Pressan - 09.06.1994, Page 19
Lífið eftir vinni
fc
Hverjir voru hvar?
Hefur einhver heyrt minnst á skó úr kókoshnetuberki? Fáir, gerir
maður ráð fyrir. Enda í fyrsta sinn, svo vitað sé, í ár sem slíkir skór
líta dagsins Ijós. Skóverslunin Bossanova, sem verður að teljast í
hópi frumlegri skóverslana á norðurhjara veraldar, býður nú við-
skiptavinum sínum kókoshnetuskinnskó með gúmmísóla. Skórnir,
sem frekar mundu teljast hitabeltisskór, eru eðli málsins sam-
kvæmt hvorki miklir um sig né verklegir og hæfa því að sögn ekki
miklum íslenskum sumarrigningum. Þeir eru búnir til í Bangladesh
en á vegum fyrirtækisins Red and Dead, fyrirtækis sem er þekkt fyr-
ir hönnun frumlegs skófatnaðar sem og fyrir háan gæðastaðal.
Þeir sem á annað borð hafa komist í snertingu við kókoshnetur
vita að börkurinn er grófur, brúnn og svolítið loðinn. Þannig eru
skórnir einnig. Fólk spáir mikið í þá þótt verðið sé í hærri kantinum
miðað við burði. Þeir kosta 3.900, eru aðeins til í örfáum eintökum
og hljóma óneitanlega umhverfisvænir.
Á sunnudag
...Tilrauninni ísland í 50
ár sem er
yfirskrift
Málþings á
vegum Iista-j
hátíðar sem
þeir Val-
garður Eg-
ilsson og
K r i s t j á n
Kristjáns-
son stjórna í Háskólabíói
klukkan 4. Fullt af fantagóð-
um fyrirlesurum úr öllum
áttum, sem geta verið hver
öðrum skemmtilegri þegar
svo ber undir. Þeir sem eru
lasnir (aðrar afsakanir eru
ekki teknar til greina) geta
hlustað á beina útsendingu á
Rás 1.
Sukkaðir
englar
su
g^m mmgjt Hin gullnu öx ★★★ Awber
9H|3IOb Waves á RÚV á fimmtudags-
kvöld. Bandarísk sjónvarps-
mynd frá 1980 um unga og hrokafulla ljósmynda-
fyrirsætu sem fer í sveitina. Hrokinn rennur eflaust
úr henni þegar hún hittir Kurt Russell, þann fína
skrokk.
Saint Etienne og Underworld
★★★★ á RÚV á ftmmtudagskvöld.
Um þessar frábæru grúppur sem
heimsækja okkur með rúmlega viku
millibili er mjög erfítt að gera vond-
an þátt, sérstaklega ef þáttargerðar-
mennirnir heita Eiður Snorri og
Einar Snorri.
Herbergið ★★★ The L-shaped
Room á Stöð 2 á fimmtudagskvöld. hetta er bresk sixtís-mynd um franska
ólétta slelpu sem flyst inn í niðurnítt hús þar sem ýmiss konar ruslaralýð-
ur býr. Stelpan verður vitanlega ástfangin af lúser-rithöfundinum sem
þarna býr og þá hefst stuðið.
Varist: Á hálum ís H Cutting Edge á
Stöð 2 á föstudagskvöld. Róm-
antísk gamanmynd um freka rússneska kontt og
góðan bandarískan karl sem stefna bæði á að fá
gullverðlaun fyrir listhlaup á skautum á Ólympíu-
leikunum. Þau etu iátin skauta saman, eru náttúru-
lega fúl fyrst, en svo endar auðvitað allt í geigvænlegri hamingju. Rusl fyr-
ir fábjána.
Laugardagur, sunnudagur, mánudagur ★ Sabato, domenica, limedi á
RÚV á föstudagskvöld. ítölsk sjónvarpsmynd í léttum dúr um viðburða-
rtka helgi í lífi roskinna hjóna í Napólí. Hin aldna fcgurðardís Sophia
Loren leikur aðalhlutverkið. Gamla fólkið í Napólí skemmtir sér eflaust
ágætlega en við efumst um að íslenskir sjónvarpsáhorfendur geri það.
Þátturinn er tvískiptur, seintti helmingurinn á laugardagskvöld — finndu
þér eitthvað betra að gera.
Hart á móti hörðu H Markedfor Death á Stöð 2 á fóstudagskvöld. Ste-
ven Seagal eltist hér við dóps<tlann Screwface sem heldur gamla hverftnu
hans í heljargreipum. Enn býður hin listfenga gæðastöð Stöð 2 okkur upp
á veislu fyrir augu og eyru.
...Bingói í Vinabæ sem er
haldið öll sunnudags-, mið-
vikudags- og föstudagskvöld
kl. 19.15. Þótt vinningarnir
séu ekki risavaxnir má alltaf
hafa stólpagaman af góðu
bingókvöldi. Gott er að und-
irbúa sig fyrir nýja viku með
því að heyra ljúfsára rödd
kynnisins lesa upp númerin
og fylgjast með þegar gamla
fólkið rýkur upp ljómandi af
hamingju og æpir „Bin-
gó!“.Þú ljómar svo auðvitað
líka ef svo ólíklega vifl til að
bingóið lendi hjá þér.
Sumardagskrá Ömmu Lú hefst um helgina og ber yfirskriftina „Kokkteill í sumar".
Áhersla verður lögð á heita suðræna tónlist og nýjan kokkteilbar skreyttan vínberjum, sem engill
trónir ofan á í öllu sínu veldi. Fjölbreytt miðnæturskemmtun verður svo hverja helgi og ríður Battú-dans-
hópurinn á vaðið, en í sumar verður þarna fjöldinn allur af skemmtikröftum svo sem Defína-ásláttardú-
ettinn, Jón Ólafsson, Ellen Kristjáns, Bogomil Font og Bergþór Páls-
son, sem ætlar heldur betur að skipta um gír og taka ABBA-lög fyrir
viðstadda þegar þar að kemur.
„Þarna verður júmbóbar þar sem seldir verða rosalegir kokkteil-
ar sem ekki hafa sést áður hvað varðar útlit og bragð. Þú getur feng-
ið kokkteil í kókóshnetu og „dinner for two", en það er melóna fyllt
með ávöxtum og víni."
En hvað stendur þessi engill fyrir?
„Hann er þarna vegna þess að fyrstu englarnir sem sögur fara af
voru svolitlir sukkarar. Þeir voru feitir og pattaralegir, borðuðu mik-
ið, drukku og stunduðu villt kynlíf."
Á vel lukkuðum tónleikum bari-
tónsaxófónleikarans Gerrys Mullig-
an í Háskólabíói á föstudagskvöld
voru
Vigdís Finnbogadóttir forset'i Is-
lands, bankastjórarnir Ásmundur
Stefánsson, Ragnar Önundarson
ogValurValsson.
Það voru fleiri á Ham-tónleikun-
um en þeir sem koma fram á mynd-
unum í blaðinu, þar á rneðal Óskar
Jónasson kvikmyndagerðarmaður,
Jón Ólafsson í Nýdanskri, Sóley El-
íasdóttir leikari, Ingibjörg Óskars-
dóttir, Magga Stína útvarpsmaður,
'
Einar örn Benediktsson hr.
smekklaus, Stefán Jónsson leikari og fleiri og fleiri.
Meðal gesta á Café Óperu á laugardagskvöld voru Sævar Baldurs-
son lengstum kenndur við Plaza, Valdi og Ragnheiður, Einar Pálma
og Erla í Kók og auðvitað aðrir.
Meðal gesta á Sólon Islandus á
laugardagskvöld voru Hafnfirð-
ingarnir Þorgils Óttar Mathiesen
fyrrverandi bæjarfulltrúi og dr.
Olafur Þ. Harðarson lektor í
stjórnmálafræði. Þarna voru líka
nokkrir úr hópnum sem er að
setja upp 9. sinfóníu Beethovens,
þau Sverrir Stefánsson, Áslaug
og Sigrún Thorlacius, Amgeir
Heiðar Hauksson, Helga Am-
alds brúðugerðarkona og Skúli Mogensen kortasali.
Gísli Gíslason lögfræðingur var á tískusýningu Ellu á Tveimur vin-
um á föstudagskvöld.
Á Hótel Borg á sunnudags-
kvöld voru auk allra hinna vin-
irnir Valgerður Mattluasdóttir
og Hans Kristján Ámason og
hjónin Jón Ólafsson og Helga í
Skífunni, aldrei glaðari.
Sjómannadagurinn fer að
verða eins og 17. júní ef ffam
heldur sem horfir tneð sölutjöld
og barnafólk í miðbænum. Með-
al þeirra sem voru þar á ferð voru
Þröstur Leó Gunnarsson leikari og fjölskylda og Leifur Leópoldsson
nýaldarfrömuður.
Hin dularfiillu endalok Edwins Droods ★★★ The Mystay of Edwin
Drood á RÚV á laugardagskvöld. Bresk sakamálamynd byggð á síðustu
sögu Charles Dickens sent hann náði ekki að ljúka fyrir dauða sinn. Er þá
cnginn endir á þessari mynd? Við höfum
enn ekki séð vonda breska sakamálamynd
og því tökum við sénsinn á þessari.
Ásgerður Búadóttir myndlistarmaður
★★★ á RÚV á sunnudagskvöld. Hrafn-
hildur Schram listffæðingur ræðir við Ás-
gerði Búadóttur vefjarlistarkonu. Þáttur fyr-
ir alla senr hafa áhuga á vefjarlist — og hver
hefur það ekki?!
Skjaldbökuströnd H Turtle Beach á Stöð 2 á laugardagskvöld. Veru-
lega vond áströlsk mynd um blaðakonu sent fer til Malasíu. Reynt er að
blanda santan pólitískum tryTli og tilfinningalegu drama en útkoman er
misheppnað drasl.
Út í bláinn H Delerious á Stöð 2 á sunnudagskvöld. U.þ.b. tíunda end-
ursýning á einni lélegustu gamanmynd Johns feita Candy — blessuð sé
minning hans. Myndin er gott dæmi um hugmyndaskortinn í Holly-
wood eins og hann gerist vcrstur.
Varist líka að láta henda ykkur það sem gerðist í þessum dálki í síðustu
viku í umfjöllun um Gang lífsins. Orðbragðið sem þar var viðhaft unt
drenginn sem leikur Corky var til skammar. Við biðjum þá velvirðingar
setn urðu þar óbeint fyrir barðinu á smekkleysu og tillitsleysi.
FIMMTUDAGURINN 9. JÚNÍ 1994 PRESSAN 19B