að graði haninn sé dauður: hann hleypur að hon- um og kallar til hans. Þá heyrist í hananum; U s s s , píkur.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.