Pressan


Pressan - 12.08.1993, Qupperneq 35

Pressan - 12.08.1993, Qupperneq 35
13 32. tbl. 4. árdM Éfe ejh c ^s ss a n f~”ur w^Sh® il Jtí ^jj «ifs^ ÍHf fflv J® BSKKK HHBy WmæssP Ém HH WH án HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HLJOMAR Læknisfræðilegar skýringar á flótta frá Litla-Hrauni Fangaverðirnir haldnir sjaldgæfri sjónskekkju Litla-Hrauni. 11. ágúst. „Þegar Haraldur sagði „ég trúi ekki mínum eigin augum“ áttaði ég mig á því að einhver læknis- fræðileg skýring hlaut að vera á þessu,“ sagði Þórð- ur Guðmundsson augn- læknir, en hann telur sig hafa fundið ástæðuna fyr- ir því að allar flóttatil- raunir frá Litla-Hrauni heppnast. Samkvæmt kenningu Þórðar hefur sjaldgæft af- brigði af sjónskekkju náð að breiðast út meðal fangavarða á Hrauninu. „Auðvitað er dálítið óvís- indalegt af mér að opin- bera strax þessa kenningu mína, en ég gerði það fyrst og ffemst til að koma í veg fyrir fleiri flóttatil- raunir.“ Þórður kallar af- brigði sitt „Glápus Hraunus“ og telur jafnvel að hér sé um stökkbreytta veirusýkingu að ræða. „Þegar fangelsismála- stjóri bað fangaverði að fylgjast sérstaklega með Feeney gerði hann regin- mistök. Það er vegna þess að þá horfðu fangaverð- irnir mjög fast á Feeney, en þá koma áhrif sjón- skekkjunnar skýrast í ljós. Þó að þeir horfðu á Feen- ey sáu þeir hann ekki; hann lenti í dauðum punkti, þannig lýsir sjúk- dómurinn sér,“ segir Þórður. „Það er langt síðan við fangarnir tókum eftir þessu. Með því að ganga frá ákveðnu sjónarhorni tóku verðirnir ekki eftir neinu,“ sagði morðingi á Hrauninu sem ekki vildi láta nafns getið. Hann rekur myndbandaleigu á Selfossi og segir að miklir fjárhagslegir hagsmunir séu í því fólgnir fyrir sig að ekki finnist lækning á þessu. Ríkissjónvarpið sparkar öllum gömlu þulunum Glaðværðin tekur við — segir Hrafn Gunnlaugsson Reykjavík, 11. áeúst. „Ég tók eftir því að þessar gömlu þulur voru alltaf að þylja sömu gömlu dag- skrána. Því ákvað ég að eitthvað róttækt yrði að gera,“ sagði Hrafn Gunnlaugs- son, hármálastjóri sjónvarpsins. Hrafn tilkynnti á starfsmannafundi í gær að nýjar þulur kæmu til starfa á næstunni. „Ég játa að ég hef mikið legið yfir dag- skrármálum sjónvarpsins og smám sam- an áttaði ég mig á því hvað var að,“ sagði Hrafn Gunnlaugsson í samtali við GULU PRESSUNA. „Þulurnar eru óspennandi, litlausar og vekja litla eftir- tekt. Þessu verður nú breytt," bætti Hrafn við. „Þessi Hrafh veit sko alveg hvað hann vill,“ sagði Þuríður Yrsa Jónatansdóttir, sem nú hefur verið ráðin sem þula. „Svo má deigt jám herða að það bíti,“ var það eina sem Heimir Steinsson vildi láta hafa eftir sér um málið. Hrafn Gunnlaugsson í hópi nýráðinna sjónvarpsþula. Óvenjuhapöskeytt starfsmannastefna hjá Stjórnarráðinu Hentu ónýtum starfsmanni Stiómarráðinu, 11, áfiúst. „Ég hef aldrei kynnst öðru eins. Þessi starfsmaður var búinn að vera þarna í mörg ár og ekki annað vitað en hann gegndi starfi sínu á við aðra ríkisstarfsmenn,“ sagði Ögmundur Jónasson, sem fann ríkisstarfsmann í öskutunnu fyrir utan Stjómarráðið í gær. Samkvæmt heimildum GULU PRESSUNNAR vann Friðfinnur Halldórsson í áætlanadeíld Stjórnarráðs- ins. Þegar ljóst varð að fimmta áætlun hans í sama mánuðinum hafði farið í vaskinn misstu menn þolin- mæðina. Hefur GULA PRESSAN heimild fyrir því að að minnsta kosti þrír ráðuneytisstjórar hafi tekið Friðfinn á milli sín og labb- að með hann út í næstu tunnu. Heimildamenn segja að líkja megi ástandinu í áædanadeild stjómarráðsins við púðurtunnu. „Það er eins gott að Þórður Frið- jónsson hætti sér ekki hing- að,“ sagði háttsetur heim- ildamaður við GP. „Þetta er enn eitt dæmið um að hin hörðu öfl hafa tekið yfir í þjóðfélaginu. Mannskepnan er einskis metin,“ sagði Ögmundur. Systkinahópur Davíðs Oddssonar stækkar óvænt A bróður í hverju kjördæmi Revkiavík, 11, ágúst. „Jú, þetta var óvænt ánægja,“ sagði Davíð Oddsson, en systkina- hópur hans hefúr óvænt stækkað að undanfömu. Komið hefur í ljós að hann á systkini í flestum kjör- dæmum. „Ég játa það að ég horfði vana- lega á Tanna þegar ég sá myndir af Davíð og tók því ekki eftír því hve líkir við vorum,“ sagði Jónatan Guðmundsson, bóndi á Norður- landi vestra, en hann er einn hinna nýju bræðra Davíðs. „Um leið og fréttist af þessu fékk ég betri af- greiðslu í bankanum mínum þann- ig að þessu fýlgja vissulega kostír,“ sagði Þórður Sveinsson, húsasmið- ur á Ólafsfirði. „Þetta kemur mér alls ekki á óvart. Það er skondið að segja ffá því núna að á mínu heimili hefur verið haft á orði að Þórði svipaði um margt til Davíðs. Hann hlustar aldrei á nokkurn mann og er til vandræða við opinberar athafriir,“ sagði Guðmunda Ófeigsdóttir, eig- inkona Þórðar. „Eins og maður segir þá veit eng- inn sína ævina fyrr en öll er,“ sagði Davíð í sámtali við GP. „Allir þessir menn em sérlega viðkunnanlegir í viðkynningu þannig að þetta er hið besta mál. Nei, ég á ekki von á að þetta hafi nein áhrif á stjómarsam- bandið." En bræðrafúndurinn hefúr hlot- ið misjafnar undirtektir meðal stjómarandstæðinga: „Alþingi hef- ur verið kallað saman af minna til- efni en þessu," sagði Ólafúr Ragnar Grímsson.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.