Pressan - 12.08.1993, Page 24
S K A T T A R
24 PRESSAN
Fimmtudagurinn 12. ágúst 1993
PRESSAN skoðar skattskrórnar:
PÉTUR BLÚNDAL Á VIÐ
ÞRETTAN BUBBA
í yfirferð PRESSUNNAR á
skattskrám Reykjavíkur og
Reykjaness reyndist Pétur H.
Blöndal verðbréfaspekúlant
í**era sá einstaklingur af út-
völdum sem hafði hæstu tekj-
urnar, með rúmlega 16 millj-
óna króna árstekjur eða 1.343
þúsund á mánuði. Þetta eru
ellefu sinnum hærri tekjur en
þær sem Hrafn Gunnlaugs-
son gaf upp til skatts. Þá
reyndist Pétur vera rúmlega
þrettánfaldur Bubbi Mort-
hens.
Ómar Ragnarsson, frétta-
maður á Stöð 2, var með 458
þúsund á mánuði eða um 20
prósentum hærri en yfirmað-
ur hans á stöðinni, Ingvi
Hrafn Jónsson. Ómar vantaði
Vekki mikið upp á að ná sömu
tekjum og Páll Magnússon
sjónvarpsstjóri.
EKKJUR í HÓPJ HÁ-
TEKJU- QG STOR-
EIGNAFOLKS
Ýmis fróðleg nöfn komu í
ljós, sem ekki hafa yfirleitt sést
í umræðu um launahæstu
rnenn landsins. Nefna má
Gizur Gottskálksson lækni,
með nær 1,2 milljónir á mán-
uði, Símon Á. Gunnarsson,
rekstrarhagfræðing og endur-
skoðanda, með 980 þúsund,
VTig Gunnar Þ. Benjamínsson
sjóntækjafræðing með nær
800 þúsund.
Erna Finnsdóttir, ekkja
Geirs Hallgrímssonar, fyrr-
verandi ráðherra og Seðla-
bankastjóra, var með um 742
þúsund á mánuði. Hún greið-
ir eignaskatt sem bendir til
um 44 milljóna króna hreinn-
ar skattskyldrar eignar. Helga
Ingimundardóttir, ekkja
Sveins Benediktssonar og
móðir bræðranna í Sjóvá-Al-
mennum, taldist á sama hátt
eiga skattskyldar eignir upp á
»-um 55 milljónir og vera með
um 324 þúsund á mánuði.
Kristjana Milla Thorsteins-
son, viðskiptafræðingur og
ekkja Alffeðs Elíassonar, fyrr-
um forstjóra Flugleiða, var
með nær 900 þúsund krónur
á mánuði, ívið hærri tekjur en
núverandi forstjóri félagsins
getur státað af.
LANDSKUNNIR MENN
MEÐ LITLAR SEM
ENGAR TEKJUR
Að auki voru nokkrir nafn-
togaðir einstaklingar í þeirri
stöðu að hafa samkvæmt
ffamtali litlar sem engar tekjur
þénað og enga skatta greitt, en
sömu aðilar urðu flestir hverj-
ir gjaldþrota nýverið. í þess-
um hópi eru til að mynda
Ingólfur Guðbrandsson
ferðamálafrömuður, Hans
Kristján Árnason, fyrrum
annar aðaleigenda Stöðvar 2,
ívar Hauksson, kraftakarl og
meintur handrukkari, Ólafur
H. Jónsson í Hagi og Friðrik
Páll Ágústsson, umdeildur
„dáleiðslumeðferðaraðili“.
PÉTIIRH. BLÖNDAL. Miðað við síð-
asta ár og framtaldar tekjur tæki
það Hrafn Gunnlaugsson ellefu ár að
ná tekjum Péturs.
HRAFN GUNNLAUGSSON. Væntanlega
feginn því að vera kominn í velgef-
andi starf, því í fyrra þénaði hann
aðeins 125 þúsund á mánuði.
ÚLFAR NATHANAELSSON.
Innheimtumaðurinn í Innheimtum og
ráðgjöf var tekjulaus. SkatUagður
sem stóreignamaður en álagningin
felld niður.
FRIÐRIK PÁLL ÁGÚSTSSON. Hvort
sem hann er fúskari eða alvöru
dávaldur þá var hann samkvæmt
framtali bara með 61 þúsund á
mánuði.
FÁEIN FROÐLEG DÆMI
Hér fylgir ek. „bland í poka“, samsafn einstaklinga í ólíkum
stöðum og atvinnugreinum, sem af ýmsum ástæðum hafa
orðið umræðuefhi í þölmiðlum.
GuðmundurHallvarðssonþingmaður 509.200
Páll Magnússon sjónvarpsstj. 500.300
Jón Ellert Tryggvason fésýslari 479.200
Ómar Ragnarsson fféttamaður/skemmtikraftur 457.800
Þorsteinn Garðarsson í Hljómco 438.900
Garðar Halldórsson húsameistari 384.700
Ingvi Hrafii Jónsson fréttastjóri 380.400
Albert Guðmundsson sendiherra 368.200
SúsannaSvavarsdóttirblaðamaður 351.500
Bera Nordal listffæðingur 315.000
Þórhallur„Laddi“Sigurðsson 287.700
Magnús Garðarsson fésýslari 287.500
Páll Þorgeirsson í Asiaco 254.500
Jón Óttar Ragnarsson fjölmiðlaáhugamaður 239.600
HaraldurBlöndallögffæðingur 234.900
Öm Karlsson fésýslari 101.700
Helgi Rúnar Magnússon lögfræðingur 189.300
Hannes Hólmsteinn Gissurarson dósent 185.800
Jón HaUdórsson lögffæðingur 171.200
Tómas A. Tómasson í Hard Rock o.fl 169.700
Sigurður V. Sveinsson handboltakappi 151.800
Garðar Þorsteinsson Hljómco-sonur 140.300
Sigurður Öm Sigurðarson í Hagskiptum 137.600
Rúnar Kristinsson fótboltakappi 131.000
Ingvi Týr Tómasson í Hard Rock 112.300
Friðrik Þór Guðmundsson
BUBBIMORTHENS. Þrátt fyrir ótelj-
andi hljómleika og tekjur af plötu-
sölu kom hann út með 99.500 á
mánuði.
INGÓLFUR GUÐBRANDSSON. Ferða-
kóngurinn fyrrverandi taldist hala inn
þúsundkall á mánuði. 274 þúsund
króna eignaskattur var felldur niður.
INGVIHRAFN JÓNSSON. Fréttastjór-
inn, landeigandinn og laxveiðimaður-
inn fékk 380 þúsund á mánuði. Und-
irmaður hans Ómar Ragnarsson var
20 prósentum hærri.
HARALDUR BLÖNDAL. Þessi litríki
lögfræðingur og uppboðshaldari þén-
aði 235 þúsund á mánuði.
SÚSANNA SVAVARSDÓTT1R.
Skjólstæðingur Markúsar Arnar rétt
kemst af með 351 þúsund á mánuði.
HARALDUR B. BÖÐVARSSON.
Lögfræðingur í ýmiss konar fjár-
málastússi. Tæp 50 þúsund og
skattar felldir niður.
HANNES HÓLMSTEINN GISSURAR-
SON. Kennsla í Háskólanum og af-
rakstur af bókaskrifum færðu honum
„aðeins" 186 þúsund á mánuði.
RÚNAR KRISTINSSON. Heilinníann-
ars vonbrigðaríku KR- liðinu fékk
samkvæmt framtali 131 þúsund á
mánuði í fyrra.
NOKKRIR MEÐ YFIR 700.000
Mánaðartekjur eftirtalinna tuttugu einstaklinga voru 1992 í
heild um 15,8 miUjónir króna (um 190 mflljónir á ári). Miðað
við verkakonu með 65 þúsund á mánuði eru þessir á við yfir
243 slíkar konur.
Jón Skaftason yfirborgarfógeti 992.900
Símon Ásg. Gunnarsson endurskoðandi 979.900
Kristinn Bjömsson forstjóri SHELL 977.700
KristjanaMillaThorsteinsson 890.700
Jón Eysteinsson sýslumaður í Keflavík 884.200
Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða 877.000
Gunnar Hansson forstjóri IBM á Islandi 850.000
Stefán Friðfinnsson forstjóri Isl. aðalv. 846.600
ÁsgeirThoroddsenlögffæðingur 833.700
Benedikt Sveinsson í Sjóvá-Almennum 810.700
Gunnar Þ. Benjanúnsson sjóntækjafræðingur 795.800
Jón H. Guðmundsson í BYKO 785.700
Magnús Hreggviðsson í Fróða 773.100
Haraldur Sveinsson í Árvakri/Mogga 751.200
Ema Finnsdóttir ekkja 742.000
Einar Þorbjömsson í Borg/Brú 724.300
DÆMI UM NOKKRA STÓREIGNAMENN
Miðað er við skatt af skuldlausum eignum sem á annað borð
eru skattskyldar, en sem kunnugt er eru ýmiss konar fjár-
magnstekjur af verðbréfúm og slíku ekki skattlagðar. Meðfylgj-
andi tölur gera í flestum tilfellum ráð fyrir hjónabandi og
helmingaskiptum á eignum.
Jón H. Guðmundsson forstjóri BYKO 112.5
Wemer Rasmusson apótekari 106.5
Guðmundur Lámsson skipamiðlari 94.5
VíðirFinnbogasonheildsali 64.5
Guðjón B. Ólafsson forstjóri SÍS 59.0
Gunnar Þ. Benjamínsson sjóntækjafræðingur 55.0
Indriði Pálsson stjórnarformaður SHELL 48.5
Karl J. Steingrímsson í Pelsinum 47.0
Ema Finnsdóttir ekkja 44.0
Benedikt Sveinsson í Sjóvá 43.0
Ingimundur Sigfússon í Heklu 42.0
MILUÓN KRÓNA MENN
Það eru ekki ýkja margir landsmenn sem ná um og yfir tíföld-
um meðaltekjum landverkafólks í skattskyldum tekjum. Mið-
að við verkakonu með 65 þúsund á mánuði er Pétur H. Blön-
dal á við tuttugu slíkar konur í skattskyldum tekjum, en allir
átta á listanum eru á við 151 slíka konu.
Pétur H. Blöndal verðbréfaspekúlant 1.343.100
Indriði Pálsson stjómarformaður SHELL 1.321.800
Guðjón B. Ólafsson forstjóri SÍS 1.300.200
Pétur Bjömsson í Vífilfelli/Kók 1.284.000
Jón H. Bergs fv. forstjóri SS 1.274.800
GizurGottskálkssonlæknir 1.173.800
Hörður Sigurgestsson forstjóri Eimskips 1.091.000
Jónas Aðalsteinsson lögffæðingur 1.021.500
ATHYGLISVERÐIR LÁGLAUNAMENN
Meðaltekjur landverkafólks í ASÍ voru 1992 um 108.700 krón-
ur á mánuði. Þar af var verkafólk með 97.500 að meðaltali en
skrifstofufólk með 116.700 krónur á mánuði. Eftirfarandi em
dæmi af nokkrum „verkamönnum“. Tólf hinir síðasttöldu auk
Sigurðar H. Garðarssonar greiddu enga skatta; fengu niðurfell-
ingu (skattafslátt) af því sem þó var lagt á.
Hrafh Gunnlaugsson kvikmyndag.maður 125.400
Guðlaugur Bergmann í Kamabæ 125.400
Jóhann Hjartarson stórmeistari í skák 103.500
Jóhannes S. Stefánsson í Múlakaffi 100.400
Sigurður H. Garðarsson í Hagskiptum 100.000
Bubbi Morthens tónlistarmaður 99.500
Albert Rútsson bílasali með meim 95.000
AnthonyKarlGregoryfótboltamaður 89.200
Einar J. Gíslason forst.m. Fíladelfíu 84.600
VilhjálmurÁstráðsson veitingamaður 76.000
Birgir V. Halldórsson veitingamaður 69.000
Magnús Magnússon fésýslari 67.100
Guðni Þórðarson fv. ferðakóngur 61.100
Friðrik Páll Ágústss. dávaldur 61.000
Ólafúr H. Jónsson fv. kaupsýslumaður 51.000
HaraldurBöðvarssonfésýslari 48.300
ívar Hauksson kraftakarl með meira 45.000
Hans Kr. Árnason fv. Stöðvar 2-eigandi 38.000
Ingólfur Guðbrandsson fv. ferðakóngur 1.000
LúðvíkThorbergHaUdórsson fésýslari 0
Sveinn E. Úlfarsson fv. veitingamaður 0
Úlfar Nathanaelsson fésýslari 0