Pressan - 12.08.1993, Blaðsíða 14

Pressan - 12.08.1993, Blaðsíða 14
LATINN FJUKA MEÐ FALKAORÐUNA 14 PRESSAN Fimmtudagurinn 12. ágúst 1993 Paul Zukofsky sagt upp störfum sem stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar æskunnar: „JUt sem viö höfnm gert var bá rangT „Það er staðreynd að það er alltaf bölvaður yfirgangur í manninum og eintómt vesen í kringum hann,“ segir fyrrver- andi framkvæmdastjóri Sin- fóníuhljómsveitar æskunnar (SÆ) og á þar við stjómanda hennar, Paul Zukofsky, sem sagt var upp störfum 12. júlí síðastliðinn. Fram til þess dags hafði Zukofsky verið svotil einráður um starf sveitarinn- ar. Þegar ný stjórn tók til starfa í haust vildi hún að þar yrði breyting á og tók til við að endurskoðá reglur SÆ og gera drög að ráðningarsamn- ingi við Zukofsky. Fram að því höíðu allar ákvarðanir um starfíð verið munnlegar og innsiglaðar með handsali. Engum þeim sem PRESSAN ræddi við þótti óeðlilegt að gerður yrði samningur, enda hljómsveitin orðin að miklu fyrirtæki sem veltir háum fjár- hæðum (í kringum sjö millj- ónum króna á ári). Stjórnin gerði hins vegar þau mistök, að áliti Erlendar Sveinssonar, fyrrum fulltrúa foreldra í nýju stjórninni, að ræða ekki við Zukofsky um breytingarnar eða um samninginn fyrr en hann var borinn undir hann. Sjálfur segist Zukofsky ekki hafa æskt annars en halda áfram að starfa við óbreytt skilyrði. Eitt af ágreiningsatriðunum um samninginn varðaði lengd hans, en í fyrsta samnings- uppkasti stjómarinnar var að- eins gert ráð fýrir eins og hálfs árs samningi. I rauninni var þar verið að gera annan samn- ing um atriði sem búið var að innsigla með handsali, sem var flutningur á Parsifal eftir Richard Wagner í samvinnu við Óperusmiðjuna í Borgar- leikhúsinu í vetur og frum- flutningur á Sögusinfóníu Jóns Leifs á Listahátíð í Reykjavík 1994. Skömmu áð- ur en upp úr slitnaði var talað um fimm ár, en í millitíðinni hafði Zukofsky talað um tíu ára samning og „jafnvel ævi- ráðningu,“ að sögn Halldórs Haraldssonar, fulltrúa Tón- listarskólans í Reykjavík, auk þess sem hann vildi ekki sam- þykkja að samningnum yrði rift þótt fjárveitingar brygðust. HÆTTIR AÐ TALA SAMAN Nokkuð löngu áður en þessar sættir náðust voru stjórnarmeðlimir og Zukofsky hættir að geta talað saman og fóru allar viðræður fram í gegnum þriðja aðila, Björn Bjamason alþingismann, vin Zukofskys. Lengd samnings- tímans var þá ekki lengur helsta deiluatriðið, heldur snerist málið orðið um völd: Ef stjórnin samþykkti að Zu- kofsky réði því hvenær nám- skeið væru haldin, hvort og hvenær fenginn yrði gesta- stjórnandi og hvaða verk yrðu valin til flutnings, þýddi það að ekki væri þörf fyrir stjóm- ina. Og það gat hún ekki sam- HALLDÓR HARALDSSON. Segir að stjórnin hafi verið öll af vilja gerð til að ná JÓN LEIFS. Til stóð að SÆ frumflytti Sögusinfóníu hans á Listahátíð 1994. þykkt. Tímasetning námskeiðanna virðist reyndar ekki vera vandamál í augum annarra en stjórnarmeðlima og skóla- stjóra tónlistarskólanna, eftir því sem PRESSAN kemst næst. Nemendur sem rætt var við sögðu að það hefði yfirleitt hentað öllum best að halda námskeiðin í jóla- og páskaffí- um og hið sama segir Zukof- sky. Hann hefur reynt að halda námskeið bæði í júní og snemma á haustin, en segist þá hafa átt í erfiðleikum með að fá nemendur. Atriðin sem valda hvað mestum ágreiningi eru hver eigi að ráða verkefhavali sveit- arinnar og hvort fá eigi gesta- stjórnanda. Halldór Haralds- son telur það heilbrigt fyrir hljómsveit sem er komin á þetta stig að fá skoðanir frá öðrum, þ.e.a.s. gestastjórn- anda: „Sú hugmynd er ekki hugsuð sem vantraust á Zu- kofsky. Okkur finnst það að- eins heilbrigt og eðlilegt frá listrænu sjónarmiði. Margir tónlistarkennarar hafa látið þessa skoðun í ljós.“ Sigurjón Halldórsson, ldarinettleikari og fýrrum SÆ-meðlimur, tek- ur undir hugmyndina um gestastjórnanda og segist ekki geta séð að sá myndi skaða sveitina. En Paul Zukofsky vill ekki ræða þetta atriði við stjórnina, enda verður ekki annað séð en hann skilji tillög- una sem vantraustsyfirlýsingu. „Hljómsveitarstarfið hefur gengið vel undir minni stjórn, svo ef þeir treysta mér ekki lengur hvers vegna segja þeir það þá ekki?“ PAUL ZUKOFSKY. Hefur náð undraverðum árangri með SÆ. Hann vildi fá að starfa við sömu skilyrði og áður. FÆLIR NEIVJ- ENDUR FRA Sjálfur er Zu- kofsky þekktur fyrir annað en að liggja á skoðun- um sínum ef honum mislíkar. „Þetta er ekki fagleg gagnrýni heldur fer hann í manngreinar- álit,“ segir fýrrum meðlimur í SÆ, sem „lenti illa í Zúkka“. „Hann hagar sér eins og svín og hefur komist upp með það allt of lengi. Hann leyfir til dæmis aldrei mistök, sem mér finnst ekki eðlilegt þegar svona ungir krakkar eiga í hlut. En það verður að játa að hann nær ótrúlegum árangri með þessum týranísku aðferð- um sínum,“ segir þessi sami hljóðfæraleikari. Framkvæmdastjórinn fýrr- verandi segir að Zukofsky hafi með aðferðum sínum fælt nemendur ffá hljómsveitinni og sumir hafi hreinlega gefist upp við að mæta á námskeið- in. Erlendur Sveinsson er þeirrar skoðunar að sögusagn- ir af þessu tagi hafi haff áhrif á ákvarðanir stjórnarinnar, og bæði Siguijón Halldórsson og Einar Jónsson, básúnuleikari í SÆ, eru á því að þessar sögur séu ekki með öllu sannar. „Paul leyfir sér að rjúka upp og skamma menn á æfingum. Sumir hafa tekið því illa, en sjálfúm fannst mér alltaf gott að vinna með honum. Sumir hafa jú haldið því fram að hann gerði þetta að ástæðu- lausu, en ég tel það vera mis- skilning," segir Siguijón. Einar man heldur ekki eftir því að Zukofsky hafi tekið nemendur fýrir. „Ég man eftir fagottleik- ara sem hljóp grátandi af æf- ingu, en það er orðið langt síðan og ég man ekki eftir öðru slíku tilfelli. Þetta var orðin samheldin hljómsveit og náinn kunningsskapur meðal krakkanna, sem mörg koma ár eftir ár. Við mættum þama öll til þess að hitta Paul, enda vomm við að gera með honum stórkostlega hluti.“ Ekki einu sinni þeir sem „lent hafa í Zúkka“ geta neitað því: „Við höfum fengið að spila verk sem Sinfóníuhljómsveit Islands hefur ekki lagt í og tónleikarnir voru alltaf stór- kostleg stund.“ AFBjíÝÐISEMI STJORNAR ÁKVORÐ- UNUM Þegar borin eru undir Zu- kofsky ummæli þeirra sem segja að erfitt sé að vinna með honum svarar hann hiklaust: „Ef þeim finnst það þá er það vegna þess að ég er hreinskil- inn og vægðarlaus. Ég held fast við skoðanir mínar og ef fólk segir að ég miðli hvorki málum né skipti um skoðun eftir því hvernig pólitískir vindar blása, þá er ég sekur. Mér var kennt að vera skoð- unum mínum trúr og á með- an enginn hefur betri tillögur skipti ég ekkert um skoðun,“ segir Paul Zukofsky. Hann telur ákvarðanir stjórnarinnar byggðar á af- brýðisemi: BJÖRN BJARNASON. Þriðji aðilinn sem hélt samningaviðræðum gangandi eftir að Zukofsky og stjómin voru hætt að talast við. Zukofsky handhafi fálkaorðunnar Paul Zukofsky kom fyrst hingaö til lands áriö 1979 á vegum Tónlistarskóla Reykja- víkur til aö halda námskeiö, sem síöan hafa veriö kennd viö hann. í framhaldi af námskeiöunum var Sinfóníuhljómsveit æskunnar stofnuö áriö 1985 og hélt Zu- kofsky þá áfram aö koma hingað til lands tvisvar til þrisvar á ári til aö æfa hljóm- sveitina fyrir tónleika. Tónleikar SÆ hafa vakið veröskuldaða athygli vegna þess ár- angurs sem hljómsveitin hefur náö, þrátt fyrir erfitt og áræöiö verkefnaval. Þar má nefha sjöttu, sjöundu og níundu sinfóníur Mahlers og aöra og sjöttu sinfóníur Bru- ckners. Forseti íslands sá ástæöu til aö veita Paul Zukofsky fálkaorðuna fyrir vel unnin störf meö SÆ og veitti hann henni viötöku 10. janúar 1990. „Við tökum krakka sem [skólastjórarnir] segja að geti ekki spilað og látum þá spila. Núna eru þeir búnir að taka Parsifal út af verkefnaskránni vegna þess að þeir töldu það of nútímalegt. Þetta gera þeir, þó svo fjárveiting til hljóm- sveitarinnar hafi fengist til þessa verks. Það skiptir ekki máli þótt okkur hafi tekist sambærilegir hlutir áður. I rauninni þýðir þetta að allt starf okkar til þessa hafi verið rangt.“ „Zukofsky er móðgaður út í okkur, en það er aðallega vegna misskilnings. Við reyndum eins og við gát- um að ná þess- um samningum og erum með hreina samvisku hvað það varð- ar,“ segir Halldór Haraldsson. „Stjórnin vildi eindregið ná samningum.“ En þið viljið róða ákveðnum hlutum, eins og verkefnavali? „Verkefnaval Zukofskys hefur verið mjög spennandi og djarft, en við sjáum fyrir okkur að það mætti koma með annað með, eins og Mozart og Beethoven.“ En væri SÆ þá ekki að leika sömu verk og Sinfóníuhljóm- sveit íslands? „Hugmyndin er sú að SÆ sé vettvangur fýrir nemendur til að spila í stórri sinfóníu- hljómsveit sem tekst á við meiriháttar hljómsveitarverk, sinfóníur og fleira." Gunnar Gunnarsson, full- trúi Samtaka skólastjóra tón- listarskólanna í stjórninni, bætir því við að „Sinfóníu- hljómsveitÆskunnar [sé] ekki Zukofsky“. Hann er ekki hræddur um að ekki takist að finna nýjan stjómanda, þó svo flestir virðist eiga erfitt með að sjá starfið fýrir sér án Zukof- skys. Margrét Elísabet Olafsdóttir

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.