Pressan - 12.08.1993, Side 34

Pressan - 12.08.1993, Side 34
34 PRBSSAN SKILABOÐ Fimmtudagurinn 12. ágúst 1993 Karlmennska knattspyrnunnar Knattspyrna er merkileg list- grein sem seint verður ofrnetin. Sé hægt að tala um reynsluheim kvenna má telja öruggt að stór hluti af reynsluheimi karla tengist fót- boltanum. Eins og allir vita eru karlmenn ekki tilfinningaverur — fyrr en kemur að knattspyrnunni. Þá er leyfilegt að öskra, æpa, hlæja, gráta, elska, hata, faðma, kyssa, knúsa, sparka í náungann og hrækja á dómarann. 1 sorginni öðl- ast menn samkennd með náungan- um og við sigur verða fagnaðarlæt- in ógurleg, eins og sást best þegar Eyjólfur Sverrisson handleggs- brotnaði við það að fagna Þýska- landsmeistaratitlinum með Stuttg- art. Þetta er strákaíþrótt sem konur fá engan aðgang að. Strákarnir svitna saman, pissa hver á annan í sturtu og fá loksins að njóta sín sem alvöru karkembur, tala mikið um kynlíf og illa um konur. En það þarf ekki endilega að leggja það á sig að hlaupa sjálfur á eftir tuðrunni. Ekki er síðra að sitja heima og horfa á ensku og ítölsku knattspyrnuna með bjór og snakk, prumpa og öskra áfram KR og útaf með dóm- arann. Það eru heilagar stundir og frúnni best að halda sig á mottunni. Enn betra er þó að fara sjálfur á leikinn og láta þar öllum illum lát- um. Það er líka margsannað mál að allir karlmenn eru sérfræðingar í knattspyrnu og hafa miklu meira vit á hlutunum en ieikmennirnir, þjálfarinn og dómarfnn. Ég hefði sko... af hverju gaf hann ekki... Ef illa fer er alltaf hægt að grípa til full- gjldra afsakana í tonnavís. Dómar- inn var vonlaus, sólin skein í aug- un, grasið var of blautt eða of þurrt, varabúningarnir eru óhappabún- ingar og meiðsli hrjáðu okkar menn. Svo hefur knattspyrnan líka uppeldishlutverki að gegna. Faðir og sonur sameinast fyrir saman sjónvarpið, á vellinum og styðja sín lið, Arsenal, KR og AC Milan. I KRINGLUNNI I tilefni af sex ára afmæli Kriiiglunnar verður Tolli með sýningu á 14 nýjum málverkum á göngugötum Kringlunnar. Þessi málverk málaði hann sérstaklega til að sýna í Kringlumii og þar njöta þau sín vel, stór og mikilfengleg í miklu rými. Viðskiptavinir Kringlmmar geta nú skoðað listaverk Tolla um leið og þeir versla í fallegu umhverfi Kringlunnar. Sýningin opnar á afmæhs- daginn 13. ágúst og stendur til 31. ágúst. La AFMLI 13. ágúst fögnum við afmæU Kringlunnar. TónUstarfóIk á vegum Japis og Skífunnar, leikhópurinn Perlan og dansarar frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru skemmta afmæUsgestmn. Listamenn framtíðarinnar fá að spreyta sig með Crayola Utuin í Litla Ustahoriúnu sem er á fyrstu hæð í göngugötunni. Sitthvað fleira verður gert á afmæUsdaginn. Við bjóðum ykkur öU hjartanlega velkomin í Krmgluna. KRINGMN Fi*á og með 94. ágiist verðiii* opið til kl. 16 á laugardögiiin

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.