Tíminn Sunnudagsblað - 19.08.1962, Page 10

Tíminn Sunnudagsblað - 19.08.1962, Page 10
er Pétur Þorsteinsson, lögfr., hefur reist þar og býr nú á, ásarat konu sinni, Björgu Ríkharðsdóttur, Jóns- sonar myndhöggvara og þrem börnuin þeirra, var mér ekkert að vanbúnaði lengur. Björg kom með kaffi inn í stofuna, sveitakyrrðin ríkti úti, það snarkaði notalega í aringlóðinni, og móðir húsbóndans, Guðríður Gutt- ormsdóttir, gat byrjað að segja frá. — Ég fæddis-t á Svalbarði í Þistil- firði 30. apríl 1883, dóttir séra Gutt- orms Vigfússonar, sem þar var þá þjónandi prestur, og Þórhildar Sigurð ardóttur. Faðir minn var Austfirð- ingur, fæddur í Hvammi á Völlum, en móðir mín var fædd á Harðbak á Melrakkasléttu og ólst þar upp. — Er það ekki rétt, að þú sért ný- komin úr ferðalagi um Norðurland og æskustöðvarnar? — Jú, ég fór þessa ferð með Hall- dóri, syni mínum á Akranesi, og konu hans, Rut Guðmundsdóttur frá Helgavatni. Við vorum þrjú í ferðinni, fórum til Akureyrar fyrsta daginn og komum náttúrlega víða við. Þetta er í fyrsta sinn, sem ég hef farið norður þessa leið, og það var margt skemmtilegt að skoða á leiðinni, sem maður hafði ekki séð fyrr. Mig var búið að langa til að fara þetta í mörg ár. Svo gistum við næstu nótt á Skútustöðum, en síðan á Raufarhöfn hjá frændfólki mínu, Jóni kaupfélagsstjóra Árnasyni og konu hans. Hann var að yfirheyra mig og trúði því varla, að ég myndi eftir mér á Svalbarði eftir öll þessi ár, og þá spurði ég hann, hvort ég ætti að hafa fyrir hann nöfnin á bæjun- um í kring í réttri röð og lýsa um- hverfinu. Og það gerði ég, og hann sagði, að það væri allt saman rétt og hefur sem sagt séð það sjálfur, að ekki var um neitt að efast. Frá Raufarhöfn héldum við síðan áfram og komum í Svalbarð í Þistilfirði um miðjan dag, þar sem nú búa Þorlákur Stefánsson og Þuríður Vilhjálmsdótt- ir. Þar þekkti ég mig nú fljótlega, bæði kannaðist ég við umhverfið og kirkjuna, þó að búið væri náttúrlega að rífa gamla bæinn. í kirkjunni var sami messuskrúðinn og faðir minn hafði notað, rykkilínið allt handsaum- að af frú Valgerði Þorsteinsdóttur, konu séra Gunnars Gunnarssonar, sem var prestur á Svalbarði á undan föður mínum, en dó á bezta aldri. Valgerður kona hans var skólastýra á Laugalandi í mörg ár. í kirkjunni á Sauðanesi er líka innrammað kvæði, sem ort var eftir séra Halldór Bjarna- son á Sauðanesi, sem kvæntist Þóru Gunnarsdóttur, æskuunnustu Jónasar Hallgrímssonar. — Hve lengi var faðir þinn þjón- andi prestur á Svalbarði? — í 12 ár, en flutti að Stöð í Stöðv- arfirði árið 1888. Þá var ég fimm ára gömul, ög systir mín, Guðlaug, sem var fjögurra ára, og ég, vorum flutt- ar í kössum á hestunum austur á land, eins og hverjir aðrir heybagg- ar. Þórarinn i Éfri-Hólum, afi bónd- ans, sem nú býr á Svalbarði, smíðaði þessa kassa. — Manstu eftir þessu ferðalagi í kössunum? — Ég man að minnsta kosti vel, hvar við gistum. Fyrst á Hallgilsstöð- um á Langanesi, síðan á Skeggjastöð- um, næst á Vopnafirði hjá Einari lækni Guðjohnsen, en þeir faðir minn voru bekkjarbræður. Þar vorum við tvær nætur. Þá gistum við á Hofi í Vopnafirði, svo og á Torfastöðum. Næsti áfangi var yfir Smjörvatns- heiði og síðan gist í Bót í Tungu. Frá Bót fórum við að Ketilsstöðum á Völl- um, en á leiðinni þangað vorum við ferjuð yfir Lagarfljót, en hestarnir syntu yfir. Þaðan í Hall- ormsstað. Ég man, að ég hlakkaði mikið til að koma þangað, bæði var ég búin að heyra svo mikið látið af fegurð staðarins og vissi, að þar bjó frændfólk okkar. Páll Vigfússon á Hallormsstað var bróðir pabba, en ekkja hans bjó þar þá með tveimur börnum sínum, Sigrúnu og Guttormi. Þar vorum við nokkra daga. Ég var ósköp hrifin af að koma þangað, og við vorum oft að leika okkur í skóg- inum, mér fannst svo gaman að fela mig þar. Börnin á Hallormsstað voru á aldur við okkur, svo að við gátum vel leikið okkur saman. Þar á staðn- um var líka stjúpmóðir föður míns, Guðlríður Jónsdóttir, sem stóð að miklu leyti fyrir búinu, og ég hafði hlakkað mikið til að sjá hana, og hafði gaman af, enda hét ég hennar nafni. Frá Hallormsstað fylgdu þeir okkur suður á Breiðdalsheiði Björg- vin Vigfússon, föðurbróðir minn, síð- ar sýslumaður og Magnús Einarsson, síðar dýralæknir, sem þá voru báðir í Latínuskólanum, en heima á sumr- in. Inn Skriðdalinn vildu þeir láta spretta úr spori og hestana fara greitt og ráku á eftir lestinni, sem í voru auðvitað margir hestar með flutningi, en mér þótti það dálítið óþægilegt, því að við hossuðumst svo mikið í kössunum, að ég var dauð- fegin, þegar þeir sneru aftur. Annars fórum við alltaf fót fy.rir fót. Næst gistum við svo að Jórvík í Breiðdal, en síðustu næturnar í Heydölum. Við vorum þar einar tvær, þrjár nætur. Mig minnir, að systur mínar tvær væru eitthvað lasnar. Þar var þá prestur séra Magnús Bergsson. Síðan héldum við áfram að Stöð í Stöðvar- firði og vorum þá loks komin á leið- arenda, enda búin að vera á ferðalagi að minnsta kosti hálfa þriðju viku. — Hve mörg voruð þið systkinin? — í ferðinni vorum við fjögur. Foreldrar mínir eignuðust níu börn. Fjögur fæddust, eftir að við komum að Stöð, þar af tvíburar og dóu bæði ung. — Varstu ekki fegin að koma að Stöð eftir ferðavolkið? — Ég var ósköp hrifin af að koma þangað, bæði af því, að Helga hálf- systir mín var þar fyrir, en þar ólst hún upp hjá afa sínum og ömmu, séra Jóni Austmann og Helgu Jóns- dóttur, og svo langaði mig auðvitað alltaf til að sjá meira og meira af heiminum. Þarna var líka margt ungt og skemmtilegt fólk, eins og víða var á sveitabæjum í þá tíð. Og þarna ólst ég nú upp frá því að ég var fimm ára og fram yfir tvítugt eða þangað til ég giftist. — Hvar settist þú þá að? Séra GUTTORMUR VIGFÚSSON — Ég giftist Þorsteini Mýrmann 27. maí 1905. Hann hafði þá verzlun úti í Stöðvarþorpi, og þar vorum við í 9 ár, en eftir það fluttum við að Óseyri, sem við keyptum síðar, og bjuggum þar, þangað til maðurinn minn lézt 17. september 1943. Eftir það hef ég verið hjá börnum mínum til skiptis. — Manstu vel eftir þér frá Sval- barði? — Já, ég man vel eftir mér þar, þó að sumum þyki það nú ótrúlegt, man bæði staðinn og landslagið og mörg atvik, sem fyrir komu, enda þekkti ég strax bæinn, þegar við komum þangað um daginn. Halldór sonur minn var að velta því fyrir sér, hvort þetta mundi vera Svalbarð, þegar við sáum það álengdar, og þá sagði ég, að nú þekkti ég mig, enda mundi ég eftir kirkjunni, hvernig hún var, og eins hólunum tveim, Reið- hól og Sjónarhól, fyrir austan bæinn og ánni, sem rennur í mörgum bugð- 586 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.