Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 23.10.1966, Qupperneq 6

Tíminn Sunnudagsblað - 23.10.1966, Qupperneq 6
fjöllunum og reka það niöur á lág- lendið — Brekkuna. Um ærnar var ekki óttazt. Þeim hafði verið hleypt vestur á Brekkuna daginn áður í fyrsta sinn á sumrinu. Og voru þær mjög spakar þar. Hafði faðir minn í tuttugu ár ætíð haft ærnar á Brekk- unni eftir göngur og fram í snjóa og aldrei hlotizt tjón af. Um hádegisbilið var loks afráðið að hefja skyldi leit að geldfénu. Vor- um við Björn Guðmundsson, frændi minn, sem vorum þá rúmlega tvítug- ir, valdir til fararinnar. Við fórum fyrst að Fjöllum. Viss- um, að Fjallafénu hafði verið sleppt í fjöllin daginn áður. Jóni bónda leizt ráð að ná fénu úr fjöllunum. Þar er mikið af giljum, grófum og djúpum lautum og því mikil hætta á, að féð fennti þar, ef mikið snjófok gerði. Við vorum fram undir rökkur að tína féð saman og ganga fram og aftur um það svæði, sem við álitum, að það væri á. Það var ekki stórt. En' hríðin var svo dimm, þótt ekki renndi, að lítið sá frá sér. Og er við þóttumst hafa fullleitað, rákum við féð til Fjallaréttar. Þar aðskildum við það og töldum. Kom þá í ljós, að við höfðum fundið allt Lónsféð, en af Fjallafénu vantaði þrjár kind- ar. Minnir mig, að þær fyndust ekki fyrr en snjóa leysti vorið eftir. í rökkrinu rákum við Björn fjár- hópinn norður með fjöllunum eftir sléttri grund. Austan við norðurenda riennar var allmikil hæð með aflíð- andi halla móti suðri. Kom okkur saman um, að réttast mundi að bæla féð í hallinu, því að þar var nokkurt skjól fyrir norðanáttinni. Ekki vorum við nú samt alls kostar ánægðir með að skilja féð þarna eftir í hríðinni »g snjónum. Og ef ekki hefði verið vatn í fjárhúsunum, held ég, að við hefðum rekið það heim og hýst það, þótt ekki væri talin þörf á því, er við fórum að heiman. Engum datt í hug, að á þeim árstíma gerði þá hríð, að fénu væri hætta búin á Brekkunni og við álitum, að þótt veð- ar gengi upp og snjófok gerði, gæti ekki lagt svo þykkan skafl í hallið, að tjón hlytizt af. Þetta hall var ekki aema 250—300 metra frá Lónunum. Við bældum féð í hallinu og héiá- im síðan heim, ánægðir og sigur- reifir yfir vel heppnaðri leit. Og sofn aðum um kvöldið svefni hinna rétt- látu, ásamt hinu fólkinu. Klukkan fimm morguninn eftir /aknaði fólkið í Lóni skyndilega við /ondan draum. Það var skollið á svo mikið stórviðri, að það brakaði í bað- itofunni. Hún stóð eín, vestast húsa >g nyrzt í húsaþyrpingunni. Um ivefn var ekki að ræða eftir það. Pg þegar sá, er fyrst fór á fætur, tom fram í bæjargöngin, mætti bon- «m óhugnanleg sýn. Stormurinn hhfði svipt nokkrum hluta þekjunnar af vesturhlið eldhússins, sem stóð næst baðstofunni og var rishærra. Lagði snjóstrokuna inn um opið í göngin. Var nú karlmönnum bæjarins ekki til setu boðið. Bjuggumst við fjórir skjólgóðum vetrarklæðum og fórum út í bylinn. Mun ég aldrei gleyma þeirri stund. Mér fannst veðurofsinn ætla að taka mig á loft og ég ætl- aði ekki að ná andanum fyrst í stað. Svo þykkt var hríðarkófið og renn- ingurinn. Við gátum, við illan leik, gert eldhúsið nokkurn veginn fok- helt með pokum, sem við höfðum tekið með okkur, torfusneplum, trjá- við og grjóti, sem nóg var af í bæj- arsundunum. Þegar verkinu var lokið, vildi fað- ir minn vitja bátanna. Þeir stóðu á grastorfu við litla vik, er skarst inn í krika á Brekkunni. Voru úm sextíu faðmar þangað. Til marks um, hve veðrið var ægilegt, vil ég geta þess, að faðir minn, sem var greindur og reyndur maður, lét okkur ná í reipi til þess að hafa á milli okkar. Gerði hann það til þess, að engan sliti úr hópnum og hrekkti undan veðrinu. Hef ég aldrei vitað slíkt gert nema þá. Kengbognir komumst við með miklum erfiðismunum á leiðarenda. En er á staðinn kom, voru bá^arn- ir horfnir. Það hafði lagt skafla yfir þá frá nefi, er gekk fram úr Brekk- unni, norðan og vestan við víkina. Sá að eins í skutenda eins þeirra út úr skaflinum, sem vatnið var að brjóta framan af. Þegar heim kom, áttum við þriðju þrautina óleysta. Hún var sú að ná í morgungjöf handa tveim kúm. Við tókum sinn pokann hver og lögðum svo allir aftur út í bylinn með reip- ið á milli okkar. Voru um tuttugu faðmar í þá heyhlöðuna, sem næst var bænum. Tókum við sína viskina hver i pokana — málsgjöf kúnna. Stormurinn var á hlið og við urðum að beita allri orku okkar til að kom- ast heim með heyhárið. Og urðum fegnir að komast í húsaskjól. En „það voru hljóðir og hógværir menn“ sem skreiddust inn bæjargöngin í Lóni í það sinn, Ipusir við alla sig- urvímu, eftir að hafa komizt að raun um mátt óveðursins. Stormurinn og hríðin buldu stöð- ugt á baðstofunni og beittu hana þeim heljartökum, að hún nötraði í byíjunum. En ekkert var unnt að gera fyrr en storminn lægði. Og loksins — um hádegisbil — lauk óveðrinu jafnskyndilega og það skall á og gerði gott veður. Var þá ekki beðið boðanna, en tafarlaust lagt af stað til að vitja geldfjárins. Strax og út kom, sáum við, að stormurinn og hríðin höfðu ekki verið smávirk. Það var komið geysi- mikið stórfenni. Öllum snjónum, sem kyngt hafðl niður daginn áður og þar á eftir, var svo gersamlega sóp- að af holtum og hæðum, að varla sást snjór á þeim. Og á sléttlendi var aðeins snjór í skorningum. Veð- urofsinn hafði fært allan snjó í laut- ir, lægðir og brekkur. Einkum hafðl mikinn snjó lagt í þær brekkur, er sneru móti suðaustri. Þar lágu skafl- arnir skáhallt af brekkubúnunum og fram á móana. Voru þeir allþykkir þar, sem brekkurnar voru brattar. Sjórinn var í ógurlegu uppnámi og hafði gengið lengra á land en elztu menn vissu dæmi til. Þegar við, er vitja vildum geldfjár- ins, vorum skammt komnir vestur á Brekkuna, fundum við' fyrstu vetur- gömlu kindina. Hún lá þar í holti á hryggnum. Og er við komum þang- að, er geldféð var bælt kvöldið áður, sáum við, að þunna snjóþilju hafði lagt í hallið, þar sem féð var, og sá aðeins á horn nokkurra kinda upp úr fönninni. Auðvitað voru þær óskemmdar. En þær voru — því mið- ur — aðeins örfáar. Allar hinar hafði hrakið þaðan. Var nú farið að smala þvi, sem uppistandandi var af fénu, bæði geld- fé og ám. í leitirnar komu rúmlega þrír fimmtungar fjárins, sem var um 190. Vantaði þá milli sextíu og sjö- tíu kindur, sem vitað var, að vera mundu allar í fönn. Hófst nú mikil leit að þeim.'Tóku allir karlmenn í Lóni, þeir er að heim an komust, þátt í henni. Var leitað með löngum járnteinum, er gerðir voru ósléttir í annan endann. Var þeim endanum síðan stungið með var- færni niður í fannirnar, þar til hann nam staðar. Þá var teininum snúið nokkrum sinnum. Og síðan dreginn upp. Ef teinninn hitti á kind, voru ullarhár á honum. Margt af geldfénu hafði fennt. Það hafði hrakizt í grasgjárnar og þær voru allar barmafullar af snjó. í ljós kom, er við fórum að draga það úr fönninni, að kindurnar höfðu smám saman slitnað úr hópnum og hrakið í gjárnar. Sáum við það á því, að 1 dýpstu grasgjánum, þeim er næstar voru hallinu, er féð lá í, voru sumar kindurnar niðri við botn þeirra. Þær hafði slitið úr hópnum strax og byl- inn gerði. Aðrar voru í miðri fönn- inni. Og þær, er síðast hafði hrak- ið, voru efst í henni, svo að á þeim örlaði stundum. Þegar búið var að leita nokkuð að geldfénu, var hafin leit að ánum, sem vöntuðu. Líklegt þótti, að eitt- hvað af þeim hefði verið í gömlu réttinni eða við hana, er bylinn gerði. Bæði var réttin vel gróin og ágætt skjól fyrir norðanáttinni í krikanum og undir veggjunum, sem ófallnir voru. Öll var réttin undir þriggja til fjögurra metra þykkrl fönn. Grunur okkar reyndist réttur, Framhald á 910. siðu. 194 T t M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.