Pressan


Pressan - 12.08.1993, Qupperneq 12

Pressan - 12.08.1993, Qupperneq 12
S K OÐ A N I R 12 PRESSAN Fimmtudagurinn 12. ágúst !993 PRESSAN Útgefandi Blað hf. Ritstjóri Karl Th. Birgisson Ritstjórnarfulltrúi Sigurður Már Jónsson Markaðsstjóri Siguröur I. Ómarsson Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Nýbýlavegi 14 - 16, sími 64 30 80 Faxnúmer: Ritstjóm 64 30 89, skrifstofa 64 3190, auglýsingar 64 30 76 Eftir lokun skiptiborðs: Ritstjóm 64 30 85, dreifing 64 30 86. tæknideild 64 30 87 Áskriftargjald 798 kr. á mánuði ef greitt er meö VISA/EURO en 855 kr. á mánuöi annars. PRESSAN kostar 260 krónur T lausasölu Á að leysa óréttlætí með meiraóréttlæti? Það er grundvaUaratriði í réttarkerfinu að menn teljast sak- lausir þar til sekt þeirra er sönnuð. Þetta er svo fastneglt að breyting þar á myndi líklega þýða skerðingu mannréttinda. Þrátt fyrir þetta vaknar öðru hvoru, hjá þeim hópi fólks sem tekið hefur að sér hagsmunagæslu fyrir fórnarlömb nauðgara, umræða um að snúa þessu við. Það vita allir, sem með þessum málum hafa fylgst, að meðferð nauðgunarmála er ekki eins og hún á að vera. Hið fjölfatlaða saksóknaraemb- ætti virðist ekki fært um að sinna þessum málum ffemur en öðrum. Á meðan þeir hundelta einhveija skógffæðinga sem tekið hafa minnisblöðin sín með heim geta þeir ekki fengið lausn á nema tuttugasta hverju nauðgunarmáli. Rannsókn málanna virðist síðan vera í megnum ólestri hjá lögreglunni. Allt er þetta til þess fallið að veikja trú fólks á réttíæti í þjóðfé- laginu. En það þýðir ekki að gefast upp fýrir vandamálinu og leysa óréttlæti með meira óréttlæti. Jafnvel þó að réttlát reiði brenni með fólki þýðir ekld að missa sjónar á homsteinum réttarkerfisins. Það er ekki að ástæðulausu sem vestrænt rétt- arfar hefur snúist um þessa grundvallarhugsun, að menn séu saklausir uns sekt þeirra er sönnuð. Opnum sjúkrahúsin fyrir bosnískum bömum Einhvern daginn hlýtur okkur íslendingum að blöskra eig- ið aðgerðarleysi í málefnum fyrrum Júgóslavíu. Daglega horfum við á og lesum um hörmungamar, sem oft á tíðum verða æði persónulegar, eins og við höfum nú upplifað með Irmu litlu. Það er því orðið spurning hvort við séum búin að tapa eðlilegum tilfinningum gagnvart vandamálinu. Allt ffá tilkomu sjónvarpsins höfum við fylgst með börnum úti í heimi deyja á skjánum hjá okkur. Kannski við hryllum okkur lítillega en að öðm leyti snertir það okkur ekki. Nú stöndum við hins vegar ffammi fyrir því að nálægt okkur fer fram miskunnarlaust blóðbað sem á sér hvorki upphaf né endi. Við íslendingar höfum lítið haft til málanna að leggja. Þó hafa borist fúrðulegar fféttir af herskáum sam- þykktum íslenskra fúlltrúa, sem engan botn virðist vera hægt að fá í. Væri okkur ekki nær að sýna mannúðlegra ffum- kvæði? Við höfum gert það áður þegar fullveldi nýfrjálsra þjóða er í húfi. Leggjum ffam tilboð um að við viljum gera skyldu okkar gagnvart særðum og veikum bömum ffá átaka- svæðunum í Bosníu. Fréttir hafa borist um að þrjú böm, sem hægt væri að bjarga, deyi daglega. Björgum þessum bömum. Sýnum ffumkvæði og reynum að leysa hina alþjóðlegu um- ræðu úr viðjum ákvörðunarleysisins. Sýnum þeim hvað þetta gæti verið einfalt. Vilji er ailt sem þarf. BLAÐAMENN Bergljót Friðriksdóttir, Friörik Þór Guömundsson, Guörún Kristjánsdóttir, Gunnar Haraldsson, Jim Smart Ijósmyndari, Kristján Þór Árnason myndvinnslumaöur, Margrét Elísabet Ólafsdóttir, Pálmi Jónasson, Sigríður H. Gunnarsdóttir prófarkalesari, Snorri Ægisson útlitshönnuöur, Steinunn Halldórsdóttir, Telma L. Tómasson. PENNAR Stjórnmál: Árni Páll Árnason, Einar Karl Haraldsson, Guðmundur Einarsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Hrafn Jökulsson, Hreinn Loftsson, Mörður Árnason, Ólafur Hannibalsson, Óli Björn Kárason, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Össur Skarphéöinsson. Listir: Einar Örn Benediktsson, mannlíf, Guömundur Ólafsson, kvikmyndir, Gunnar Árnason, myndlist, Gunnar Lárus Hjálmarsson popp, Kolbrún Bergþórsdóttir bókmenntir, Martin Regal \eiklist. Teiknlngar: Ingólfur Margeirsson, Kristján ÞórÁrnason, Snorri Ægisson, Einar Ben. AUGLÝSINGAR: Ásdís Petra Kristjánsdóttir, Pétur Ormslev. Setning og umbrot: PRESSAN Rlmuvinnsla, plötugerð og prentun: ODDI Oddur þingvörður á þing SUS „Davíð Oddsson hóftil dæmis sittpólit- íska trúboð á kassafyrir utan Glaumbœ. Þegar nátthrafnar og stássmeyjar héldu út í nóttina stóð sem sagt hinn ungi Dav- íð (bláedrú) og héltþrumandi rœður um einkavœðingu, frjálsa samkeppni og kanasjónvarpið. “ Ég hef, lesendur góðir, verið þingvörður í 38 ár. Ég hef fylgst með þingmönnunum koma og fara. í öll þessi ár hef ég staðið baksviðs þegar nýir leikarar eru hylltir en aðrir púaðir niður. Ég hef verið lengur á Alþingi íslendinga en nokkur þingmaður sem þar situr núna. Ég hef á 38 ára ferli helgað ellefu forsætisráðherr- um mína lítilfjörlegu starfs- krafta. Nú sé ég allt í einu að þessi pistill er farinn að snúast ískyggilega mikið um sjálfan mig. En þessi inngangsorð eru nauðsynleg til að ykkur skiljist að reynslan hefur gert mig fjárglöggan í pólitík. Ég þekki pólitíkus þegar ég sé hann, eins og þar stendur. Davíð Oddsson hóf til dæmis sitt pólitíska trúboð á kassa fýrir utan Glaumbæ. Þegar nátthrafnar og stáss- meyjar héldu út í nóttina stóð sem sagt hinn ungi Davíð (bláedrú) og hélt þrumandi ræður um einkavæðingu, frjálsa samkeppni og kana- sjónvarpið. Þegar ég heyrði fyrst af þessum unga hug- sjónamanni næturinnar — þá vissi ég að hann ætti eftir að ná langt, þótt hann væri sproksettur af fýlliröftum og lauslætisdrósum. Ég bara ein- hvernveginn vissi að einn góðan veðurdag yrði hann húsbóndi á mínu Alþingis- heimili. Og um daginn, þegar ég sat í mesta grandaleysi á kaffistof- unni, varð ég fýrir akkúrat svona hugljómun. Ég vissi að ég var að horfa á framtíðar- leiðtoga. Þetta byrjaði með söng í anddyri þingsins. Þetta var þýski þjóðsöngurinn. Vel að merkja: Textinn sem notaður var ýýrir 1945. Svo stormuðu þeir inn á kaffistofuna, nokkrir ungir vatnsgreiddir menn í jakka- fötum og gulum rykfrökkum. Mér hlýnaði um hjartarætur: Þetta voru meðlimir Davíðs- æskunnar í Sjálfstæðisfloklcn- um. í fararbroddi gekk reffilegur ungur þéttholda maður. Hann leit út eins og forsætis- ráðherra og hagaði sér eins og forsætisráðherra. Hann var aðeins í’ðí. „Við erum að koma hingað að hitta Davíð,“ tilkynnti hann, settist hjá mér og greip handfýlli af vínarbrauðum sem hann tróð samstundis upp í sig. Svo hélt hann áffam að syngja. Horst Wessel, ef mig misminnir ekki. „Æi, Birgir, ekki þetta lag. Ekki hérna,“ sagði vatns- greiddur piltur sem var ná- kvæm ljóshærð eftirlíking Þorsteins Pálssonar. „Haltu kjafti, Jónas!“ þrum- aði sá sem kallaður var Birgir um leið og hann gaf Þórdísi bendingu um að koma með fleiri vínarbrauð. Hann var greinilega fæddur til þess að stjóma. Hélt áffam: „Jónasín- us minn, ef þú ert með múð- ur, þá verður þú ekki formað- ur Sambands ungra sjálfstæð- ismanna. Ertu með Öeyginn? Hvað þykistu vita um pólitík? Þekkir ekki einu sinni Horst Wessel.“ Hann fór aftur að syngja. Ljóshærði pilturinn settist hjá mér: „Ég hef fullan hug á því að stórefla Samband ungra sjálfstæðismanna. Ég tel að nauðsynlegt sé að efla lýðræð- ið innan SUS og virkja fleiri til starfa. Mér væri mikil ánægja að gera þig að félaga í okkar breiðu samtökum. Hvert er nafnið? I ffamhaldi af því vil ég sýna þér í verki að ég vil að sem flestir taki þátt í starfinu, og þess vegna ætla ég að biðja þig um að verða fulltrúi á þingi okkar um helgina." Ég ræskti mig. Sagði svo: „Ég er nú að vísu kominn yfir sextugt.“ Jónas ljómaði: „Bara betra. Þá væri í raun mjög eðlilegt að þú fengir þrefaldan atkvæðis- rétt. Hefurðu nokkuð séð hann Davíð Oddsson?“ Birgir svaraði fýrir mig: „Nei, Dabbi er að gera loft- árásir á Serbíu. Og sjávarút- vegsráðuneytið." Til að undir- strika þetta skaut Birgir á Þór- dísi með ímyndaðri vélbyssu. Hún faldi sig í eldhúsinu. Svo beindi hann fingrinum að dökkhærðum ungum manni með þykkar varir. Birgir hleypti af og sagði: „Gulli, þú átt ekki séns! Þú verður aldrei formaður SUS. Þótt Davíð styðji þig og þótt þið hafið stolið ffá okkur Heimdalli. Veistu akkuru? Vegna þess, elsku karlinn minn, að hann Jónas litli er búinn að tryggja sér stuðning sunddeildar Heimdallar. Og svo er hann Jónas líka ljóshærður! Ég er viss um að það er eitthvað óhreint blóðið í þér, Gulli minn. Þú ættir bara að pilla þig upp í sveit affur. Svo vil ég að við styttum enn skamm- stöfun SUS. Þetta U er alger óþarfi." Máli sínu til áréttingar sletti Birgir nokkrum sinnum úr vélbyssunni sinni: „Rattatattatatt!“ Og byrjaði enn á þýska þjóðsöngnum. Gömlu útgáfúnni. Oddur þingvöröur er hugarfös- tur dálkahöfunda. STJÓRNMÁL Þegar útgerðarmaður varð að sœgreifa Dugnaður, elja og útsjónar- semi eru hæfileikar sem öðru fremur prýddu og prýða þá sem skarað hafa fram úr í ís- lensku viðskiptalífi, allt frá Thor Jensen, Haraldi Böðv- arssyni og Einari Guðfinns- syni til Pálma Jónssonar, Pét- urs Björnssonar og Þorvaldar Guðmundssonar. Það eru at- hafhamenn af þessu tagi sem hafa leitt ísland inn í þjóðfélag velmegunar og það þrátt fýrir ótal hindranir, sem fýrst og ffemst var og er komið fýrir af stjómmálamönnum ofstjóm- ar og óstjórnar. Matthías Jo- hannessen ritstjóri hefúr kall- að þessa menn og aðra jafn- ingja þeirra athafnaskáld og Valtýr Stefánsson, lærimeist- ari íslenskra blaðamanna, not- aði svipað orðalag. En sömu hæfileikarnir og gert hafa einstaklinga að eignamönnum, og um leið bætt kjör okkar hinna, hafa al- ið af sér öfúnd, óvild og tor- tryggni, enda fýlgir öfúnd orð- stír góðum. Stundum mætti ætla að öfúndsýki væri Islend- ingum í blóð borin og er hún mörgum stjórnmálamönn- um, og raunar heilu stjórn- málaflokkunum, lífsnauðsyn- leg. Þeir eiga mikið undir því að sá ffæjum öfúndar og tor- tryggni með innantómum slagorðum. Slíkir stjórnmála- menn tala hátt og mikið um meint skattsvik fýrirtækja og strengja þess heit að ná söku- dólgunum, loka fýrirtækjum með valdi, — fara í krossferð gegn atvinnurekstri. Þegar kemur að því styrkja undir- stöður og efla íslenskt at- vinnulíf verður minna úr verki. Og þegar slíkir stjórn- málamenn eru spurðir um spillingu í stjórnmálum vísa þeir því á bug með þjósti og benda á þá sem eiga og reka fýrirtæki. Jón Baldvin Hanni- balsson utanríkisráðherra seg- „Vandi íslensks atvinnulífs er ekki skattsvik heldur ofmikil skattheimta, miðstýrt stjórnkerfi fjármála og ómarkviss stefnu- mótun í atvinnumálum. “ kominn tími til að fjölmiðlar standi við bakið á fyrirtækj- um, án þess að hætta að veita þeim nauðsynlegt aðhald, eins og fjölmiðlamenn segja á há- tíðarstundum? Væri ekki rétt að blaðamenn gengju í skrokk á stjórnmálamönnum þegar þeir ræða fjálglega um skatt- svik og spillingu í atvinnu- rekstri og spyrðu þá raun- verulegra spurninga um stefnu þeirra í atvinnumálum, hvernig þeir ætli að tryggja rekstur fýrirtækja og þar með lífsafkomu almennings? Og væri ekki rétt, næst þegar blaðamenn skrifa og tala um útgerð, að þeir notuðu orðið útgerðarmenn í stað sægreifa? Þá geta þeir kannski affur ein- hvern tíma á góðri stund rætt um athafnaskáldin sem um allt land, í sjávarútvegi, land- búnaði, iðnaði, verslun og þjónustu, lögðu og eru enn í dag að leggja grunninn að vel- ferð okkar Islendinga. Þegar haff er í huga að at- vinnurekstur á fáa formæl- endur er undarlegt að enn skuli vera til einstakíingar sem eru reiðubúnir að hætta öllu sínu í rekstur fýrirtækja. Við hin njótum verka þeirra og líklega eiga þeir eftir að koma í veg fýrir að þessi þjóð sökkvi fýrir fullt og allt í hafið.___ Höfundur er hagfræðingur. ÓU BJÖRN KÁRASON ir í nýlegu viðtali við Heims- mynd að spillingin í íslensku þjóðfélagi sé „í fjármálalífi, viðskiptum og atvinnu- rekstri“. Allir atvinnurekend- ur eru settir undir sama hatt, en stjórnmálamenn, sem eiga allt sitt undir því að geta deilt út embættum, opinberum fjármunum og verkefnum til þeirra sem þykja þóknanlegir, eru sagðir óspilitir. Þannig ala stjórnmálamenn á öfund og tortryggni al- mennings í garð íslenskra fýr- irtækja og því miður taka fjöl- miðlar undir og skemmta skrattanum. Nú er ekki lengur talað um athafúaskáld í sjáv- arútvegi heldur sægreifa, líkt og Morgunblaðið gerði fýrir nokkrum misserum í stórri fýrirsögn á fféttaskýringu um hugsanlega sameiningu út- gerðarfýrirtækja í Vestmanna- eyjum. Aðrir fjölmiðlar hafa etið orðskrípið upp effir blað- inu og kaupsýslumaðurinn hefúr lotið í lægra haldi fýrir braskaranum. Þannig mætti lengi telja. Vandi íslensks atvinnulífs er ekki skattsvik heldur of mikil skattheimta, miðstýrt stjórn- kerfi fjármála og ómarkviss stefnumótun í atvinnumál- um. Vandi launafólks er ekki auðsöfnun fárra útgerðar- manna heldur vanmáttug fýr- irtæki sem geta ekki greitt hærri laun, innflutningshöff og skattheimtumaðurinn sem tekur stærstan hluta laun- anna, beint eða óbeint. En sameiginlegur vandi okkar allra er öfundin sem fóðruð er af nokkrum stjórnmála- og fjölmiðlamönnum. Er ekki

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.