Pressan - 12.08.1993, Síða 20

Pressan - 12.08.1993, Síða 20
20 PRESSAN Fimmtudagurinn 12. ágúst 1993 Páll Magnússon er sjónvarpsstjóri á Stöó 2. Hann mótaöi þá stefriu sem fylgt hefur veriö á fréttastofu Stöðvarinnar, en með árásargjam- ari vinnubrögðum blés hann nýju lífí í fréttafíutning í íslensku sjón- varpi. Á skömmum tíma varð hann afar áberandi persóna og lenti oftlega á milli tannanna á fólki. Slétt og felld framkoma hans hefur þó vafalaust fíeytt honum langt og hann á ekki marga óvini þrátt fyr- ir að hafa farið ómjúkum höndum um suma. Hann berst nú minna á en áður og vinnur meira á bak við tjöldin. Það breytir því ekki að hann hefur sem fyrr skoðanir á málum. Islensk sjónvarpsstöð — ekki myndbanda- leiga Hvaða hlutverki gegnir fjöl- miðill eins og Stöð 2? „Við skilgreinum okkur í grundvallaratriðum sem af- þreyingar- og upplýsingamiðil og leggjum höfuðáherslu á þetta tvennt, bæði á Bylgjunni og Stöð 2. Við rekum öfluga fréttastofu fyrir báða miðlana og leitumst við að veita fólki afþreyingu og hvíld ffá amstri dagsins." Sendingar frá gervihnöttum, sem þið voruð að fá leyfi fyrir, er enn meiri útvíkkun á þessu hlutverki. „Með EES-samningunum þótti sýnt að samkeppni í formi útsendinga frá gervi- hnattastöðvum yrði leyfð hér- lendis, án þýðingarskyldunn- ~ ar. Við fórum út í þetta fyrst og ffemst vegna þess að allt ffá byrjun var ljóst að enginn annar en Stöð 2 gæti boðið upp á slíkar útsendingar á jafnhagkvæman hátt fyrir neytandann. Við erum að vissu leyti að kalla samkeppni yfir okkur sjálfa en benda má á þá röksemd að ef á annað borð er hægt að hafa tekjur af endurvarpi erlends sjónvarps- efnis, hvar eru þær þá betur komnar en hjá íslenskri sjón- varpsstöð sem getur notað þær til að búa til íslenskt sjón- varpsefni?“ Stöð 2 er varla frœg fyrir að beita sér mjögfyrir intilendri dagskrárgerð. „f upphafi var staðið að henni meira af kappi en forsjá og varð fyrirtækið nánast gjaldþrota um áramót 1989-1990, meðal annars vegna þessa. Menn ffeistuðust á stundum til að taka skrefið á undan sjálfúm sér og ofmetn- aðurinn sem einkenndi rekst- urinn í upphafi varð til þess að útgjöldin uxu hraðar en tekj- umar. Við þá endurreisn sem félagið hefur farið í gegnum síðan hefur þótt nauðsynlegt að-skera verulega niður, eink- anlega í innlendri dagskrár- gerð, því íslenskt efni er um 15-20 sinnum dýrara en er- lent efni og skilar ákaflega lid- um tekjum. Við höfum þó aukið það jafnt og þétt og framleiðum nú um 300 klukkustundir af íslensku efni á ári, fyrir utan fféttir. Dýrari dagskrárgerð, svo sem leikrit, höfúm við svo einfaldlega ekki bolmagn til að fara út í enn sem komið er.“ Utn Stöð 2 hefur verið sagt að þar fari eitt stórt mynd- !„ bandaleigufyrirtœki. „Þessi gamli frasi keppi- nautanna hefur aldrei átt við, ef litið er á málið af sanngirni. Við verjum miklum pening- um í að vera íslensk sjón- varpsstöð en ekki einhver myndbandaleiga.“ Vœri pláss fyrir fleiri íslensk- ar sjónvarpsstöðvar? „Meðan ráðamenn hafa hvorki kjark né pólitískt þrek til að rýma til fyrir einkaffam- takinu á þessum vettvangi, með því að hætta að standa sjálfir í sjónvarpsrekstri, hef ég enga trú á að markaðurinn leyfi fleiri sjónvarpsstöðvar. Við hræðumst ekki sam- keppnina og fögnum þeim sem reyna fyrir sér í þessari grein. Ég mundi hins vegar ekki ráðleggja neinum að fara út í rekstur á hefðbundinni sjónvarpsstöð við þau skilyrði sem eru fyrir hendi í dag. En það er mitt að halda, annarra að reyna.“ Fréttastofa í stjórnar- andstööu Fréttastofa Stöðvar 2 og Bylgjunnar hefur oft verið gagnrýnd fyrir að menn fari þar offari í fréttaflutningi. Á þessi gagnrýni sér stoð? „Ég lít svo á að hlutlaus, sterk fréttastofa eigi að vera stöðugt í stjórnarandstöðu, í þeim skilningi að bæði emb- ættismönnum og stjórnmála- mönnum á að vera ljóst að einhver er að fylgjast með þeim. Harka okkar í frétta- mennsku hefur ef til vill geng- ið skrefi lengra en þeirra hjá Rikissjónvarpinu, en þar fyrir er ekki sanngjarnt að segja að fréttastofan sé of óvægin. Fréttamennska er línudans og það eina sem fféttamenn geta gert er að leitast stöðugt við að halda sig á línunni.“ Nú standa miklir áhrifa- og eignamenn að íslenska út- varpsfélaginu. Heldur frétta- stofan hlutleysi sínu? „Stjórnarmenn hafa aldrei beitt þrýstingi varðandi al- mennan fréttaflutning. Rit- stjórnarmálefni fféttastofúnn- ar eru nánast aldrei rædd á stjómarfúndum og því starfar hún með öllu sjálfstætt. Hins vegar koma einstakir stjómar- menn auðvitað að máli við mig sem einstaklingar, hafa sínar skoðanir og koma þeim á framfæri við mig eins og hundmð annarra íslendinga í hverjum mánuði.“ Almenningur kýs oftlega að líkja frétta- og blaðamönnum við hrægamma og úthrópar þá fyrir óvönduð vitinubrögð. „Mér er til efs að þetta sé al- menningsálitið. Stjórnmála- menn eiga það hins vegar til að segja að fjölmiðlar séu óvandaðir auk þess sem þeir telja fféttamenn elta sig og of- sækja. Að mínu viti er þetta einfaldlega rangt. Það eina sem kann að há íslenskum fjölmiðlum er sú staðreynd að þeir eru smáir, sem gerir sér- hæfingu einstakra frétta- manna erfiða. Afleiðingin er sú að fféttamennskan virðist á stundum verða yfirborðs- kennd en almennt er ég þó þeirrar skoðunar að íslenskir fjölmiðlar standi sig vel.“ Siðanefnd blaðamanna hef- ur komið við sögu fréttastof- unnar. Hvernig hefur hún að þínu mati tekið á málum? „Mér hefur ekki þótt ástæða til að kveinka mér yfír ein- stökum niðurstöðum hennar en hefúr fúndist bera mjög á óvönduðum vinnubrögðum. Hún hefur fellt úrskurði í málum án þess að kanna þau til hlítar og á stundum ekki einu sinni talað við þá frétta- menn sem hlut hafa átt að máli. Siðanefndin er hins veg- ar nauðsynlegur vettvangur fyrir það fólk sem telur sig hafa verið misrétti beitt í sam- skiptum sínum við fjölmiðla." Ykkur hefur verið borið á brýn að stela fréttum. „Það er merki um heimótt- arskap og smásálarhátt þegar menn treysta sér ekki til að vitna í aðra fjölmiðla. Engin ástæða er þó til að geta annars miðils sé hann eingöngu upp- spretta fféttar sem hefur verið betur unnin og hefur fengið nýjan flöt. Stefna mín var ávallt sú að vitna til annarra miðla, ef aðrar heimildir voru ekki fyrir hendi, og ég veit ekki til þess að stefnubreyting hafi orðið með nýjum ffétta- stjóra. Þetta verður hins vegar tilefni til þess að spurst verður fýrir um málið.“ Morgunblaöiö á lítiö skylt viö lifandi frétta- miðil Fjölmiðlar eru í eðli sínu afar misjafnir og sumir fjalla mikið um ákveðin mál meðan aðrir þegja þunnu hljóði. „Kjötmál- ið“ svokallaða endurspeglar þetta ágœtlega og Agnesi Bragadóttur, blaðamanni Morgunblaðsins, þótti ástœða til að gera athugasemd við fréttaflutning Stöðvar 2. Hver eru viðbrögðþín? „Morgunblaðið gegnir nú- orðið ákaflega skrítnu hlut- verki í íjölmiðlun á íslandi og virðist fyrst og fremst vera upptrénuð stofnun sem á lítið skylt við lifandi fréttamiðil. Varðandi þetta ákveðna mál ættu stjórnendur blaðsins að hafa mun meiri áhyggjur af því, af hverju aldrei var sagt efnislega ffá málinu, en hverj- um höndum aðrir fjölmiðlar fóru um það. Morgunblaðið kaus að líta með öllu framhjá þessu máli, utan að birta sam- hengislausar yfirlýsingar því tengdar og þrjár skopmyndir. Það er full ástæða til að velta þvi fyrir sér hvort taka ber al- varlega fjölmiðil sem sinnir ekki fréttaflutningi betur en þetta. Agnesi Bragadóttur fannst sér greinilega renna blóðið til skyldunnar að verja vini sína, ráherrahjónin, en al- mennt hef ég þá skoðun að vinskapur áhrifamanna innan Morgunblaðsins við ákveðna einstaklinga í samfélaginu sé að verða smánarblettur á blaðinu sjálfu og geri það að enn verri og óáreiðanlegri fféttamiðli en það var fyrir.“ Þetta er þó útbreiddur miðill og oft það semfólk byggir skoð- anirsínará. „Áður var þetta blað hluti af lífi flestra íslendinga en það hefur nú breyst og æ oftar læt- ur fólk í Ijós þá skoðun sína að það finnur sig ekki knúið til að lesa blaðið. Áhyggjur stjómenda blaðsins ættu fyrst og fremst að snúa að þeirri staðreynd að sú kynslóð, sem nú er á aldrinum 35-45 ára, er sú síðasta sem telur sig knúna til að lesa Morgunblaðið af gömlum vana. Auk þess er Morgunblaðið afar íhaldssamt batterí og jafnvel forstokkaðra í afturhaldssemi sinni en til dæmis fréttastofa Ríkissjón- varpsins, sem hefúr gert mun meira af því að hreyfa sig í takt við tímann.“ Utanríkisráðherrahjónin fara tneð burðarhlutverk í „kjötmálinu“, en þetta er ekki í fyrsta sinn sem þau lenda undir hnífnutn hjá ykkur og skemmst er að minnast afmœlisveislu Bryndísar. Erþetta tilviljun? „Utanríkisráðherrahjónin eru afar áberandi í íslensku þjóðlífi og hljóta mikið pláss í fjölmiðlum, sem kemur ekki síst til af því að þau eru afar skemmtilegt og heillandi fólk. Þar af leiðandi er skiljanlegt að tekið sé eftir því sem út af kann að bera hjá þeim, hversu smávægilegt sem það er. Hefðu þau leyst „kjötmálið“ með því að viðurkenna stund- ardómgreindarleysi strax í upphafi og hefði „vinargreiði“ Agnesar ekki komið til hefði eftirmálinn orðið allt annar og minni. Málið sjálft var nefni- lega ekki stórvægilegt, í besta falli broslegt, og flestir íslend- ingar þekkja sig í þeirra stöðu,“________________ Telma L. Tómasson

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.