Tíminn Sunnudagsblað - 19.08.1962, Side 19

Tíminn Sunnudagsblað - 19.08.1962, Side 19
öll þessi ár. Ég veit ekkert um stjórn mál eða þjóðfélagsmál, og ég veit ekkert, eftir hvaða reglum á að stjórna landi“. „Hafðu engar áhyggjur, ég skal hjálpa þér“, sagði prinsessan blíð- lega. Þetta er allt of gott til að-geta verið satt, hugsaði drykkjumaðurinn með sjálfum sér, að vera eiginmaður prinsessu og fá ábyrgðarstöðu auk þess. Hann langaði einna mest til að gráta, en hann óttaðist, að hún misskildi hann og stillti sig. Daginn eftir talaði prinsessan við föður sinn og konungurinn sagði: „Ég held, að ég geri hann að yfirmanni yfir Suðurbogahéraðinu. Landstjór- inn þar hefur nýlega verið rekinn vegna vanrækslu í starfi. Þar er fögur borg og stendur við fjallsræt- ur, og allt um kring eru skógar og fossar. Fólkið er iðjusamt og lög- hlýðið. Þeir eru dekkri á hörund en við, en frábærir hermenn. Eg veit, að' þeir verða ánægðir með að tengda- sonur minn skuli verða landstjóri yfir þeim. Þeir munu tilbiðja þig. Eg er viss um, að þér fellur starfið. Fen var stórhrifinn af þessu. Hann hirti ekki um, hvar hann byggi, með- an hann hafði prinsessuna sér við hlið. „Svo að ég er landstjóri í Suður- borg“, sagði hann. „Það heitir Suðurbogi, vinur minn“, leiðrétti prinsessan. Eina ósk Fens var, að vinum hans, Chou og Tien, væri leyft að fylgja honum sem hjálparmenn. Þeim var haldið veglegt, konunglegt kveðju- samsæti, og konungurinn fylgdi þeim í eigin persónu út að borgar- hliðinu. Fjöldi fólks kom til að sjá prinsessuna aka í vagni sinum með brúðgumann sér við hlið og konur grétu, því að íbúar í Lókustaníu voni viðkvæmar sálir. Á undan vagninum fór riddaralið, og bumbur voru barð- ar af krafti; á eftir fór hópur her- manna, sem fylgdi þeim alla leiðina til Suðurboga. Ferðin stóð í þrjá daga, og þegar þau kcwnu í hérað sitt, var þeim tekið með miklum fagnað- arlátum. Þau á.ttu saman yndislegt ár í Suðurboga. Opinberir starfsmenn all- ir voru skylduræknir og vel agaðir. Engir fátæklingar eða betlarar fyrir- fundust i borginni. Fen heyrði sagt, að brytist styrj- öld út, snerust bæði karlar og konur til varnar og berðust þá, þar til yfir lyki til að verja heimili sín. En það kom sjaldan upp misklíð milli þeirra innbyrðis. Prinsessan var ástúðleg og blíð, og fólkið tilbað hana. Fen var að upplagi latur, en kona hans hvatti hann til að rísa árla úr rekkju og rækja vel skyldur sínar, svo að hann mætti vera þegnum sínum sönn fyrir mynd. f skrifstofu sinni faldi hann oft vínflösku, en hann reyndi að leggja sig allan fram um að sýna, að hann væri verður ástar og trausts eiginkonu sinnar. Hann vissi, að hann varð að lifa sómasamlegu fyrirmynd- arlífi; það var verðið, sem hann varð að greiða, fyrst hann fékk að vera konunglegur og fá allt upp í hendurn ar af heimsins gæðum. En á kvöldin, þegar önnum dagsins var lokið, ók hann oft með heittelskaðri konu sinni út í skóginn. Þar stigu þau úr vagninum og leiddust um skóginn eða settust niður á fljótsbakka. Stund- um fékk hann sér drukk með Chou og Tien í litlu hellunum, sem voru margir í fjöllunum. Það var þar, sem hann fann, hversu ríkur og ham- ingjusamur hann var. „Og ekki dropa meira“, sagði konan hans elskuleg. Nú, nú, hugsaði hann, engum hlotn- ast allt, enginn getur fengið allt í lífinu. Hann var henni þakklátur, því að hún hafði hjálpað honum að ganga frá skýrslum og greinargerðum til konungsins og leiðbeint honum á margan hátt. Hann hafði Chou og Tien, sem einkaritara sína — þeir umgengust hann nú með virðingu og prúðmennsku — og honum fannst sem hann gæti ekki krafizt meira. Þegar ár var liðið, fékk yndislega heittelskaða prinsessan hans kvef og dó. Sorg hans var svo mikil og ólækn andi, að hann byrjaði aftur að drekka. Hann bað um að verða leystur frá störfum og fá að flytjast aftur til höf- uðborgarinnar. Hann fylgdi prinsess- unni sinni til grafar, og ykkur er óhætt að trúa, að hún fékk virðu- lega útför svo se sæmdi tiginni prinsessu. Eftir dauða prinsessunnar fór að halla á ógæfuhliðina á ný. í örvingb an sinni fór hann um borgina, varð tíður gestur á krám og var fullur dag og nótt. Þar sem konungurinn hafði misst dóttur sína, var hann heldur sinnulítill um Fen. Honum bárust fljótlega fregnir af ósæmilegri hegð- an hans, en hann minntist dóttur sinnar og vildi ekki smána hann op- inberlega. Þegnarnir vissu þetta, og vinir hans tóku að sýna honum móð'g- un og lítilsvirðingu. Hann varð brátt svo nauðuglega staddur, að' hann varð að fá lánaða peninga hjá Chou og Tien til að kaupa sér vín fyrir. Einu sinni fannst hann liggjandi fyrir utan pútnahús. „Rðkið þennan æfil brott af land- inu“, heimtaði fólkið. „Hann er þjóð- inni til skammar." Konungurin-i skammaðist sín ákaf- lega fyrir að eiga annan eins tengda- son, og einn góðan veðurdag sagði drottningin við Fen: „Þú ert óham- ingjusamur vegna þess, að prinsess- an er látin. Hvers vegna skreppurðu ekki heim til þín svona til tilbreyt- ingar?" „Hér er heimili mitt. Hvert annað gæti ég farið?“ „Heimili þitt er í Kwangþng, manstu það ekki?“ Fen mundi óljóst eftir því, að hann átti stórt hú? í Kwangling og að hann hafði komið hingað fyrir rúmu ári, þá algerlega ókunnur maður. Hann kvaðst vilja hverfa til fyrri heim- kynna sinna „Gott og vel, ég skal senda með þér tvo fylgdarmenn." Hann sá nú aftur sendimennina tvo, sem höfðu flutt hann til konungs- ríkisins, en í þetta sinn fékk hann gamlan og ljótan vagn. Engir her- menn stóðu heiðursvörð, engir vinir komu til þess að kasta á hann kveðju. Og þegar hann ók gegnum horgar- hliðið, veitti enginn honum minnstu eftirtekt. Hanr. minntist þá fyrri dýrð- ardaga. þegar hann lifði í vellysting- um praktuglega og allir hneigðu sig fyrir honum. Hann þekkti aftur leiðina, sem hann hafði komið árið áður. Þegar vagninn fór í gegnum innganginn til fæðingarbæjar hans, tárfelldi hann. Þjónarnir fylgdu honum að húsinu. Þeir ýttu honum niður í hvílu hans og hrópuðu fýlulega: „Þú ert kominn heim.“ Fen vaknaði snögglega. Hann sá, að vinir hans voru enn að þvo fætur sínar í miðjum garðinum. Kvöldsólin kastaði skuggum á eystri vegg húss- ins. „Hvílíkt líf!“ hrópaði hann. „Hvað! Ertu vaknaður strax?“ spurði Chou og Tien. „Strax? Eg hef lifað heilan manns- aldur, síðan eg sofnaði." Hann sagði vinum sínum frá hin- um furðulega draumi, um heimsókn sína í konungsríkjð Lókustaníu., og þeim var mjög skemmt. Hann leiddi vini sína að trénu og sýndi þeim, hvar hafði verið farið. „Hérna fór vagninn í gegn, eg man það greinilega." „Andi trésins hlýtur að hafa dáleitt þig. Þetta er ævagamalt tré“. „Komið á morgun,“ sagði Fen við vini sína. „Eg ætla að rannsaka hol- una.“ Daginn eftir bauð hann þjónum sín- um að taka sér axir og skóflur í hönd og grafa niður í holuna Þeir hjuggu burt nokkrar rætur og uppgötvuðu þá dálítil göng undir trénu um það bil tiu fet að þvermáli. Þar var stað- sett örlítil borg með vegum, bygging- um og turnum. Milljónir maura áttu' sér þarna býli . . . „Svo þetta er konungsríkið Ló- kustanía, og þarna situr konungurinn í höll sinni.“ Fen var alveg ruglaður. Þeir grófu lengra og fundu þá ann- að maurabúi. Þar voru örlitlir skógar og fossar og hellar, og hann þekkti þá, að þarna hafði hann setið með elsku konunni sinni og þarna hafði kona Framhald á 598. síðu. T í M I N N SUNNUDAGSBLAÐ 595

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.