Pressan - 24.02.1994, Qupperneq 14
Erum við bestir?
S K Á K
ILLUGI
JÖKULSSOIM
ULF ANDERSSON. Sterkasti skákmaður Norðurlanda — og líka sá
leiðinlegasti?
Sú var tíðin að íslendingar
þóttust eiga jaíh marga stór-
meistara í skák og öll hin
Norðurlöndin til samans. Það var
nú að vísu aldrei alveg rétt, en samt
svona nærri því. En nú er öldin
önnur. íslendingar eru að sönnu
oftast hæstir Norðurlandanna á
ólympíuskákmótum en okkar sex
stórmeistarar á Elo-listanum kom-
ast ekki í hálfkvisti við íjórtán stór-
meistara hinna Norðurlandaþjóð-
anna.
Svíar eiga nú sjö stórmeistara.
Efstur á listanum trónir hinn
furðulegi skákmaður Ulf Anders-
son sem verður 43 ára á þessu ári.
Hann hefur staðið af sér allar atlög-
ur sem sterkasti skákmaður Norð-
urlanda og hefur yfirleitt kringum
2.620 Elo-stig. Þetta tekst Anders-
son þrátt fyrir að hann virðist hafa
fengið högg á höfuðið einhvern
tíma og síðan trúað því að mark-
miðið með manntaflinu sé að gera
sem allra flest jafntefli. Þau eru
óteljandi skákmótin þar sem þessi
friðsami Úlfur vinnur eða tapar
einni skák en gerir jafntefli í öllum
hinum. Samt er hann sterkasti
skákmaður Norðurlanda. Það eru
greinilega fleiri en Rússarnir sem
„kunna á“ Elo-stigakerfið. Næst-
sterkastur Svía er Ferdinand Hell-
ers, 25 ára, með 2.560 stig. Hann
varð Evrópumeistari komungur og
síðan hafa Svíar vonast til að hann
tæki við af Andersson, enda er
hann öllu fjörugri skákmaður.
Hellers hefur hins vegar tekið sér
lengri tíma á ffamabrautinni en
búist var við og nú er orðið óvíst
hversu langt hann muni ná. Aðrir
sænskir stórmeistarar eru um þess-
ar mundir á reiki kringum 2.500
stiga markið. Þeir, eða þau, em
Lars Karlsson (38 ára, 2.520 stig),
Pia Cramling og Jonny Hector
(bæði þrítug með 2.515), Thomas
Ernst (33, 2.480) og Harry Schú-
ssler (36, 2.465). Af þeim eru Pia
og Hector vinsælust meðal móts-
haldara — hún var fyrsta konan
sem ógnaði veldi sovéskra kvenna
og tefldi eingöngu á karlamótum
en Hector virðist hafa sett sér það
göfuga markmið að verða alger
andstæða Ulfs Anderssons. Hann
gerir eiginlega aldrei jafntefli, tapar
ansi oft en vinnur líka marga góða
sigra. Þrátt fyrir þessa sterku skák-
sveit og þó nokkuð af alþjóðlegum
mótum er eins og einhver deyfð
ríki í sænsku skáklífi. Þar gerist fátt
spennandi nema spriklið í Hector.
Svíar eiga nokkra öfluga alþjóða-
meistara sem sumir gætu öðlast
stórmeistaratign á næstu árum
(ekki síst ef þeir sýna sama metn-
aðarleysið og Schússler sem sótti
um, og fékk, stórmeistaratitil út á
það að hann hefði svo oft náð loka-
áfanganum næstum því!) en engin
stjarna er þar í uppsiglingu. Eftii-
legasti skákmaður Svía nú er ugg-
laust Jonas Barkhagen,19 ára al-
þjóðameistari með 2.430 stig.
Hafi sænskt skáklíf lengi verið í
þrúgandi skugga Anderssons hafa
danskir skákmenn á hinn bóginn
ennþá lengur baðað sig í ljóma
Bents Larsens — en að vísu ekki
með öllu betri árangri. Larsen hef-
ur enn 2.560 stig, alveg að verða 59
ára. Það var ekki fyrr en um miðjan
síðasta áratug sem Danir eignuðust
annan stórmeistara sem ógnaði
Larsen, það var vitaskuld Curt
Hansen, sem verður þrítugur á
þessu ári. Curt virtist fyrir fáeinum
misserum á góðri leið með að sldpa
sér í flokk tíu til tuttugu sterkustu
skálunanna heims með vandaðri
taflmennsku sinni en tók þá dýfu
og hefur nú 2.580 stig. Annar Han-
sen tryggði sér stórmeistaratign í
kjölfar hans, Lars Bo, sem nú er á
26. ári. Hann er mikill um sig og
þykir ffernur skemmtilegur skák-
maður, nokkuð mistækur að vísu,
og hefur nú 2.545 stig. Danir eiga
slatta af alþjóðameisturum sem
hafa stritað lengi við að ná stór-
meistaratign en með ótrúlega
slöppum árangri. Peter Heine Ni-
elsen er enn þeirra efnilegastur svo
ég viti til, tvítugur að aldri með
2.475 stig.
Norðmenn létu lengi lítið á sér
kræla við skákborðið en það
breyttist með tilkomu Simens Ag-
desteins. Agdestein er ekki nema 26
ára en var orðinn sterkasti skák-
maður Norðurlanda fýrir þó
noklcrum árum — þá silaðist And-
ersson aftur ffarn úr honum og Ag-
destein lækkaði líka á stigum. Nú
hefur hann 2.595 stig eins og Jó-
hann Hjartarson. Agdestein hefúr
eins og allir vita mörg áhugamál
sem draga úr skákiðkun hans —
hann var ti! dæmis orðinn lands-
liðsmaður í knattspyrnu fyrir
nokkru en ekki hefur spurst til
hans á fótboltavellinum um skeið.
Agdestein er sókndjarfur og bráð-
skemmtilegur baráttuskákmaður
se'rrrhefúr marga hildi háð við ís-
lensku stórmeistarana — satt að
segja hefúr hann oftar en ekki haft
betur. Fari hann að tefla meira á
næstunni er meira en líklegt að
hann komist fljótlega í hóp öflug-
ustu skákmanna heims. Að vísu
gæti þá líka farið svo að hann glat-
aði þeim soltna neista sem ein-
kennir oft taflmennskuna. Næsti
stórmeistari Norðmanna gæti orð-
ið Einar Gausel, þrítugur, með
2.485 stig — en hann vakti athygli
íslendinga fyrir noldau þegar hann
tók sér fyrir hendur að sanna í
grein í norsku skákblaði að íslend-
ingar væru ómögulegir skálcmenn.
Rune Djurhuus vakti mildar vonir
landa sinna þegar hann stal Evr-
ópumeistaratitli unglinga af Hann-
esi Hlífari fýrir nokkrum árum en
síðan hefúr hann látið ffemur lítið
að sér kveða. Hann er orðinn 24
ára og hefur 2.460 stig.
Finnskir skákmenn eru kapítuli
út af fyrir sig. Finnar eiga heila þrjá
stórmeistara en þeir eru allir meðal
stigalægstu stórmeistara í heimi, og
þótt víðar væri leitað. Jouni Yrjöla,
33 ára, er þeirra stigahæstur ef svo
má að orði komast, með 2.440 stig,
en Heildd Westerinen (49 ára) og
Yrjö Rantanen (43ja ára) hafa báðir
2.355 stig — sem eru jafn mörg stig
og til dæmis Andri Áss Grétarsson
hefur, og vona ég að honum þyki
sér eldd svivirða gerð með þessum
samanburði.
fc>\ Skvpw* , Pr«l4u twor
■ 3.0
>3r ar-í-ii ecfi'4-} vppdtrlHj
áá-5-o-j^u
3 F tsoYVMjWx
cfðsv*i w\á
Wv€ cvmo .ftjd /av- Es'j r
JeV\SScvYkq
gyíf rjfJ/1 «9 'jyvjS p u rn
i-J-)
!x jgSb
viv a' .
viiifas/u t
i KjaLFApoRM Sfcipw
I B|s£új>s ö(c fjALA&t FVPS
VzAK FFMr TIL PJeesrrA^/^/6S.
uNjDíE-VF?^ícp/Fr/N//v /
j f
1
GawailmaWa 'za-
FlRP/ HHt frf. FMM
GUÐ VÆZ} A IPve.
SpM QYGLi i (cUFFu-
CTB.PW4
> LIA! 6 c, 5 A
GOPÍ PÆ-TT/
Ajcuery'e.i vipd' .
I
1 Xvóit>) N
H VíSl
MANiV fc'g/i/A/1 £.
F<SKvf!£>i$Tj^N
VH> HASho/A r
OSLO'
P. vfi
V IÍ> BISKu P | SJOA/VA V-* I"
znisim-ozo
SÖGUR LÝÐVELDISINS #5
© STEINGRÍMUR EYFJÖRÐ & SJÓN
14 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 24. FEBRÚAR 1994