Tíminn Sunnudagsblað - 19.08.1962, Page 9

Tíminn Sunnudagsblað - 19.08.1962, Page 9
Á horfinni öld fej'Saðist hún fimm ára gömul frá Sva'lbarð'i í Þistilfirði suKur að Stöð í Stöðvarfirði og var reidd í kassa á re'iðingsliesti á móti systur sinni — margar dagleiðir. Svo li'ðu árin og áratugirnir, en í liuga prestsdótturinnar vakti alltiaf mynd'in af Svalbarði, heimili hennar í frum- bernsku . . . Hún jbe/c/cfí h.verja fDúfu eftir 74 ár Ræit vi» frú Guðríði Guttormsdótfur Hestarnir fara feíið, kiyfja- hestar og reiðhestar, sem þokast hægt yfir ása og mýrar með bú- slóð klerksins, sem var að flytja búferlum frá Svalbarði í Þistil- firði að Stöð í Stöðvarfirði. Þessi saga gerðist austanlands fyrir sjötíu og fjórum árum. Nú á dög- um þætti lestinni miða seint, en með viðkomu og töfum tók ferða- lagið rúmlega hálfa þriðju viku. Fljótt á litið virðist þetta ósköp venjuleg hestalest, eins og ekki var óalgeng sjón á þessum árum. En á einum hestinum hanga tveir litlir kassar sinn hvorum megin hryggjar, eins og baggar á klakk. Upp úr þeim báðum gægjast barnshöfuð, og hnáturnar tvær, fjögra og fimm ára, sem fá vart skilið þetta undarlega ferðalag né þessa stóru veröld, eru dæt- ur prestsins. Svo líða sjötíu og fjögur ár. En fyrir nokkrum dögum er önn- ur þeirra á ferð um Norður- og Norðausturland í bíl með syni sínum og kemur nú á bernsku- heimilið á Svalbarði í fyrsta sinn, síðan lestin góða þokaðist úr hlaði tólf árum fyrir aldamót. En minnið hefur ekki svikið Guðríði Guttormsdóttur, og það er með ólíkindum, hve vel hún man liðna ævi og bernskudaga sína, en á því fékkst bezt staðfesting á þessu langþráða ferðalagi um fornar stöðvar. Þegar ég hafði eki3 upp að Dal- landi í Mosfellssveit, sem er nýbýli, T f M I N N — SUNNUD AGSBLAÐ 585

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.