Pressan - 24.02.1994, Side 7
A skyggnilýsingafundi með Þórhalli Guðmundssyni
Þekkir þú Ketil? — en hraðsuðuketil?
ANNA KRISTÍN ARNGRÍMSDÓTTIR
Fékk samband við látna ömmu sína á skyggnilýsingunni
PRESSAN fór á skyggnilýs-
ingafund hjá Þórhalli Guð-
mundssyni um síðustu helgi.
Við gefum Þórhalli orðið, en svör
viðmælenda hans úr salnurn eru
höíð innan sviga.
„Það eru búnar að vera einhverj-
ar breytingar og þessi kona var bú-
in að vera eitthvað veik en hún
leggur áherslu á miklar breytingar
sem átt hafa sér stað í sambandi við
einhverja persónu. Ég heyri líka svo
óskaplega mikinn söng héma, það
er einhver sem syngur hérna á lífi.
Jæja, þetta er nú það fyrsta sem ég
fæ. Hefur einhver áttað sig á þessu
sem ég hef sagt?
Kristanna, er einhver Anna
þarna? (Já) Geturðu eitthvað áttað
þig á því sem ég hef sagt, það á að
tengjast söngur við þig og þú átt að
eiga ömmu sem er farin yfir.
(Ömmu?) Já. (Jájá) Geturðu tengt
hana eitthvað norður í land? (Jájá)
Já og geturðu tengt líka í sambandi
við peysuföt sem þessi kona átti því
það er einhver sem á hlut af þess-
um peysufötum, ekld þú? (Nei) Jú,
fyrirgefðu. Ég þarf að fara með þig
norður, á annað tímabil, ég þarf að
fara með þig þegar þú varst yngri
og hún er að tala um í sambandi
við stokkabelti. (Hún heitir Anna)
Já ég heyri ICristín og ég heyri líka
nafnið Anna. (Anna það er amma
mfn, hún er farin, Kristín er hér
enn) En hvað heitir þú? (Ég heiti
Anna Kristín) Jæja, það er ekkert
annað. En geturðu sldlið, hún legg-
ur svo miHa áherslu á stolckabelti í
sambandi við peysuföt? (Nei, ég get
ekld áttað mig á því) Nei, ég verð
að biðja þig að spyrjast fyrir um
þetta því hún leggur áherslu á og
sýnir bara efri partinn, hún vill ekki
sýna mér pilsið og það á að vera
næla líka sem tengist þessu. Já, jæja,
ástæðan fýrir því að hún er að
koma hingað og ástæðan fyrir að ég
lækna menn með handayfirlagn-
ingu, heilun og slíku. Þeir fá lækna
til þess að koma yfir sig og rniðla
sjúklingnum orku. Þekktastir
þeirra eru Erlingur Kristinsson og
Hafsteinn Guðbjömsson, en
margir hverjir starfa lítið opinber-
lega.
Svo halda sumir því frarn að
okkar bestu miðlar í dag starfi í sér-
trúarsöfnuðunum, þar sem fólk
falli unnvörpum í trans og tali
tungum þótt vitanlega slcrifi ekki
allir undir þá skoðun.
7.000 í sálarrannsóknarfé-
lögum
Guðmundur Einarsson segist
álíta að það séu um 7.000 manns
slcráðir í sálarrannsóknarfélög á tólf
stöðum á landinu; í Reykjavík,
Hafnarfirði, Keflavík, Selfossi,
ætla líka að tala um hring er að þú
varst eitthvað tengd henni þegar þú
varst lítil eða yngri, þessari konu.
(Ertu þá að tala um önimu?) Já, og
þú fórst oft í heimsókn til hennar
og þú hljópst stundum fram og til
baka þarna og það er eins og,
manstu eftir einhverjum stiga? Já,
og manstu eitthvað í sambandi við
það að þú lékst stundum, þú varst
elckJ alltaf sú allra þægasta, geturðu
skilið það? Jæja, þú veist að þú sldl-
ur þetta. Geturðu áttað þig á í sam-
bandi við þegar þú várst eitthvað
að hjálpa henni og hún þurfti
stundum að ýta svolítið á eftir þér?
Viðurkenndu það. Þú ert með
mjög ffjóan huga segir hún og það
þurfti stundum að hemja þig niður
því þú vildir alltaf gera meira og
varst stundum á undan sjálfri þér.
(Rétt) Já, jæja. Já hún vill bara láta
vita að hún fylgist með þér og hún
er svo ánægð. Já, jæja, hún er að
tala um álcveðna erfiðleilca sem þú
ert ósátt við og hvernig þú átt að
taka á, hvernig þú átt að vinna úr
því. Hún segir að þú verðir að hafa
þolinmæði, hún segir að þú getir
eldd predikað þolinmæði við aðra
ef þú getur ekki predikað þolin-
mæði yfir sjálfri þér. Geturðu skilið
þetta? (Já). Gott, fint, jæja. Og hún
er svo ánægð með að þú eigir að
fara og verða við þessu með út-
löndin. Geturðu skilið það? (Ég get
skilið það, já). Fínt, og segðu
mér... Er þetta dóttir þín við hlið-
ina á þér? (Já) Já, og hún er svo
ánægð með hvernig hlutirnir eru
að þróast hjá þér núna vinan og þú
átt ekki að efast. Ekkert að syngja
segir hún, er það? (Nei). Nei, láttu
hina um það, ekld byrja líka. Hún
meinar þetta allt í gríni, góðu. Það
er mikil músík í kringum þig og
hún er svo ánægð með hvemig það
hefúr þróast en hún hefði mátt fá
meira sjálfstraust, sú sem syngur.
Blönduósi, Húsavík, Akureyri, ísa-
firði, Sauðárkróki, Stykkishólmi,
Akranesi og Vestmannaeyjum.
Aðrir telja þá tölu stórlega ofmetna
og segja að aðeins hluti þeirra sé
virldr félagar og borgi félagsgjöld.
Einnig benda margir á að það sé
merkilegt hve fáir miðlar eru á Is-
landi og starfinu sé haldið uppi af
breskum miðlum. „Það er eldcert
skrítið og þeir eru ekkert fáir,“ segir
Guðmundur Einarsson. „Þeir vilja
bara ekki starfa. Þeir vilja ekki gefa
sig út í það að vera að fá krítik frá
efasemdamönnum, þeir bara starfa
í lokuðum hópi auk þess sem það
er viss kostur að flytja inn miðla,
því þá fá menn fjölbreytileika í
hæfileikum.“
Prinsipplitlir og slakir miðlar
„Þessi þrjú þekktustu eru ljóm-
Skiljið þið það? Áttu systur sem
syngur? (Já) Breiddu ekki yfir hlut-
ina, leyfðu hlutunum að þróast hjá
þér, því það er vorið sem mun
skipta mjög miklu máli fyrir þig og
það verður mjög viðburðaríkt vor-
ið hjá þér prívat og persónulega. En
skólinn hjá yngri stelpunni þarf að
halda áffam. Ekki láta loka dyrun-
um, hafa opnar dyr. Því það er eins
og það séu nokkrar dyr sem eru að
opnast og geta opnast hjá þér. Ekki
loka þeim, láta þær opnast sjálfar
og þú munt sjá hvert þú átt að
stefina. Ertu sátt við þetta? Jæja. Þú
hefur verið slæm í hálsinum. (Nei)
Víst. Ertu búin að hafa áhyggjur af
einhverri hæsi? Eitthvað þegar þú
vaknar, eitthvað sem þú ert ósátt
við í sambandi við hálsinn? Kann-
astu ekkert við það? Hvað, þú hlýt-
ur nú að vera að læra einhverja
rullu núna. Fyrirgefðu. (Já) Og
hvaða raddbreytingu og -beitingu
þarftu á að halda? (Það er nú eldd
neitt sérstakt núna, en það er
reyndar mitt starf) Já, mundu effir
þessu, hún leggur svo mikla áherslu
andi góðir miðlar, hvert á sinn
hátt,“ segir Konráð Adolphsson,
forseti Sálarrannsóknarfélags ís-
lands. Guðmundur Einarsson, fyrr-
verandi forseti félagsins, tekur í
svipaðan streng en segir erfitt að
nreta gæði miðla, á sama hátt og
gæði söngvara. Hann leggur einnig
áherslu á að sérhver fundur sé í
raun tilraun. Hann segir hins vegar
að enginn verði miðill nema hann
fái að glíma við verkefni og öðlist
sjálfstraust. Margir eru þó á því að
núlifandi miðlar séu takmarkaðir í
samanburði við menn eins og
Indriða Indriðason, Láru Ágústs-
dóttur og Hafstein Bjömsson.
Indriði er talinn þeirra bestur og er
getið um hann í bókinni Holo-
gramic Universe. Lára er þó þekkt-
ust, einkum fyrir að hafa verið
dærnd fyrr á öldinni fýrir að nota
tjöld á miðilsfundum, en núorðið
eru menn ekki í nokkrum vafa um
að hún hafi verið mjög hæfileika-
rík.
Magnús Skarphéðinsson,
áhugamaður um andleg málefni og
skólastjóri Sálarrannsóknarskólans,
er elcld sammála þeim Konráði og
Guðmundi: „Það sem er að öllum
þessum miðlum, Þórhalli mest, er
að þeir hafa aldrei þorað að vinna
með vísindamönnum, þeir þola
JÓNA RÚNA KVARAN
Einn þekktasti miðill landsins
til fjölda ára.
á þetta með hálsinn. Mundu eftir
þessu. Ertu sátt við þetta vinan?
Farðu ekki of geyst, í guðanna
bænum. Það er kominn hérna
maður sem heitir Jón...“
Það gekk mun erfiðar að tengja
síðari aðilann sem kom til Þórhalls
við einhvern þeirra á annað hundr-
að gesta sem samankomnir voru í
Háskólabíói. Þórhallur sagði
hann hafa átt í erfiðleikum
með fæturna í lifanda lífi eða
að það hefði jafnvel vantað á
annan fótinn. Einnig lagði sá
framliðni áherslu á lélega
heyrn sína og Þórhallur fann
sterka neftóbakslykt.
„Þegar þessi maður var hér
þá snýtti hann sér og það var
ekki farið faglega að því, hann
lét það gossa.“ Þórhallur var
sannfærður um að viðtakand-
inn væri staðsettur í vinstri
hluta salarins en þar kannaðist
enginn við þennan Jón. Eftir
langa mæðu spurði kona í
miðjum salnum hvort hann
væri með tréfót. I eftirfarandi
ekki gagnrýnin vinnubrögð og
gagnrýna hugsun. Þeir þora
ekki að setja sér markmið og
reyna að ná þeim, þetta er allt í
einhverri óljósri þoku. Það er
reiginmunur á hreyfingunni
nú og það sem áður var og í
því felst niðurlæging hennar;
annars vegar því hvað miðl-
arnir eru prinsipplitlir og hins
vegar hvað fólkið í kringum þá
gerir litlar kröfur.“ Hann segir
að líklega hafi aldrei hærra
hlutfall þjóðarinnar trúað á líf
eftir dauðann en á sama tíma
hafi aldrei verið eins lítið af
sterkum miðlum. Hann telur
að það stafi ekki af skorti á
hæfileikum heldur skorti á
þjálfun og vísindalegri hugsun,
auk þess sem erfitt sé að vera
miðill í því umhverfi sem við
lifum við í dag.
Annar þekktur spíritisti seg-
ir að miðlar séu annars eðlis
nú en áður. Áhugi fólks fyrr á
öldinni hafi verið á að fá sönn-
un fýrir lífi eftir dauðann, þvi
hafi sönnunarmiðlar verið
ríkjandi eða svonefndir djúp-
svefnsmiðlar. Nú trúi 80%
þjóðarinnar á líf eftir dauðann
og áhuginn beinist að andlegri
uppörvun og persónulegum
leiðbeiningum. Miðlar nú séu
því mun sálfræðilegri en áður
og fólk leiti að persónulegri
sálarköfun sér til handa. Auk
þess taki djúpsvefnsmiðlun
mun meiri toll af miðlinum og
hann geti þjónað mun færri í
hvert skipti.
Magnús segir að algengt sé
að um 20-40 prósent af því
sem miðlar segi á fundum
reynist rétt, þau bestu hér á
Iandi nái um 40-50% en þeir
allra bestu í heiminum nái
60-80% að meðaltali.
PálmiJónasson
frásögn kann að vanta eitthvað á
svör viðmælandans, sem heyrðust
illa.
„Hann kemur núna til að segja
að hann kemur núna og verður
mikið á ferðinni hjá sínum og hann
segir taktu allt í víðu samhengi og
hann er þá m.a. að tala til þín, því
hann þarf að láta vita af því að hlut-
irnir hjá fólki sem er ekki búið að
vera hér á jörðinni eru búnir að
ganga erfiðlega en hann vill samt
sem áður láta vita að það er stutt í
þetta blessaða ljós, sem er búið að
vonast eftir. Segðu mér þá, ég verð
að fara út á land með hann. Já og
ég þarf líka að fara þar sem hann
bjó, ég þarf að fara í gamalt hús. Og
þetta hús, sjórinn er þarna nálægt.
Já og geturðu skilið þegar ég tala
um fjörð eða vík eða eitthvað þess
háttar? (Fjörð) Takk, og hann legg-
ur áherslu á að hann búi á svipuð-
um stað eins og hann var, þar sem
hann er núna. Skilurðu þetta? Jæja.
Og það eru sumir karlmenn í fjöl-
skyldunni sem trúa ekki á sálina,
segir hann. (Já) Og hann segir
aumingja þeir. Og hann segir að
þegar þessir aðilar koma yfir þá
verði tekið á móti þeim og hann
segir að þeir muni ekki sjá eftir því.
Segðu mér annað. Hann segir að
hann þurfi að láta vita að fæðingin
muni ganga vel. (Ha?) Jæja, þá
veistu að það er barn á leiðinni.
Hver er Ketill? (Það er ekki gott að
segja, er hann farinn eða lifandi?)
Geturðu skilið, varstu að vesenast
eitthvað með hraðsuðuketil? (Ja,
fýrir nokkuð löngu síðan) Já. Hann
vill bara láta vita að hann fýlgist
með þér og hann segir að þér sé
óhætt að treysta. Þú átt að fýlgja
eftir og þú skalt hugsa til hans,
fylgja eftir þinni eigin sannfæringu.
Hann er mjög ákafur í að láta vita
að hann sé hérna og hann labbaði á
trégólfi og það heyrðist eins og
þung högg þegar hann var labb-
andi, það fór ekkert á milli mála
hver það var á ferð. Hann vill láta
vita að hann fýlgist með þér. Ertu
sátt við þetta vinan? Var þessi ketill
eitthvað bilaður? (Nei, ég fékk mér
nýjan) Það á að vera til gamall. (Já)
Þú gast sarnt notað hann (Já). Já,
hann vill leggja áherslu á þetta með
hraðsuðuketilinn. Þá er hann far-
inn. — Jæja kæru vinir...
Pension Ingeborg Flogið beint til Salzburg laugardaginn
12. mars. Flogið heim frá Lúxemborg laugardaginn
19. mars. Ef þátttaka er nægjanleg, verður ekið í rútu
til Lúxemborgar; lagt af staðfrá Pension
Ingeborg kl. 24.00 föstudagskvöldið
18. mars.
á mann í tvíbýli í viku.
Innifalið: Flug, gisting í eina viku með morgunverði,
akstur frá flugvelli á hótel, íslensk fararstjóm og flugvallar-
skattar. Gjald fyrir rútuferð til Lúxemborgar er ekki
innifalið.
*Vcittur er 5% staögreiðsluafsláttur sé greitt minnst 14 dögum fyrir brottför meö reiöufé.
Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðs-
menn um allt land, ferðaskrifstofurnar eða í síma
690300 (svarað alla 7 daga vikunnar frá
kl. 8 -18.)
FLUGLEIÐIR
Traustur íslenskur ferðafe'lagi
3E (D
GUÐMUNDUR EINARSS0N
Fyrrverandi forseti Sálarrannsóknarfélagsins segir hinn mikla inn-
flutning á breskum miðlum ekki bera vott um lítil gæði íslenskra
miðla heldur sé verið að þjóna efasemdamönnum sem telji þá að-
eins góða ættfræðinga auk þess sem það auki fjölbreytileikann.
FIMMTUDAGURINN 24. FEBRÚAR 1994 PRESSAN 7