Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 19.08.1962, Qupperneq 11

Tíminn Sunnudagsblað - 19.08.1962, Qupperneq 11
um eftir sléttu nesinu. Það þylcir mörg um ákaflega fallegt á SvalbarSi. Einn ig mundi ég eftir bæjaröðinni kring- um Svalbarð. Við fórum út á Þórs- ihöfn og út að Sauðanesi seinni part dagsins, sem við vorum um kyrrt, og skoðuðum kirkjuna þar, en þar var aðeins einn maður heima, því að presturinn var suður í Reykjavík. Ég var alltaf að skoða kirkjur, hvar sem ég kom á leiðinni, til dæmis skoðaði ég kirkjuna í Reykjahlíð og altaristöfluna, sem borgarstjórinn gaf. Svo sá ég margar gamlar kirkjur, t.d. að Saurbæ í Eyjafirði, en þangað ókum við annað kvöldið, sem við vor um um kyrrt á Akureyri, og Rípur- kirkju í Skagafirði, en báðum þessum kirkjum þjónaði faðir minn sem að- stoðarprestur, áður en hann fluttist að Svalbarði. Mér þótti afar gaman að koma að Skinnastað og skoða þar kirkjuna, sem Arngrímur málari mál- aði. Þar var þá líka prestur séra Hjör- leifur Guttormsson, frændi minn. Mér þótti kirkjan sérstaklega tilkomumik- il og falleg, þó að hún sé ekki stór. — Þú sagðist hafa verið á Akur eyri um aldamótin? — Já, ég var þá hjá Helgu systur minni há.tt á annað ár. Hún bjó i stóru húsi innst á Torfunefinu, sem þá var nýbyggt. Ég ímynda mér, að það hafi verið stærsta húsið í bæn- um, þrjár hæðir fyrir utan kjallara og 24 gluggar á hlið, en svalir á fram- stafninum út af miðhæðinni. Hún var fyrsti leigjandinn i þessu húsi, sem þá var kallað Bergsteinshús eftir Bergsteini Björnssyni trésmíðameist- ara, sem hafði byggt það Þetta var nú aldamótaárið og húsið næsta hús við leikhúsið, og þangað fórum við systurnar oft, því að við vorum, eins og fleiri hrifnar af aldamótaleikrit- inu hans séra Matthíasar, enda var það leikið kvöld eftir kvöld fyrir fullu húsi lengi þá um veturinn — Manstu eftir gamla manninum? — Ég man vel eftir honum, enda þótti mér mikið til hans koma og gleymdi ekki að skoða styttuna hans í Lystigarðinum á dögunum. Ég mætti faonum oft á götu. Hann var oft á gangi snem-ma á morgnana, og ég heyrði talað um, að hann heilsaði öllum á götu, hvort sem voru börn eða fullorðnir, og ég held, að það hafi verið satt. Ég man, að hann heilsaði mér ,enda kom hann stundum í húsið til systur minnar. Hann var kempu- legur á velli, og maður tók eftir hon- um á götunni, enda svipurinn hreinn og tilkomumikill. — Hvernig var Akureyri um alda- mótin? — Þá var autt svæði milli Oddeyr- ar og Akureyrar. Á Torfunefinu voru þá bara tvö hús, þetta nýbyggða og hús Bjarna Einarssonar smiðs. Og svo var leikhúsið næst húsinu, sem við vorum í. í brekkunni man ég ekki Harmahorg Ekki getur sérstök sorg sál þess lengi bifað, sem í lielgri harmaborg hefiir dlltaf lifað. Glampar LjóðdtsiR Ljóðrœn fegurð léttir starf, Ijós er vega minna. AUtaf þegar hún mér hvarf, hlaut ég trega að fimia.. Kiær Vanþroskinn er vígfús, viti og góðleik fjcer. — Allar ungar sálir eru með klœr! Því er sundrað sumu, sem var áður heilt. Þvi er heimtað, hrifsað, hatað og deilt. Því er fölnuð fjóla, sem fögur var í gœr. — Allar ungar sálir eru með klær! — Sáiuféiag Þegar skín þér bros ujn brár, brátt mér hlýna tekur. Hugraun þin og hvert þitt • tár harma mína vekur. eftir öðrum húsum en amtmannshús- inu, þar sem Páll Briem átti heima, og svo barnaskólanum og kvennaskól- anum, sem fluttur var þangað fyrir aldamót. Þá voru ekki aðrir skólar í bænum, en gagnfræðaskólinn flutt- ist þangað frá Möðruvöllum litlu síð- ar. Ég man auðvitað marga, sem settu svip á bæinn, eins og Klemenz Jónsson, sem þá var sýslumaður, og lækninn, Guðmund Hannesson. — Svo að við víkjum nú að öðru, hvað geturðu sagt mér um æskuheim- ili þitt á Svalbarða og Stöð eða prests- heimilið í sveit á þessum árum, — í báðum stöðunum var alltaf margt fólk, þegar ég var ung, bæði vinnufólk og piltar, sem pabbi var að kenna undir skóla, sérstaklega á Svalbarði. Þar voru alltaf einhverjir á hverjum vetri. Þeir voru til dæmis báðir hjá honura á Svalbarði, Þor- steinn Gíslason, síðar ritstjóri, og Einar Benediktsson, og kenndi hann þeim báðum undir skóla. Einnig man ég eftir Vigfúsi Þórðarsyni, síðar presti í Eydölum, sr. Stefáni Björns- syni og Magnúsi Gíslasyni, seinna sýslumanni, sem báðir voru hjá hon- um í Stöð, og mörgum fleiri. Stefán Einarsson prófessor var hjá honum mánuð og mánuð oftar en einu sinni, en aldrei heilan vetur í einu. Þar fyrir utan tók hann oft unglinga um fermingaraldur og þar yfir til upp- fræðslu, sérstaklega ef hann fann, að þá langaði til að læra. Meðal þeirra, sem hann kenndi, meðan hann var í skóla, voru Stephan G. Stephans son og séra Friðrik Bergmann, sem þá voru á förum vestur um haf. Þá kenndi hann Geir Zoega, seinna rekt- or, á þessum árum. — Hvernig heldurðu, að föður þín- um hafi fallið kennslustarfið? -— Honum féll það mjög vel, og hafði mikla ánægju af að kenna hverjum, sem var, og ég held, að hann hafi lagt alveg jafnmikla alúð við að kenna þeim, sem erfiðara áttu með að læra. Það er naumast hend- ing, hve margir nemendur hans urðu menntamenn, og ég held hann hafi verið óvenjulegum kennarahæfileik um gæddur. — Var ekki mikill gestagangur á þessum kirkjustöðum? — Fyrstu árin var oftast messað á hverjum sunnudegi. í Stöð kom oft Framhald á 598. síðu. T í M I N N SUNNUDAGSBLAÐ 587

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.