Pressan - 04.11.1993, Síða 2
FYRST OG FREMST
Fimmtudagurinn 4. nóvember 1993
2 PRESSAN
STYRMIR GUNNARSSON. Morgunblaðið fagnar 80 ára afmæli. MAHHÍAS JO-
HANNESSEN. Á næsta ári verður Morgunblaðinu breytt í dagblað, þ.e. það
kemur einnig út á mánudögum.
Mogginn veröur
dagblaö
Ekki er allur eldur úr gamla
Mogga, þótt kominn sé á
þennan aldur. Nú heyrum við
að fyrir dyrum standi það sem
einhvern tíma hefði þótt rót-
tæk breyting á útgáfunni, sem
sagt að gera blaðið að dagblaði
og gefa það út á mánudögum
líka. Þetta á að sögn þeirra
sem til þekkja að gerast á
næsta ári.
Sigtrvggur spilar
með Adrian
Belew
Sigtryggur Baldursson, al-
ías Bogomil Font, gerir það
ekki endasleppt. Eftir að hann
tók landann með trompi með
plötu sinni „Ekki þessi leið-
indi“ (hefur nú þegar selst í
um 6.500 eintökum) fluttist
hann til Madison í Wisconsin.
Þar býr annar tónlistarmaður,
enginn annar en gítarsniUing-
urinn Adrian Belew. Belew er
einn virtasti og frumlegasti
gítarleikari rokksögunnar,
hann var í King Crimson og
hefur m.a. leikið með Brian
Eno, Talking Heads og Laurie
Anderson. Adrian Belew er
líklega þekktastur fyrir hið
svokallaða „elefant sound“,
sem enginn hefúr náð á gítar-
inn annar en hann. Sigtryggur
fór á dögunum í heimsókn til
Belew og fór vel á með þeim.
Þeir leyfðu hvor öðrum að
heyra hvað þeir kunna á
hljóðfæri sín og er í deiglunni
að þeir spili eitthvað saman,
jafnvel á plötu. Sigtryggur er
væntanlegur til landsins 20.
desember og hyggur á tvenna
tónleika. Hvort það verður
með Milljónamœringunum er
ekki vitað, en Páll Óskar er jú
frekur til fjörsins. Á mánu-
dagskvöld verður sýnd í Sjón-
varpinu mynd um Bogomil
Font. Hún er gerð af Marteini
S. Þórssyni. Myndin heitir
„Leitin að Bogomil Font“ og
er stutt útgáfa af lengri mynd
sem Japis kemur til með að
gefa út á næstunni.
Iyínudans hjá
Arna Sam.
Menn eru á því að Árni
Sam-bíó-úelsson, konungur
kvikmyndahúsanna, hafi
dansað línudans á reglum um
frjálsa viðskiptahætti um
nokkurt skeið. Það geri hann
með því að nota efsta stig lýs-
ingarorðs í slagorði sínu:
„Ávallt í fararbroddi með
bestu myndirnar“. Bíómönn-
um er gjarnt að nota sterk orð
þegar þeir lýsa því sem þeir
eru með á boðstólum hverju
sinni. En hvort sem Árni er
með bestu myndirnar eða
ekki er vonlaust að leggja á
það einhverja mælistiku og
því ómögulegt að sanna að
svo sé. Slagorðið er því meint
brot á samkeppnislögum og
Samkeppnisstofnun hefur
verið bent á það. Þetta með
efsta stig lýsingarorða er það
fyrsta sem menn í auglýsinga-
bransanum læra um lög og
reglur í sambandi við auglýs-
ingar. Nú er spurningin hvort
auglýsingamönnum Árna haíi
verið ókunnugt um þessa
grundvallarreglu eða hvort
þeir telja að í sambandi við
bíó gildi aðrar reglur en ann-
ars staðar um hversu sterkt
megi taka til orða.
Gleöskapur
Stöövar 2 klag-
aöur
Sem kunnugt er stóð til að
bandaríska fyrirfólkið Ted
Turner og eiginkona hans
Jane Fonda kæmu í heimsókn
hingað til lands síðasta sumar
í boði íslenska útvarpsfélags-
ins. Talsverður spenningur
var meðal Stöðvar 2- manna
vegna heimsóknarinnar og því
olli það vonbrigðum þegar
hjónin aflýstu ferðinni á ell-
eftu stundu. Forráðamenn Is-
lenska útvarpsfélagsins höfðu
fyrir löngu undirbúið komu
erlendu gestanna og var mein-
ingin að eyða helginni með
þeim í Norðurá við veiðar. Af
þeim sökum hafði dýrindis
veisluföngum verið komið
fyrir í veiðihúsinu og var sér-
legur matreiðslumaður mætt-
ur þangað til að elda ofan í
gestina. En ekkert varð af
komu þeirra og því var ekki
annað að gera fyrir Stöðvar 2-
menn en njóta veiganna — og
veiðanna — sjálfir. Og það
gerðu þeir svo um munaði.
Umrædda helgi héldu Páll
Magnússon, Ingimundur
Sigfússon og ýmsir fleiri yfir-
og undirmenn fyrirtækisins
upp í Norðurá og slógu upp
Matthías'Johannessen sendir Davíð Oddssyni
„Hamborgarar
stuðla að ofvexti“
Vígsla Davíös Oddssonar forsætisróöherra á ham-
borgarastaönum McDonald's er afar umdeild, en
mörgum þykir afskipti ráöherrans af málinu hafa
yeriö óviöeigandi enaa tilgangurinn aö baki augljós.
í nýju tölublaöi tímaritsins Mannlífs, sem kemur út á
næstu dögum, er aö finna ítarlegt viötal ritstjórans,
Arna Þórarinssonar, viö Matthías Johannessen, rit-
stjóra Morgunblaösins, þar sem hann dregur enga
dul á vanþóknun sína á uppátækinu og fer höröum
oröum um forsætisráöherrann.
I viötalinu segir Matthías meöal annars: „Eg tel þaö
ekki pólitík aö opna hamborgarastaö. En fjölmiölar
segja frá slíkum viöburöi þegar forsætisráönerra á í
hlut og meö því taka þeir þátt í uppákomu sem á
ekkert skylt viö stjórnmál. Fólk á aö boröa lítiö af
hamborgurum; þeir stuöla aö ofvexti neytandans. Ég
gæti skiliö aö forsætisráöherra boröaöi hamborgara
ef nautiö, sem slátraö var, heföi atkvæöisrétt. Þaö er
víst ekki og þess vegna skil ég ekki uppákomuna."
Og Matthías heldur áfram: „En Davíö hefur oft tek-
ist þaö sem öörum hefur mistekist — aö breyta sér-
kennilegum uppákomum í fylgisaukandi skemmtun.
Hann hefur þannig sjarma. Og engum dettur í hug
annaö en hann sé aö skemmta sér meö ööru
skemmtilegu og uppáfindingarsömu fólki. Slíkt er
ekki öllum lagiö og er sérgáfa í stjórnmálum. Davíö
hefur átt mikiö af henni en nún nýtur sin ekki eins vel
í ábúöarmiklu embætti forsætisráöherra."
MATTHÍAS JOHANNESSEN, RITSTJÓRIMORGUNBLAÐSINS. „Ég gæti skilið að forsætisráðherra
borðaði hamborgara ef nautið, sem slátrað var, hefði atkvæðisrétt."
ærlegri veislu, þar sem hvorki skorti
vín né mat. Sömu helgi var efnt til
barkvölds í Munaðarnesi og þangað
héldu nokkrir úr hópi Stöðvar 2-
manna til að sletta úr klaufúnum. Eitt-
hvað hefur fyrirgangurinn í þeim þó
farið fyrir brjóstið á sumarhúsagestum
í Munaðarnesi, því þeir sáu ástæðu til
að klaga mennina til lögreglunnar í
Borgarnesi fyrir ruddaskap, þar sem
framkoma Eggerts Slcúlasonar frétta-
manns þótti síst til fyrirmyndar. I þá
mund sem lögreglu bar að voru ófrið-
arseggirnir hins vegar að búa sig til
brottfarar og eftir að verðir laganna
höfðu rætt við þá var málið látið niður
falla.
Tökur licjgja niöri
vegno f jarskorts
Tökur á kvikmyndinni Einni stórri
fjölskyldu, sem áttu að vera í fullum
gangi þessa dagana, hafa legið niðri í
nokkrar vikur. Jóhanni Sigmarssyni,
leikstjóra og handritshöfundi myndar-
innar, hefur gengið illa að fjármagna
framleiðslu hennar og mætt litlum
skilningi í bönkum. Jóhann stendur
einn að fjármögnun verksins og hefúr
ekki enn hlotið styrk frá Kvikmynda-
sjóði, en hann veðjar á góða summu
frá þeim bæ í framtíðinni. Aðrir að-
standendur myndarinnar, tökulið og
leikarar hafa neitað að vinna meira í
myndinni fyrr en leikstjórinn er búinn
að greiða umsamin laun. Heyrst hefur
að menn séu ósáttir við framkvæmda-
stjóm Evu Lísu Ward og þykir ýmsum
hún ekki valda þeirri ábyrgðarstöðu að
skipuleggja og halda utan um tökur
myndarinnar. Við heyrum að Jóhann
sé nú búinn að ráða nýjan fram-
kvæmdastjóra, æskufélaga sinn, leik-
stjórann Júlíus Kemp, en þeir félagar
stóðu sem kunnugt er á bak við met-
aðsóknarmyndina Veggfóður. Svo er
að sjá hvort samstarfið gengur jafn vel
í annað skiptið...
Ekki er allur eldur úr gamla Mogga,
þótt kominn sé á þennan aldur. Nú
heyrum við að fyrir dyrum standi það
sem einhvern tíma hefði þótt róttæk
breyting á útgáfúnni, sem sagt að gera
blaðið að dagblaði og gefa það út á
mánudögum líka. Þetta á að sögn
þeirra sem til þekkja að gerast á næsta
ári.
Hart deilt um dýran
bát
Lögreglan í Reykjavík, Slökkvilið
Reykjavíkur, Flugmálastofnun,
Reykjavíkurhöfn og Slysavarnafélagið
hafa að undanförnu átt í viðræðum
um sameiginleg kaup á hraðskreiðum
bát, sem nota má til björgunarstarfa.
Fæðingarhríðirnar hafa verið erfiðar
og langar, enda virðast hagsmunir
þessara aðila varðandi notkun bátsins
skarast og allt eins líklegt að þeir þurfi
allir að grípa til hans á sama tíma. Lög-
reglustjóraembættið hefúr aðallega í
huga bát sem má nota til að stjórna
aðgerðum af sjó og til löggæslustarfa,
meðan Slöklcviliðið og Flugmálastjóm
hafa í huga björgunarstörf. Þá hefur
Slysavarnafélagið haldið því fram að
það sé til nóg af bátum á svæðinu og
vill stýra umræðunum inn á betri nýt-
ingu þeirra báta sem fyrir hendi eru.
Hefur stjórn Slysavarnafélagsins lagt
ffam tillögu þessa efnis fyrir samstarfs-
nefndina. Gagnrýnendur þessara hug-
mynda segja að þó að það sé alltaf gott
að eiga sex til átta manna bát sem
gangi fjörutíu hnúta, þá verði að huga
að forgangsröð verkefna þessara stofií-
ana og ef eftir því væri leitað væri ef-
laust hægt að finna brýnni not fyrir
þær níu milljónir sem svona bátur
kostar.
SlGTRYGGUR BALDURSSON. Spilar með gítarsnillingnum Adrian Belew. flRNI SAMÚELSSON. Meint brot á samkeppnislögum. EGGERT SKÚLASON. Ruddaleg framkoma klöguð til lögreglunnar. JÓHANN
SlGMARSSON. Fjármögnun á Einni stórri fjölskyldu gengur afleitlega og starfsmenn neita að vinna. JÚLÍUS KEMP. Ráðinn framkvæmdastjóri til að myndin rúlli áfram. HROLFUR JONSSON
slökkviliðsstjóri. Deilt um notkun á 9 milljóna króna bát.
UMNIÆLI VIKUNNAR
„Það er mjöggóður andi í
ríkisstjórninni. “
Davíö Oddsson sannleiksunnandi.
()</ e/tAl oetli/* af)
„Dagvistarstefnan hentar svo vel til að hafa stjórn á konum.“
Sigríöur Ingibjörg Ingadóttir kvenremba.
3hoHitn t ffmtotttit!
„Ég brást þannig við að ég varo rosa reiður.“
Kjartan Pálsson skotmark.
Peningauppspretta í
bankanum
„Ég er ánægður með launin mín.“
Geirmundur Kristinsson, sparibaukur í Keflavík
Sorrí, svehhlur, sar
„Eftirá er ég þakklátur fyrir að hafa aldrei
verið tekinn inn í vinstriklíkuna á íslandi.“
Þorgeir Þorgeirsson mannréttindafrömuöur.
Maftupeninga t menninguna
„Hreinir peningar hafa sjaluan aukið menntun og veg menningar
og lista.“
Guöbergur Bergsson Machiavelli.