Pressan


Pressan - 12.08.1993, Qupperneq 17

Pressan - 12.08.1993, Qupperneq 17
S U SI BO RG Fimmtudagurinn 12. ágúst 1993 PRCSSAN 17 Hódel i Kflanó Látum nú hugann reika, stúlkur, og reynum að muna hvað við vorum að gera þegar við vorum fjórtán ára og nýfermdar. Eitt- hvað rámar mann í óteljandi sjoppuferðir að kvöldlagi í þeim tilgangi að hitta jafnaldrana, unglingavinnuna, komplexa út af hinu og þessu og langar dvalir á baðherbergi fjölskyldunnar við fílapenslakreistingar. Svo var maður skotinn í einhveijum strák, sem er núna orðinn pípulagningamaður eða múrari og er hamingjusamlega kvæntur og býr í Grafarvogi. Hvað um það, ein er sú stúlka fjórtán ára sem hefur annan starfa á sumrin en að passa börn eða reyta arfa eins og jafnaldrar hennar. Erla Tryggvadóttir er 1.80 á hæð og fer í vetur í níunda bekk í Garðaskóla í Garðabæ. Hún dvaldi lungann úr sumrinu við fyrirsætustörf í Mílanó á Ítalíu. Erla fór út á vegum Icelandic Models í júní og vann hjá stúdíói að nafhi Marcella’s. „Ég var á Ítalíu í einn og hálfan mánuð. Mamma kom með mér, var hjá mér allan tímann og fór með mér í öll viðtöl. Mér fannst mikið öryggi fólgið í því að hafa hana með. Tilgangurinn með ferð- inni var aðaUega sá að safna myndum af mér í myndamöppuna mína. Svo fékk ég vinnu við sjónvarpsauglýsingu og sat fyrir á myndum fýrir hárgreiðslublað. Við bjuggum saman þijár íslenskar stelpur sem allar störfuðum við módelstörf.“ En hvað gerði hún í frístundum: „Ég fór bara einu sinni út að skemmta mér með stelpunum sem ég bjó með og nokkrum sinnum með fólkinu á módelskrifstofunni, en annars var ég bara heima. Svo fékk ég tilboð um að vera áfram á ftalíu fram í október, en ég tók því ekki, því ég þarf að fara í skólann.“ Að sögn kunnugra er Erla gott efhi í sýningarstúlku og gæti átt ffamtíðina fýrir sér í þessu starfi. Og eflaust eru þær margar jafh- öldrur Erlu sem hefðu viljað vera í hennar sporum og vinna sum- arlangt á ftalíu. ERLA TRYGGVA- DÓTTIR. Starfaði í sumar sem sýningar- stúlka í Míl- anó. Hún er aðeins fjórtán ára og fer í ní- unda bekk í haust. Hótel Borg býöur um þessar mundir upp ó góm- sæta tilbreytingu í matargerðarlist, því forróða- menn staðarins hafa fengið japanskan mat- reiðslumeistara til að tilreiða sushi ofan í gesti hótelsins. Starfsmenn voru sendir til Bandaríkjanna ó iapanskt veitingahús til að kynna sér framreiðsluhætti ó sushi og þeim þefðum sem því fylgja. Áð söan Arna Siemsen, aðstoðarhótelstjóra Borgarinnar, hefur sushi-matseldin mælst vel fyrir og veitingasalurinn verið vel sóttur. „Við vildum bjóða upp ó til- breytingu og fannst sushi vera sú matar- aerðarlist sem næfði elegans hót- elsins. Japanir líta nefnilega ó sushi sem ókveðinn lúxus og þeir borða 3að ó tyllidögum. Sushi er líka iluti af sterkri hefð Japana oa Deir sýna matnum mikla viro- ingu." Eins og sigldir lesendur PRESS- UNNAR kannast við samanstendur sushi af hróum fiski sem er borðað með in býður upp ó ótjói fangs og er fiskurinn grjón og svo bundið sjóvarsölvum. Með þessu er drukkið heitt sake, sem er japanskt hrísgrjónavín, og jap- anskt te, grænt að lit. Maturinn er borðaour með prjónum að hætti þarlendra. Það er hiklaust hæi að mæla með sushi-mólsverði ó Borginni í sérstal lega aðlaðandi umhverfi. HCTEt BCRC HASMITSUME TSUNEO er matreiðslumeistari frá Koyoto í Japan. Hér heldur hann á bakka með sushi. Húsgögn úr reipi Ásóknin í náttúruvörur virðist engan enda ætla að taka. Það sýnir sig í nýjustu afurðinni í húsgagnabransanum sem eru húsmunir og nytjahlutir gerðir úr reipi. Ef þið lesendur góðir haldið að það sé eitt- hvað smart að hafa híbýli ykkar full af antíkmunum, hvað þá húsbúnaði úr stáli og gleri, þá þykir oss hér á PRESSUNNI rétt að benda á nauðsyn þess að hafa á heimilinu svo sem einn eða tvo hluti gerða úr snæri. ímyndið ykkur hvað það er Ijúft eftir erfiðan dag á fúlum vinnustað að fleygja sér upp í sófa gerðan úr snæri og horfa á sjónkann. En í alvöru, þetta er bara asskoti töff, að minnsta kosti á mynd, og nú hvetjum við alla kunnáttumenn um hnýtingar, sér- staklega skáta, til að taka við sér. Voru ekki appelsínugulu dósakúlurnar alveg gjörsamlega misheppnað fyrirbæri til fjáröflunar skátastarfi? Hraunbúar og Garðbúar, nú er lag! Á föstudagskvöld voru við opnun sýningar í Nýlistasafn- inu við Vatnsstíg hátt á fjórða hundrað gestir. Þeirra á meðal voru fóstbræðurnir Bjami Þórarinsson og Birgir Andr- ésson, Róska, Pét- ur í Faco og listamenn- imir og nafnarnir Kristinn Harð- arson og Kristinn Hrafnsson. Þar vom einnig Tumi Magn- ússon og gömlu vinirnir úr Menntaskól- anum við Sund, Keli og Óskar Jónasson kvik- mynda- gerðar- maður, ásamt Ingólfi Amarsyni og Hannesi Lámssyni listfræð- ingi- Að vanda var fullt á Sólon Is- landus á föstudagskvöld, enda taka gestir síður eftir lélegri þjónustu að kvöldlagi, þegar búið er að hella í sig, en í björtu. Þar gaf að líta litríka blöndu blaðamanna, leikara og listafólks, innan um alla námsmennina. Meðal gesta vom: Sigurður Pálsson ljóð- skáld, leikaramir Bryndís Petra Braga- dóttir og Amljóts- dætumar Eddaog Þórdís ásamt fleiri leikumm. Mogga- blaðamennimir Áslaug Jónsdóttir og Anna Gunnhildur Ólafsdóttir sátu og krufu atburði liðinnar viku. Laugardagskvöldið bauð upp á lokatónleika Bogomils Font og Milljónamæringanna í Perlunni. Þrátt fýrir það furðulega skeytingarleysi vert- anna, að sjást yfir að einn bar er ekki nóg fýrir hátt í þúsund manns, þá skemmtu sér nokkrir ágæt- lega. Má þar nefna Pál Magn- ússon sjón- varps- stjóra og Hildi Hilmars- dóttur, ffú hans, ásamt ætt- fólki og vinum. Þama vom einnig Guffi og Gulla, fýrrver- andi Gauks- og Mávs-vertar, regnhlífarvæddi Skífukóngur- inn Jón Ólafsson ásamt ff ú Helgu, leikara- hjónin Vil- borg Hall- dórsdóttir og Helgi Bjömsson, Kalli og Est- her í Pelsinum, Anna Bjömsdóttir, fýrrverandi módel í Banda- ríkjunum, Sigurður Ólafsson athafnamaður og Hildur Haf- stein. Nokkrir voru það þó sem flúðu öskjuhlíðina og lé- lega barþjónustu og héldu í miðbæinn. Þar á meðal vom Brynja Sverrisdóttir módel og Stefán vinur hennar ásamt fleira fólki. Á Café Romance voru á laug- ardagskvöld, innan um gömlu þreyttu fallít bílasalana og fýrrverandi flugffeyjurnar, stúlknatríóið Helga Valfells, hagffæðingur í London, Ástrós Gunnarsdóttir dansari og Dóra Guðmundsdóttir lögffæðingur, en Valur, vinur Lúffa, stóð eins og varðhund- ur í stiganum. Á laugardagskvöld bauð Sól- on upp á þrasgjama Heim- dellinga sem hafa ekkert gert nema rífast um þingsæti alla síðustu viku. Það væri þjóð- þrifaverk að hleypa þeim ekki á skemmtistaði fyrr en SUS- þinginu lýkur. Aðrir gestir reyndu að láta þá ekki fara í taugar sínar, og má þar nefna Rósu Waagfjörð og Hreiðar mann henn- ar, Mílanó módelið Bryndísi Bjamadótt- ur og Gunnar Viðar lögffæðing ásamt Höllu Hamar, konu sinni. Menningin er hornsteinn hverrar þjóðar. Þetta segi ég alltaf við opnanir ýmiss konar sem ég er lunkinn við að koma mér Þær opnanir, sem mér er ekki boðið í, finn ég á menn- ingarsíðum dagblaðanna. flllt- af er gott að starta kröftugri drykkju á föstudagseftirmið- dögum en hámarkið er þó á laugardögum. Þá nær maður oft 4-5 opnunum og brennivínskostnaðurinn þann daginn er enginn. Hvers vegna skyldi maður líka eyða laugar- dögunum í þynnku? ... Pizzeríunni Lindinni á Laugarvatni þar sem fást einu ekta ítölsku pizzurnar á land- inu, þunnar og ekki með haug af matföngum ofan á. ... innluttum kengúrum til að gæða villta náttúru lands- ins nýju h'fi. ... gönguferðum í rign- ingu svo við sættum okkur í eitt skipti fyrir öll við íslenskt veðurfar. I rauninni er það dásamlegt, við vitum bara ekki af því. ... íslenskum lopapeysum því veturinn nálgast óðfluga. Bros. Fliss. Og genúín hlát- ursköst. Míga á sig af gleði og liggja í krampa. Og ef svo ólíklega vill til að einhver hafi hlegið of mikið um ævina má laga óæskilega línumyndun á gamals aldri með því að fara í feislift. Nú eða nota frumu- hvetjandi lyf sem heldur aftur af ellinni og vísindamenn sitja sveittir við að þróa. En án gríns þá eru hrukkur auðvitað ekkert til að hafa áhyggjur af, því ekki alls fyrir löngu hélt útlendingur því fram í ís- lensku sjónvarpi — takið efitir því, í íslensku sjónvarpi — að ffamtíðinni mætti búast við því að menn gætu orðið 200 þúsund ára gamlir. Vá! Þá verður nú allt eins líklegt að hlutir verði hvorki inni né úti, heldur verði bara. Þá verður þessi dálkur heldur ekki til. Sólbrúnka. Flekkóttar síður og rákóttar lendar. Slík mislit- un er neyðarleg. Hræðilega neyðarleg. Og kemur upp um fólk. Minnir á sauðkindina. Sem er líka úti. En sé mann- eskja áberandi dökk á hörund er það til marks um að hún sé annaðhvort blökkumaður eða hafi alltof mikinn tíma aflögu og ýmist liggi gegndarlaust í sólbaði eða hangi á sólbaðs- stofum. Sem er svo sannarlega úti. En sólbrúnka er ekki það sama og sólbrúnka. Eðlilegur frísklegur litarháttur er til marks um að manneskjan stundi útiveru. Og það er svo sannarlega ekki úti.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.