Pressan - 12.08.1993, Síða 13

Pressan - 12.08.1993, Síða 13
S K O Ð A N I R Fimmtudagurinn 12. ágúst 1993 PRESSAN 13 DAS KAPITAL STJÓRNMÁL Fiskur var það, heillin Ekki benda d mig... „Flest fyrirtœki eiga sína helstu óvini í samkeppnisaðilum. Hjá Sölumiðstöðinni erþví öfugtfarið. Hœtturnar er helst að finna hjá aðildarfrystihúsum. “ Islendingar urðu fyrir barð- inu á heimskreppunni miklu. Þeir voru matvælaframleið- endur og matvælaútflytjendur þá eins og nú. Útflutningsvar- an var saltfiskur, en þegar aðr- ar þjóðir réttu úr kútnum, þá hélt kreppan áfram hér á landi, því borgarastyrjöld á Spáni lokaði hefðbundnum saltfiskmörkuðum. Ríkisvaldið framlengdi áhrif kreppunnar með innflutn- ingshömlum og hertum vemdaraðgerðum fyrir iðnað. Jafnffamt var gripið til ýmiss konar miðstýringaráforma eins og stofnunar Fiskimála- nefndar, sem átti að annast fisksölu og markaðsöflun. Saltfiskurinn var þó undan- skilinn. Ekki voru framleið- endur fiskafurða alls kostar ánægðir með störf nefndar- innar. Samvinnumenn og fram- sóknarpostular höfðu tögl og hagldir í nefndinni, en samt fór það svo að þau kaupfélög, sem önnuðust fiskvinnslu, fólu Sambandinu sölumál sín. En í ársbyrjun 1942 komu aðrir ffamleiðendur saman tii fundar í Reykjavík og stofn- uðu Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna. Sölumiðstöðin er merkilegt fýrirtæki. Hugmyndafræðin að baki þess er samvinnuhug- sjónin, stofnsamþykktir eru verk sósíaldemókratans Guð- mundar I. Guðmundssonar og fyrirtækinu hefur ávallt verið stjórnað af sjálfstæðis- mönnum. Tilgangur Sölumiðstöðvar- innar var markaðsöflun og að selja allar ffamleiðsluvörur fé- lagsmanna og í upphafi hafði hver framleiðandi, stór eða smár, aðeins eitt atkvæði. Þóknun Sölumiðstöðvarinnar var ákveðin 1 prósent, en Sölumiðstöðinni var jafn- ffamt ædað að kaupa umbúð- ir og aðrar nauðsynjar fýrir fé- lagsmenn og var álagning ákveðin 15 prósent. Sölu- þóknun Fiskimálanefndar var 3 prósent og það þótti Einari Sigurðssyni of mikið. Nú er svo komið að Sölumiðstöðin tekur 3 prósenta sölulaun og hætt er við að einhverjum þyki það mikið. Einar Sigurðsson og félagar gerðu sér strax í upphafi ljósa grein fýrir því, að fiskur í frystigeymslum var einskis virði. Og það gildir enn í dag að fiskur í geymslum hjá Jóa- kim Pálssyni og Einari heitn- um Steindórssyni í Hnífsdal er einslds virði. Til að fiskurinn yrði að verðmætum yrði að vinna markaði og það yrðu samtök framleiðenda að gera. Strax á árinu 1944 stofnaði Sölumiðstöðin sölufýrirtæld í Bandaríkjunum, Coldwater Seafood, og þar vann Jón Gunnarsson verkfræðingur ómetanlegt brautryðjanda- starf. Hafa þeir sem síðar komu unnið í sama anda. Sölumiðstöðin og dóttur- fýrirtæki hennar hafa styrkt stöðu sína á mörkuðum með því að byggja upp fiskrétta- verksmiðjur. Verksmiðjurnar hafa gert sölufyrirtækjum kleift að vinna úr hráefni ann- ars staðar frá þegar litið berst að frá íslandi. Það vill nefhilega oft gleym- ast í umræðunni um íslenskar auðlindir, að Bandaríkja- markaður fýrir frystan fisk er mikilvægasta auðlind sem ís- lendingar eiga. Markaðurinn gerir fiskstofnana að nýtan- legri auðlind. Þeir sem stjórna markaðsstarfseminni eru þyngdar sinnar virði í gulli. Sölumiðstöðin hefur haft forgöngu um stofnun ýmissa fýrirtækja til að þjóna aðildar- frystihúsum. Spurning er til hvers Sölumiðstöðin rekur í dag skipafélagið Jökla hf. Hver maður á að gera það sem hann kann best. En hverjar eru helstu hætt- ur sem steðja að Sölumiðstöð- inni? Flest fyrirtæki eiga sína helstu óvini í samkeppnisaðil- um. Hjá Sölumiðstöðinni er því öfugt farið. Hætturnar er helst að finna hjá aðildarffysti- húsum. I hópi þeirra eru mestu eiginhagsmunaseggir þessa lands. Þeir sjá sjaldnast lengra en nef þeirra nær. Framleiðsla og sala á frystum fiski er ekld torgsala, þar sem dugar að hafa skammtíma- hagsmuni í fyrirrúmi. Það hefur viljað brenna við, að aðildarfrystihús hafi selt framhjá Sölumiðstöðinni vegna skammtímahagnaðar. Þá hafa úrsagnir úr Sölumið- stöðinni rýrt eigið fé fýrirtæk- isins. Eitt sinn gekk það svo langt að forystumaðurinn sjálfúr, Einar Sigurðsson, dró sín frystihús úr Sölumiðstöð- inni. Hann sá þó að sér. Nú er svo komið að 3 pró- senta sölulaun duga varla til að halda rekstri Sölumið- stöðvarinnar gangandi. Tekju- afgangur myndast fyrst og fremst af vöxtum og arði af sjóðum og dótturfýrirtækjum. Slíkt er varasamt. íslenskar bókmenntir eru heldur snautlegar í umfjöllun sinni um frystan fisk. Alþýðu- skáldið Bubbi Morthens orti þó og söng: ... þúsund þorskar á fœribandi stöðugt þokast þeir nœr, á skrifstofunni arðrœninginn situr Fólki hefur orðið tíðrætt um agaleysið í íslensku þjóð- félagi undanfarið. Jafnvel Morgunblaðið gerði kæru- leysisþjóðfélagið, sem það kaus að kalla svo, að umræðu- efhi í leiðara blaðsins nýverið. Þá höfðu menn þar á bæ hnotið um athugasemd Ás- geirs Sigurvinssonar knatt- spyrnukappa eitthvað á þá leið að íslendingum væri tamt að lofa upp í ermina á sér en sjaldan væri staðið við stóru orðin. íslendinga skortir greinilega sjálfsaga. Það er hvimleiður galli á þjóðarsál- inni að gaspra og lofa en kannast svo ekki við neitt þeg- ar spurt er um árangur og efndir. Þá er þægilegra að benda á einhvern annan. Hún tekur á sig skrýtilegar myndir þessi árátta að bera ekki ábyrgð á neinu. Strok fanga af Litla-Hrauni, sem hýsir hættulegustu glæpa- menn þjóðarinnar, vakti mikla athygli á dögunum. Mennirnir höfðu sagað í sundur rimla fýrir glugga og stokkið út. Rétt eins og band- ítarnir í Andrésar andar-blöð- unum hefðu gert. Eftir mikla leit, sem enginn vissi hver bar ábyrgð á, fundust kónarnir og dúsa nú í einangrun í Síðu- múla. Ekki hafði langur tími liðið þegar aftur var strokið af Litla- Hrauni og nú komust mennirnir næstum úr landi. Hafi fólk húmor fýrir strok- um sem þessum eru þau auð- vitað grátbrosleg. Annað mál og alvarlegra er svo ástand fangelsismála á íslandi og við- brögð yfirmanna við burt- hlaupum fanganna. Haraldur Johannessen fangelsismála- stjóri hleypti brúnum í sjón- varpsviðtali eftir fýrsta strokið og gaf í skyn að starfsmenn Hraunsins hefðu ef til vill eldd staðið sig sem skyldi í starfi. Datt manninum aldrei í hug að hann hefði ef til vill ekki staðið sig sem skyldi? Ekki af viðbrögðum að dæma. Eftir seinna strokið var fangelsis- málastjóri einfaldlega orðlaus. Það kemur á daginn að fangaverðir á Litla-Hrauni hafa margsinnis bent á raktar útgönguleiðir fýrir fanga og óskað effir úrbótum, meðal annars í formi mannheldra girðinga. Það er ekki við starfsmenn að sakast ef fangar sleppa af Hrauninu, heldur telst það afrek í sjálfu sér að halda mönnum föngnum í þvílíkum húsakynnum. Þetta vita yfirmenn fangavarðanna á Litla-Hrauni. Og yfirmann- anna er ábyrgðin en ekki hverra? Spyr sú sem eldd veit. Annað nýlegt dæmi um „ekki benda á mig“-hugsun- arhátt landans (þó ekki líkt því eins alvarlegt og hið fýrra) er kjötpokamál utanríkisráð- herrahjónanna. Menn hafa sagt af sér af minna tilefni í út- löndum, þar sem til eru leik- reglur í stjórnmálum, sem byggjast á sjálfsvirðingu og heiðri viðkomandi. Frú utan- ríkisráðherra er hins vegar mest í mun að benda á að hún eigi ekld steikina. Það skiptir ekki noltkru máli, eins og réttilega hefur verið bent á. Kjötið var í fórum utanríkis- ráðherrahjónanna þegar gengið var í gegnurn græna hliðið í tollinum og við það situr. Viðbrögð fjölmiðla við kjötsmyglinu eru reyndar efni í sérstúdíu sem rúmast ekki hér. Eftir stendur að ábyrgðin hvílir sjaldnast á öxlum þeirra sem eiga hana. Gildir einu hvort þjóðin hefúr kosið við- komandi til starfans eða lög- gjafinn valið hann. Ábyrgð- inni má alltaf velta yfir á ein- hverja aðra. Höfundur er stjórnmálafrædingur. „Það er hvimleiður galli á þjóðarsálinni að gaspra og lofa en kannast svo ekki við neittþegar spurt er um árangur og efnd- ir. Þá er þœgilegra að benda á einhvern annan. “ FJÖLMIÐLAR Dœma fjölmiðlar menn? Nýlega barst ritstjórn PRESSUNNAR bréf frá ein- staklingi sem hafði verið tek- inn til umfjöllunar hér vegna mjög alvarlegra afbrota. Þótti honum hlutskipti sitt í lífinu erfitt eftir að hafa mátt þola umfjöllun um sín mál og tal- aði gjarnan í bréfinu um að hann hefði verið „dæmdur“ af blaðinu. Það var eins og verknaðurinn sjálfur hefði vikið fýrir umræðunni í hug- skoti þessa einstaklings. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég heyri slík rök. Jafnvel kollegar í stéttinni hafa haldið þessu fram. Fyrir rúmu ári gerði Agnes Bragadóttir það að umtalsefni í Morgunblað- inu að PRESSAN hefði sagt frá smákrimma með áberandi hætti og taldi að með þessu hefði honum verið gert óldeift að snúa aftur til samfélagsins eftir að hafa þolað fangelsis- vist. Um leið sagðist hún telja rétt að nafngreina og birta mynd af kynferðisglæpa- mönnum til að vara við þeim og um leið auka á refsingu þeirra, ef ég skil hana rétt. Eins og Agnes stillir dæm- inu upp virðist hún telja að blaðamenn eigi að sitja inni á skrifstofum sínum og ákveða þyngd refsingar eftir eðli glæpsins. Með öðrum orðum setja sig í spor dómarans. Fimm ára fangelsi jafngildi fimm dálka mynd og fýrir- sögn! Auðvitað komast blaða- menn strax í ógöngur ef þeir leyfa sér að hugsa svona. Enda þótt ég ætli ekki að gera lítið úr þeim valkostum sem blaðamenn -glíma við þegar kemur að því að velja umfjöll- unarefni þá er hlutverk þeirra fýrst og fremst að taka mál til umfjöllunar á sem sannastan og réttastan máta. Það er síð- an lesenda að vega það og meta sem birtist. Þeir skilja það væntanlega að kynferðis- glæpur gagnvart litlu barni er alvarlegri hlutur en smávægi- legt fjársvikamál. Lesendur þurfa varla skýrari skilaboð um það en eigin dómgreind. Ef blað misbýður lesendum sínum þá hafa þeir hina einu sönnu aðferð til að koma skoðun sinni á ffamfæri; þeir hætta að kaupa blaðið. Nýlega féll úrskurður Siða- nefndar Blaðamannafélags Is- lands vegna tímaritsgreinar í Mannlífi. Þótt ég telji að dóm- greindin hafi brugðist þeim Mannlífsmönnum við fram- setningu greinarinnar á ég erf- itt með að skilja niðurstöðu siðanefndar. Af orðalagi siða- nefndar; „að maður teljist sak- laus þar til sekt hans hefur verið sönnuð“ og „dómsnið- urstöðu í máli þar sem fjöl- miðlar hafa ekki dómsvald", má ráða að hún telji að dóm- ur hafi verið felldur í málinu. Mér er spurn: Síðan hvenær hafa fjölmiðlar dómsvald? Ef leita á að fordæmisgildi í þess- um úrskurði þýðir hann þá að ekki eigi að fjalla um ætluð kynferðisafbrot án þess að dómur sé fallinn? Verða ekki til fórnarlömb fýrr en eftir að dómari hefur kveðið upp úr- skurð sinn? í nýlegu refsimáli sagði hugmyndaríkur lögfræðingur fýrir dómi að PRESSAN hefði tekið að sér að dæma skjól- stæðing sinn, sem er marg- dæmdur brotamaður. Þess vegna ætti dómarinn að taka af mildi á afbrotum hans. Um leið höfðaði viðkomandi ein- staklingur meiðyrðamál á hendur blaðinu vegna þess að æra sín hefði verið svert. Ef þetta ætti að ganga upp þá fengi maðurinn mildari refs- ingu vegna skrifa blaðsins um leið og hann fengi skaðabætur fýrir þessi sömu skrifl — Ég held að allir sjái í hvaða ógöngur umræðan er komin ef menn hugsa um fjölmiðla sem dómstóla. Hlutverk þeirra er eingöngu að segja frá því sem gerist í samfélaginu, með þeim hætti sem hver og einn miðill kýs sér. Sigurður Már Jónsson A uppleið f Guðbergur Bergsson rithöfundur Innlegg hans í vitlausasta umræðuþátt ársins eru með því skrautlegasta sem hefúr heyrst. Það var eins og epli og tómatar væru þolendur kynferðislegs ofbeldis. Donald Feeney barnaræningi Það hefur líklega enginn sloppið jafriríkur úr Hraun- inu. Hallbjörn Hjartarson kóntríkóngur og úlvarpsrekandi Heldur úti útvarpsstöð sem hann einn hlustar á og hefúr gaman af. Barlóms- neytendum samtímans gerð skömm til. Á niðurleið I Þorsteinn Pálsson dómsmálaróðherra Það er einföld leið að senda skattgreiðendum 300 milljóna króna reikning af því að nokkrir menn dotta í vinnunni. Það hefði að minnsta kosti verið kurteisi að benda á hvar mætti taka þennan pening. Sophia Hansen baróttukona Þetta með megrunarkúr- inn virkar ekki mjög sann- færandi í löndum með við- varandi hungursneyð. össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra Þessi tveggja til þriggja vikna þögn áróðursmála- ráðherra landsins bendir til þess að kerfið sé að vinna á honum.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.