Pressan - 04.11.1993, Page 9

Pressan - 04.11.1993, Page 9
Fimmtudagurinn 4. nóvember 1993 F R ETT I R PRESSAN Spilaborgin hrynur í kringum Ólaf Gunnarsson, meintan höfuðpaur fíkniefnahrings DgEYMDI UM VÖLD í DOPHEIMINUM Sönnunargögnin einkum fengin með símhlerunum og játningum samstarfsaðila Ólafur Gunnarsson, meintur höfuðpaur í um- fangsmiklum fíkniefnahring, situr enn í gæsluvarðhaldi, grunaður um að hafa fjár- magnað og stjórnað innflutn- ingi á miklu magni af amfet- amíni og hassi. Margir tugir manna hafa verið teknir til yfirheyrslu í tengslum við þetta mál og að minnsta kosti átta setið í gæsluvarðhaldi. Fimm þeirra hafa viðurkennt að vera viðriðnir innflutning á nærri 20 kílógrömmum af hassi og amfetamíni, en það munu vera Vilhjálmur Svan Jóhannsson, Jóhann Jón- mundsson, Guðmundur Gestur Sveinsson og tveir til viðbótar, en nöfn þeirra hafa ekki fengist tryggilega staðfest. Innkaupsverð á því magni í Amsterdam er um íjórar millj- ónir króna, en til dreifmgar innanlands væri hægt að selja það á yfir þrjátíu milljónir króna. í smásölu væri hins vegar hægt að fá nálægt sjötíu milljónum króna fyrir þetta magn. Ljóst er að mál þetta er eitthvert hið umfangsmesta sem upp hefur komið, enda er talið að um mun meira magn sé að ræða. Neitun Ólafs og mikið sakarefni Ólafur Gunnarsson hefur setið samfleytt í gæsluvarð- haldi frá 1. september. Mönn- um ber saman um að hann hafi ekki játað á sig sakirnar, enda er fullvist að málið fari fyrir Hæstarétt. Hvað sem því líður geta aðeins tvær ástæður legið að baki svo löngu gæslu- varðhaldi. Annars vegar að sakarefnið sé mjög mikið eða að játning liggi ekki fyrir. Lík- lega er hér um hvort tveggja að ræða. Þar sem sakarefhið er mikið er lögð áhersla á að ljúka mál- inu sem fyrst og að sem minnstur tími líði frá því að rannsókn lýkur endanlega þar til dómur fellur. Eru jafnvel leiddar að því líkur að Ólafur muni sitja í gæsluvarðhaldi þar til dómur hafi verið kveð- inn upp, en heimild er fyrir því ef brotið varðar allt að tíu ára fangelsisdómi. Hvort sem sú heimild verður nýtt eða ekki er jafnvel talið mögulegt að klára málið öðru hvoru megin við áramót. Tala>u vr> okkur um BÍLARÉTTINGAR BÍLASPRAUTUN Fjöldi manns í yfirheyrslu og gæsluvaröhald Upp á síðkastið hafa fjöl- margir aðilar verið teknir til yfirheyrslu og að minnsta kosti átta hafa setið í gæslu- varðhaldi um lengri eða skemmri tíma. Síðastliðinn föstudag kom Islendingur til landsins sem lögreglan í Sví- þjóð handtók fyrr í vikunni. Sá er talinn eiga stóran þátt í málinu í tengslum við inn- flutninginn. Sú saga hefur gengið að þar hafi Gunnar Jónsson verið á ferð, en hann var milligöngumaður um kaup á fíkniefhum fyrir Ólaf í gömlu máli sem dómur féfl í fyrr á þessu ári. PRESSAN hef- ur þó mjög traustar heimildir fyrir að svo sé ekki. Þá situr Herbjöm Sigmarsson einnig í gæsluvarðhaldi. Ekki er ljóst fyrir hvaða sakir það er, en tal- ið að hann hafi verið einhvers konar burðardýr. Margir þeirra sem komið hafa við sögu í þessu fíkni- efnamáli hafa verið í fjárhags- vandræðum og tengst fjár- hættuspilum á einn eða annan hátt. Einkum hefur spila- klúbburinn við Súðarvog ver- ið nefndur í því sambandi. Vitað er að Ólafur, Vilhjálmur og Guðmundur hafa allir spfl- að þar, en Guðmundur mun vera sá eini þeirra sem var þar fastagestur. Hann var þó ætíð í fjárhagsvandræðum svo hann spUaði ekki mikið. Eini veru- legi spUamaðurinn sem tengist þessu máli er Knútur Agnar Hilmarsson, tæknifræðingur hjá Rafmagnsveitum ríkisins (sem gengur undir viðumefn- inu „Kúturinn“ í spUaheimin- um), sem sat inni um tíma. Þessir menn hafa allir verið útUokaðir frá spUaklúbbnum. Þorgeir Jón Sigurðsson sat einnig í gæsluvarðhaldi en er laus, svo og Stefán Tyrfings- son, sem viðurkenndi fyrir tveimur árum að hafa fjár- magnað innflutning á tíu kfló- um af hassi. Stefán hefur rekið gufubaðsklúbb við Dugguvog um nokkurt skeið. Samkvæmt heimUdum PRESSUNNAR er hlutur þeirra óverulegur. Sönnunargögn fengin meö símhlerunum Málið er nokkuð sérstakt að því leyti að sönnunargögnin í málinu eru fyrst og fremst fengin með hljóðritun á sam- tölum manna og með sím- hlerunum. Símhleranir hafa ekki áður verið notaðar fýrir dómstólum í fíkniefnamáli, en Hæstiréttur viðurkenndi þær sem góðar og gildar í máli Steins Armanns Stefánssonar í stóra kókainmálinu svo- nefnda. Símtöl Ólafs voru hleruð með heimUd frá hér- aðsdómi en einnig hefur PRESSAN heimildir fyrir því að samtöl Ólafs við Vilhjálm og Guðmund Sveinsson hafi verið hljóðrituð á heimili VU- hjálms. Þá var hlustunarbún- aði komið fyrir í bíl Ólafs. Draumar um völd og viö- urkenningu Heimildamönnum PRESS- UNNAR ber saman um að Ól- afur hafi lengi átt sér þann draum að skapa sér ákveðinn sess í undirheimunum sem málsmetandi maður sem vert væri að taka mark á. Hann vUdi verða einhvers konar for- ingi og hagaði sér sem slíkur. Hann lagði mikið upp úr öllu ytra útliti, var vel til hafður, klæddist dýrum fötum og var með virðulega skjalatösku sem kunnugir segja að hafi þó ekki haft mikið innihald. Ólafur var duglegur við að vera við opnun skemmtistaða, var áberandi í skemmtanalífinu, barst mikið á og virtist ævin- lega hafa mUdð fé milli hand- anna. Flestir voru þó á því að þetta væri í raun sýndar- mennska, því þrátt fyrir um- ÓLAFUR GUNNARSSON. Meintur höfuðpaur umfangsmikils fíkniefnahrings. Fjöldi manna hefur setið í gæsluvarðhaldi og verið yfirheyrður vegna umfangsmikils inn- flutnings á hassi og amfetamíni. fangsmikinn innflutning hafi hann ekki verið hátt skrifaður hjá „stærri" aðilum í fíkni- efnaheiminum. Ekki er heldur að sjá að hann hafi fjárfest að öðru leyti en því að um síð- ustu áramót keypti hann ný- byggða íbúð í Grafarvogi. Ólafur er ómenntaður og eftir því sem næst verður komist hefur hann ekki stund- að reglulega vinna um langt árabil. Ekki hafa fundist nein fyrirtæki sem tengjast nafni hans og ekki er hann skráður fyrir virðisaukaskattsnúmeri. Ólafur mun meðal annars hafa kynnt sig sem fiskútflytj- • • anda sem legði áherslu á Kan- adamarkað, en ekkert bendir til að það eigi við rök að styðj- ast. Hann hafði að jafnaði nokkra aðila sér til halds og trausts og var William Scobie einkum nefndur í því sam- bandi. Innflutningur um langt árabil Ólafur Gunnarsson hefur lengi verið undir smásjá lög- reglunnar, enda er talið að hann hafi staðið í fíkniefna- innflutningi í að minnsta kosti áratug. Fyrr á þessu ári var hann dæmdur í hálfs árs fang- elsi, skilorðsbundið, fýrir inn- flutning á 6.100 grömmum af hassi á níu mánaða tímabili í árslok 1986. Þá slapp hann við fangelsisvist vegna „óafsakan- legs dráttar á málinu" eins og segir í dómnum. Það sem fékk boltann til að fara af stað nú var þegar Vil- hjálmur Svan Jóhannsson, fyrrum veitingahúsrekandi, og Jóhann Jónmundsson voru gripnir í Leifsstöð við komuna frá Amsterdam með þrjú kíló af hassi og 900 grömm af am- fetamíni. Þeir voru settir í gæsluvarðhald og fljótlega ját- aði Guðmundur Gestur Sveinsson aðild að málinu, en þeir rnunu hafa tengst að minnsta kosti þremur svipuð- um smyglferðum fyrir Ólaf. Eftir að þeir voru lausir úr gæsluvarðhaldi greip lögreglan svo Ólaf Gunnarsson á heimili Vilhjálms Svan ásamt Guð- mundi Sveinssyni. Þremenn- ingarnir eru allir lausir úr haldi þótt Vilhjálmur sitji reyndar inni fyrir eldra fjár- málamisferli, en Ólafur er enn í gæsluvarðhaldi. Pálmi Jónasson j/inaijee/ bíunm/i i M fi \ V' ULMOGNUÐ SPENNUSAGA Skáldsagan Vinarþel ókunnugra segir frá hjónum sem hyggjast eiga rólega daga í sumarleyfi sínu í Feneyjum. Þar kynnast þau afar sérstökum og dularfullum manni og í Ijós kemur að þaS er síður en svo saklaus vinátta sem býr aö baki vinarþeli þessa ókunnuga manns. i---^r McEwans enja.fnvís, \ semtakafagna^ösinn mann ...Mct fí^SofógLrogskelfingar- mber sU Au>brekku 14, sími 64 21 41 Hinn breski höfundur, McEwan, hefur smám saman fetaö sig áfram fil heimsfrægðar og er nú í röS viöurkenndusfu höfunda Breta. Einar Már Guðmundsson íslenskaði bókina. ALMENNA BOKLAFELAGIÐ H F

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.