Pressan - 12.08.1993, Qupperneq 2
FYRST OG FREMST
2 PRESSAN
Fimmtudagurinn 12. ágúst 1993
LEÓ LðVE. Kvartaði yfir lögreglustjóraembættinu vegna lokunar Rósenberg-
kjallarans. GflUKUR JÖRUNDSSON. Umboðsmaður fllþingis telur óheimilt að
loka nema skilyrði til rekstrar hafi breyst.
Hollustuvernd
tók sér vald í
heimildaleysi
I vikunni ómerktu úrskurðar-
nefnd um hollustuhætti og
heilbrigðiseftirlit úrskurð
Hollustuverndar ríkisins þess
eínis að Aðalheiði Jónsdótt-
ur, kleinusölukonu hér í
Reykjavík, væri skylt að sækja
um leyfi heilbrigðisneíhdar til
heimabaksturs. Var þetta allt
hið flóknasta mál og voru
áhöld um hvort menn þyrftu
jaíhvel hvort tveggja, próf úr
hússtjórnarskóla og lagapróf
til að ná þræði málsins. Þykir
nú mörgum vera farið að
syrta í álinn hjá þeim opin-
beru stofnunum sem tekið
hafa sér vaid til að ákvarða um
atvinnustarfsemi fólks án þess
að hafa beinlínis lagastoð til
þess. Má í þessu sambandi
benda á mál sem kom upp
fyrr í sumar er lögreglustjóra-
embættið ákvað að loka
Rósenbergkjallaranum, þekkt-
um skemmtistað hér í borg,
sökum þess að of margir
hefðu verið innandyra. Hefur
það viðgengist til fjölda ára að
skemmtistaðir væru settir í
straff þegar slíkt hefur komið
upp. Leó Löve, lögfræðingur
rekstraraðila skemmtistaðar-
ins, skrifaði bréf til dóms-
málaráðherra sem yfirmanns
lögreglustjóraembættisins og
benti á að umboðsmaður Al-
þingis, Gaukur Jörundsson,
hefði á sínum tíma sent ffá sér
álit þess efnis að embætti lög-
reglustjóra væri ekki heimilt
að beita slíkum refsiaðgerðum
nema skilyrði til rekstrar
hefðu breyst. Var það eins og
við manninn mælt að ráðu-
neytið afturkallaði ákvörðun
lögreglustjóraembættisins um
að loka ætti skemmtistaðnum
og viðurkenndi þar með að
aðgerðir lögreglustjóraemb-
ættisins stæðust ekki lög...
Fjármálastjórinn
beitti júdóbragði
á bæjarstjérann
Fræg er orðin sagan af því
þegar bæjarstjórinn á Isafirði,
Smári Haraldsson, lenti í úti-
stöðum við forseta bæjar-
stjómar, Einar Garðar Hjart-
arson, í fyrra. Rimmunni lauk
sem kunnugt er með því að
bæjarstjórinn sparkaði í höfuð
forsetans, sem lýsti því síðar
yfir í blaðaviðtali að hann liti
út eins og fílamaðurinn. Á
dögunum lét bæjarstjórinn
aftur að sér kveða, en að þessu
sinni var það hann sem sat
eftir með sárt ennið. Haldinn
var fiindur á ísafirði með for-
ráðamönnum hafnamála og
að honum loknum upphófst
mikill gleðskapur í Tungu-
skógi skammt fyrir utan bæ-
inn, þar sem er sumarbústað-
aland ísfirðinga. Þegar gam-
anið stóð sem hæst kastaðist
skyndilega í kekki með bæjar-
stjóranum og Þóri Sveinssyni,
fjármálastjóra Ísaíjarðarkaup-
staðar. Smári var ekki að tví-
nóna við hlutina frekar en
fyrri daginn og gekk í skrokk á
Þóri. Sá brá hins vegar skjótt
við, enda þjálfaður í júdó, og
kastaði bæjarstjóranum aftur
fyrir sig. Svo illa vildi hins veg-
ar til að hann lenti með höf-
uðið á steini svo stórsá á hon-
um og duldist því engum
vestra hvað þeim köppunum
fórámilli...
Símnotendur
greiða
maraþonsímtöl
viögerðarmanna
Sem kunnugt er hefur Póstur
& sími miklu starfsliði á að
skipa til að vinna að viðgerð-
armálum út um allt land. Þeg-
ar bilanir verða, sem gerist
daglega, þarf að senda hópa á
staðinn. Til að fara yfir bilun-
ina fara viðgerðarmenn að
símakössum sem dreift er út
um allt og innihalda á bilinu
400 til 500 símanúmer. Unnið
er að viðgerð í kringum þessa
kassa. Oft á tíðum fylgir við-
gerðunum mikið af símtöl-
um. Viðgerðarmenn þurfa að
hringja í höfuðstöðvar og
mæla línuna og geta þessi
símtöl tekið allt upp í 30 til 45
mínútur. Það vita hins vegar
ekki allir að það eru notendur
símans sem þurfa að borga
fyrir símtölin. Þegar símnot-
endur ætla svo að nota
símann sinn og lenda inni á
línunni þá finna þeir þar fyrir
iðinn starfsmann Ólafs Tóm-
assonar símamálastjóra. Það
myndu renna tvær grímur á
viðkomandi ef þeir vissu að
Okkur hefur borist til eyrna alveg dagsönn saga
af ungri norðlenskri mær sem á síöasta ári hélt ut-
an til Bandarikjanna sem skiptinemi. Mærin dvaldi
tilskilinn tíma í litlum smábæ í ótilgreindu fylki í
Bandaríkjunum og undi sér þar hið besta. Þegar
hún átti að halda heim til íslands kom hins vegar í
Ijós að hún var tilneydd að eyða einni nótt í New
York áður en hún kæmist áfram til Keflavíkur. For-
eldrum stúlkunnar leist ekki meira en svo á þessa
tilhögun að þau ákváöu að panta hótelherbergi á
Waldorf Astoria, einu dýrasta og fínasta hóteli New
York, þessa nótt sem dóttirin átti að dvelja í borg-
inni skelfilegu. Þegar stúlkan kom á hótelið tékk-
aði hún sig að sjálfsögðu inn og var síðan afhentur
lykill að herbergi og bent á að taka lyftuna. Þegar
lyftudymar opnuðust blöstu við stúlkunni tveir háir
og þrekvaxnir svertingjar og sá þriðji, sem var ögn
minni aö burðum, ásamt hundi einum. Stúlkunni
leist ekki á blikuna, en sá sitt vænna og steig inn í
lyftuna með þessum ógurlegu mönnum. Hún var
rétt búin að gera eins lítið úr sér og hún gat í einu
horni lyftunnar þegar sá minnsti í hópnum, greini-
lega foringi þeirra, segir skyndilega „sit". Stúlkunni
brá meira en lítið og settist jafnskjótt á lyftugólfið.
Maðurinn rak þá upp þennan roknahlátur og gerði
stúlkan sér þá grein fýrir því að hann hefði auðvit-
að verið að tala við hundinn. Maðurinn var ennþá
hlæjandi þegar hún fór út úr lyftunni á átjándu
hæð.
Morguninn eftir er bankað á herbergi þeirrar
norðlensku. Þegar hún opnar kemur þjónn inn
með morgunverðarvagn og blómvönd. Hann hlust-
ar ekki á mótmæli stúlkunnar sem segist ekki
neitt hafa pantað og hverfur á braut. Stúlkan ætlar
að fara að taka til viö morgunmatinn þegar hún
tekur eftir því að vendinum fylgir kort. Hún tekur
það og les á það. Á kortinu stendur: „Thank you
for the laugh ofmy life. Eddie Murphy.
þeir þyrftu sjálfir að borga...
Hvers vegna
kiósa þeir ekki á
SUS-þing?
Formannsslagurinn í Sam-
bandi ungra sjálfstæðismanna
(SUS) er orðinn ærið hat-
rammur, sem reyndar má
telja reglulega uppákomu,
enda mikið í húfi þar eð for-
mannsstaðan er að öllu
óbreyttu ávísun á frekari
frama innan Sjálfstæðisflokks-
ins. Að þessu sinni kljást
stuðningsmenn Jónasar Fr.
Jónssonar héraðsdómslög-
manns og Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar, núverandi for-
manns. Mest er deilt um
hvernig valið á 144 fulltrúum
Heimdallar fór fram og þar
saka stuðningsmenn Guð-
laugs Kjartan Magnússon
formann og aðra í stjórn
Heimdallar um ofríki, fyrir að
hunsa virka félagsmenn sem
styðja Guðlaug. Utanaðkom-
andi finnst deilan í besta falli
skondin uppákoma, en það
hefur vakið athygli margra á
hvem hátt menn gerast þing-
fulltrúar á landsþingi SUS.
Lýðræðið er ekki meira en svo
að menn eru valdir handa-
hófskennt af útvöldum hópi
manna, nokkuð sem óhjá-
kvæmilega kallar á deildar
meiningar. Stuttbuxnadeild-
inni virðist ekki hafa komið til
hugar að viðhafa lýðræðislega
kosningu...
Svavar Egilsson
með 8,4 milljónir
á mánuði________________
Um þessar mundir er mikið
fjallað um tekjur manna út frá
útsvarinu í skattskrám. Tekju-
hæstu menn koma þar út með
hátt í tvær milljónir á mánuði.
Við rákumst á tölur hjá nafhi
þekkts einstaklings, tölur sem
vekja furðu og helst að megi
ætla að einhver hjá skattinum
sé að stríða viðkomandi.
Svavar Egilsson var gerður
upp sem gjaldþrota fyrr á
þessu ári, en eins og menn
muna stundaði hann veitinga-
rekstur og hótel- og ferða-
skrifstofurekstur. Hann var
persónulega gerður upp
eignalaus gagnvart 140 millj-
óna króna kröfum. Skýrsla
Brynjólfs Kjartanssonar, bú-
stjóra Veraldar, sýndi m.a. að
eignir höfðu verið oftaldar
með talnaleik og að rekstur-
inn hefði einkennst af skipu-
lagsleysi og bókhaldsóreiðu.
Skatturinn lagði engan eigna-
skatt á Svavar, en aftur á móti
var lagður á hann 32,7 millj-
óna króna tekjuskattur og 6,7
milljóna króna útsvar. Vænt-
anlega hefur Svavar engu
framtali skilað og því um
áætlun að ræða, því útsvar
sem þetta samsvarar því að
mánaðartekjur Svavars í fyrra
hafi verið 8,4 milljónir króna.
Líkast til hafa starfsmenn
skattsins bara verið að leika
sér og um leið knýja fram
kæru frá Svavari...
íslandsflua gaf
ekki úl farpega-
lista_____________
Flóttatilraun Donalds Feeney
og Jóns Gests Ólafssonar um
síðustu helgi var sérkennileg
fyrir margra hluta sakir. Sér-
staklega hlýtur að teljast und-
arlegt að Feeney skyldi komast
með flugvél til Vestmannaeyja
athugasemdalaust af hálfu Is-
landsflugs. Islandsflug mun
hafa látið það ógert að gefa út
farseðla fyrir tvímenningana
og ekki mun heldur hafa legið
fyrir farþegalisti, sem þó er
ótvíræð lagaskylda í öllu flugi
með farþega. Yfirvöld hljóta
að hafa áhuga á skýringum...
SMÁRI HARALDSSON. Enn er bæjarstjórinn í slagsmálum: Nú varð hann undir í slag við fiármálastjóra ísafjarðar. ÓLflFUR TÓMASSON. Símnotendur borga fyrir símnotkun viðgerðarmanna. GUÐLAUG-
UR ÞÓR ÞÓRÐARSON. Stuðningsmenn hans kvarta sáran yfir vali stjómar Heimdallar á fulltrúum á SUS-þing. JÓNflS FR. JÓNSSON. Stuðningsmenn hans í Heimdalli völdu þingfulltrúa eftir afstöðu
þeirra. Því var ekki kosið? SVAVAR EGILSSON. Stríðnir skattheimtumenn lögðu á Svavar útsvar sem benti til 8,4 milljóna króna mánaðartekna. DONflLD FEENEY. Komst alla leið til Vestmannaeyja
með Islandsflugi, sem gaf hvorki út farseðil né farþegalista.
UMMÆLI VIKUNNAR
„Bryndís Schram er barn sinnar
þjóðar og síns tíma, sem að öllu
jöfnu tekur létt ú yfirsjónum og
telur vinargreiða ekki til af-
brota. “
Oddur Ólafsson Tímaritstjóri.
Hœtt’a berja’na!
„Ég stefni að því að verða betri eiginmaður.“
Andrí Marteinsson fótbottaengill.
Œe/ma oy S/otw í/fffurassic
„Það er meoolíkindum ao risaeðlumar tvær, ASl og
VSl, skuli ekki hafa áhuga á mikilvægustu hagsmun-
um umbjóðenda sinna — landbúnaðarmálum.“
Guðmundur Ólafsson steinaldartiagfræðingur.
Kona, líttu þér nær!
„Asíukonur hugsa fyrst og ffernst um að borga
heimilisreikninga sína en ekki að mæta á
skemmtistaði.“
Leoncie, indverski nektardansarínn.
Margur heldur mig sig
„Blóðskömm er eitt af því sem fólk gerir í hita
leiks.“
Már Jónsson pervert.
mStim í eiýin atujal
„Siðferði fer versnandi.“
Wemer Rasmusson lyfiakóngur.
Hinn nafnlausi Moqqi hótar ritskoð-
un
„Það væri illt í efni fyrir launpenna eins og Garra og Dagfara að
þurfa að sæta því að mannorðsmorð þeirra framin í skjóli nafn-
leyndar sættu viðurlögum — ströngum viðurlögum.“
Agnes Bragadóttir, launapenni Styrmis.