Pressan - 24.02.1994, Page 18
Aukaverkanir bruggæðisins
Fertugur hundeigandi sneri á skattinn
Fiskurinn í
Faxaflóanum
dottinn í það
Skrtfaði allar Mdmar
i feaadiaa
— „Smuga sem við verðum einhvern
veginn að fylla upp f,“ segir skatt-
rannsóknarstjóri
Reykjavík, 23. febrúar.
Upp hefur komist um óvenjulegt athæfi hundeiganda hér í bæ, sem
tpkist hefur að vera skattlaus í mörg ár. Svo virðist sem honum hafi tekist
að fá kennitölu út á hundinn sinn Vask sem gerir honum kleift að setja
allar sínar tekjur á hundinn, en hann er skattlaus eins og önnur dýr.
„Jú, það er rétt; Vaskur er skrifaður fyrir öllum mínum tekjunr og
eignum. Endurskoðandi minn segir að það sé ekkert ólöglegt við þetta.
Hundurinn hefur tekjurnar og ég fæ að búa hjá honum,“ sagði Þórhallur
Pálsson, fertugur heildsali hér í Reykjavík. „Ég sagði þeim bara að ég væri
að fá Vasknúmer og fékk kennitölu á Vask á sínum tíma. Það var upp-
hafið að velgengni minni,“ bætti Þórhallur við.
„Við vitum af þessum manni en getum því miður ekkert gert. Allt sem
hann hefur gert er innan ramma laganna,“ sagði Skúli Eggert Þórðarson
skattrannsóknarstjóri.
„Þetta sýnir okkur að við verðum að fara að skattleggja dýr eins og
aðra þegna landsins," sagði Friðrik Sophusson fjármálaráðherra. •
Þórhallur og Vaskur halda upp á enn eitt skattlaust árið.
iHæstaréttardómarar taka af skarið í.húsnæðismálum
Dæmdu
sér Alþingishúsið
r
Ahugasvið tannlækna færist yfir í dýraríkið
Hestar á íslandi með betri
tennur en fimm ára börn
HVERT KILO flf
LfllflBflKJÖTI
Bestu kaupin ílambakjöti á aðeins 398kr./kg
íncestu verslun
*Leiðbeinandi smásöluverð
Gunnar Hafsteinsson tann-
læknir: „Eigendur hesta eru
einfaldlega með betri greiðslu-
stöðu en foreldrar þannig að
það er eðlilegt að tannlæknar
leiti hófanna þar.“
— „deilum ekki
við dómarana,"
segir Davíð Odds-
son forsætis-
ráðherra
*
Hrafn Bragason, forseti Hæsta-
réttar: „Þeir geta bara reynt að
áfiýja."
Viktor Gunnarsson laganemi ásamt þeim Þuru og Guðbjörgu.
„Maður reynir að taka á þessu með víðsýni."
Reykjavík, 23. febrúar.
„Auðvitað er gleðilegt þegar
tekst að ná þessum bruggurum, en
við teljum varasamt að hella þessu
öllu niður í niðurföll þaðan sem
það berst út í Faxaflóann,“ sagði
Magnús Jóhannesson í umhverfis-
ráðuneytinu, en umhverfisvernd-
armenn hafa miklar áhyggjur af
niðurhellingu bruggs í kjölfar her-
ferðar lögreglunnar.
Nýjar rannsóknir hafa leitt í ljós
að fiskur í Faxaflóanum hagar sér
mjög einkennilega. „Það má segja
að ekki sé edrú fiskur í flóanum,11
sagði einn vísindamaðurinn.
„Mér finnst fiskunum búin
grimmileg örlög og það er ekki
viðunandi að þeir séu hafðir í
þessu ástandi,“ sagði Árni Helga-
son bindindisfrömuður.
„Fiskurinn í Faxaflóanum hefur
haft alveg sérstök bragðgæði upp á
síðkastið. Hann nánast veiðist
maríneraður," sagði Rúnar Mar-
vinsson matreiðslumeistari.
Lífsreynslusögur GULU PRESSUNNAR
Kom að kænistiumi meö frænku sinni
Reykjavík, 23. febrúar.
„Auðvitað reynir þetta á
sambandið, en maður reynir að
taka þessu af víðsýni," sagði
Viktor Örn Gunnarsson laganemi
sem segir GULU PRESSUNNI
lífsreynslusögu sína þessa vik-
una. Viktor varð fyrir þeirri sér-
kennilegu lífsreynslu að koma
að kærustunni í rúminu með
frænku sinni.
„Auðvitað hafði maður lesið
um svona hluti í Nýju lífi en ein-
hvern veginn ekki áttað sig á því
að þetta gæti gerst hjá sér. Fyrst
upplifði ég rosalega höfnun, síð-
an ferlega niðurlægingu og að
lokum óstjórnlega reiði. Þá buðu
stelpurnar mér að vera með og
skömmu síðar leið mér mjög
vel," sagði Viktor, sem hefur
jafnvel í huga að stofna samtök
utan um reynslu sína.
18 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 24. FEBRÚAR 1994