Tíminn Sunnudagsblað - 12.08.1962, Page 8
„Samþykkja nú Islendingar
þetta?“
„Ja, nú get ég ekki svarað“, segir
Guðbrandur. „En mig grunar, að
þeir geri það ekki“.
Vakti hann um leið athygli
þeirra á eftirfarandi atriði, sem
stæði í 1. gr. nefndarfrumvarpsins
— og síðar var þannig þýtt á ís-
lenzku:
„ísland er frjálst, sjálfstætt land
sem verður ekki af hendi látið, og
er samtengt Danmörku þann veg,
að það hefur sama konung og þau
mál sameiginleg, sem til eru tekin
í þessum lögum eftir samkomulagi
á báðar hliðar, og verður eitt ríkis-
sambanjfl, Danaveldi. Konungstitill-
inn er: Konungur Danmerkur og
íslands“.
Vissulega reyndist grunur GuS-
brands réttur, er til átakanna kom
út af uppkastinu.
III.
Skfömmu síðar hófust fundahöld,
bæði hér á landi og í Danmörku,
til þess að ræða kosti og galla upp-
kastsins.
Pundur var haldinn í félagi ís-
lenzkra stúdenta í Kaupmanna-
höfn og þar rætt og greidd at-
kvæði um uppkastið. Þar var sam-
þykkt með 19 atkvæðum gegn 15
að aðhyllast það.
21. júni 1908 var umræðufundur
haldinn á Seyðisfirði um sambands
mál íslands og Danmerkur. All-
margir ræðumenn voru á þeim
fundi. Meirihluti þeirra, sem til
máls tóku, voru andvígir uppkast-
inu.
28. sama mánaðar var fjölmenn-
ur fundur haldinn við Lagarfljóts-
brú, þar sem ræða skyldi frumvarp
til sambandslaga Danmerkur og ís-
lands. Þar fór líkt og á fundinum
Dr. VALTÝR GUÐMUNDSSON
Fordyri barnaskólans á Seyðisfirði, þar
á Seyðisfirði viku áður, að .flestir
ræðumanna voru andstæðir upp-
kastinu.
Kosning til Alþingis fór fram á
Seyðisfirði 10. september 1908. —
Séra BJÖRN ÞORLÁKSSON
sem kjörfundur var haldinn veturinn 1909.
(Ljósm.: Þorsteinn Jósepsson).
Prambjóðendur voru tveir, þeir dr.
Valtýr Guðmundsson og séra Björn
Þorláksson á Dvergasteini- Báðir
buðu þeir sig fram sem uppkasts-
andstæðingar. Enginn var í fram-
boði fyrir meðhaldsmenn uppkasts
ins. Hins vegar fylktu þeir liði til
stuðnings við dr. Valtý, sem aðhyll-
ast vildu uppkastið. Kosning þessi
fór á þá leiö, að dr. Valtýr Guð-
mundsson hlaut 57 atkvæði, en séra
Björn Þorláksson fékk 63 atkvæði,
en sjö af atkvæðum séra Björns
voru af kjörstjórn dæmd ógild.
Skorti því séra Björn eitt atkvæði
til þess að hafa í fullu tré við Val-
tý. Mótmælt var fjórum atkvæðum
dr. Valtýs, er kjörstjórn tók þó góð
og gild.
Eins og nú var komið málum lá
eigi annað fyrir en að láta næsta
Alþingi úrskurða um lögmæti kosn
ingarinnar, enda mættu þeir báðir
til þingsetu, dr. Valtýr og séra
Björn.
Svo fóru leikar er alþingi kom
saman 1909, að kosningin var dæmd
Framhald á 572. s!3u.
$60
T í M I N N
SUNNUDAGSBLAÐ