Tíminn Sunnudagsblað - 12.02.1967, Page 3

Tíminn Sunnudagsblað - 12.02.1967, Page 3
Hve hraðsyndir eru fiskar eiginlega? Urriðinn virð- ist hraðskreiður, þegar hann syndir brott með öng- ulinn og stöngin svignar. Sumir fiskar renna sér leiftursnöggt að flugunni. Hver er raunin? Maöur nokkur rannsakaði þetta. Hann myndaði tveggia desi- metra löng síli, sem hann styggði. Menn urðu forviða, þegar filman var framkölluð og sundhraði silanna reiknaður nákvæm- lega. Hraðinn reyndist sem sé einungis rúmlega tveir metrar á sekúndu. Fiskar eru ekki eins hraðsyndir og menn ætla. Þar að auki þreyt- ast þeir mjög fljótt. Tuttugu punda lax getur ekki synt nema tuttugu sekúndur með sextán kilómetra hraða á klukkustund. Samt sem áður eru fiskar viðbragðs- fljótari en Valbjörn Þorláksson. Smá- silungar ná fyllsta hraða á tuttugasta hluta úr sekúndu. Það er sannarlega vel af sér vikið og ieika fálr eftir. Makrillinn, sem þykir afar snrettharð- ur, er næsta úthaldslitill. Hann vantar sundblöðrur og verður því sifellt að vera á kviki. Annars sekkur hann til botns, og þá er honum bráður bani búinn. Mlinn rís hér um bil upp á endan, þeg- ar hann er á sundi á hafi úti. í ánum hlykkjar hann sig áfram og ekkert stöðv ar hann nema háir, lóðréttir stíflugarð- ar. í votU'grasi kemst hann langar leið- ir á landi. Stangaveiðimönnum finnst kannski rösklega bitið í, þegar silungar kem- ur á. En liggi fiskurinn á færinu af þunga, sem svarar einu pundi, hvíl- ir tólf eða þrettán punda þungi á handleggjum veiðiírannsins. Sverðfiskur, sem er sex hundruð pund, getur rekið trjónuna í gegnum byrðing báts, sem er úr tré. Oddur hennar lýstur það, sem fyrir henni verður, af sama afli og tíu punda sleggja, sem sveiflast með 130 km. hraða. T ! M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ 123

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.