Tíminn Sunnudagsblað - 12.02.1967, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 12.02.1967, Blaðsíða 4
 Jv*.' mmm Liósmynd: Páll Jónsson. Á Mýrdalssandi — séð til Hafurseyjar. 1 i ÞaS ©r með Kötlugosin eins og | heimsendinn — enginn veit dag- I inn eða stundina, þegar Katla kem- ! ur, en svo mæla Skaftfellingar i Ef til vill geta vísindin einhvern \ tima svarað spurningunni, en tæp- I lega þó fyrr en á síðustu stundu. i Og betra er seint en aldrei. i Nú eru liðin 48 ár frá siðasta ; Kötlugosi. Tímabilið milli gosa í { Mýrdalsjökli hefur ætíð verið mis- j munandi, en oftast hafa komið tvö j gos á hverri Öld sem sjá má í | Riti um jarðelda á íslandi eftir | Markús Loftsson og Skúla Markús- i son. Lengst tlmabil milli gosa er 243 ár, en skemmst þrettán ar. ' Milli gosa í jöklinum austanverð- um hafa lengst orðið 105 ár, en venjulegasti ‘ „meðgöngutími“ Kötlu, er 40—60 ár. Margir tala um það nú, að Surt- ur muni taka ómakið af Kötlu næstu aldir. Segja má, ef til vill, að sú ályktun sé ekki svo mjög út í bláinn. Síður er hægt að finna þeim orðræðum stað, er uppi voru fyrir síðasta gos, að Katla mundi brunnin í sjó. Þá var eldur ekki uppi í sjónum og ekki heldur lið- ið óvenjulangur tími frá gosi, þó að frekar væri í lengra lagi. En ljóst er, að einhvern tíma hefur Katla legið í dvala margar aldir — eða ekki átt tilveru. Það sanna hinar blómlegu byggðir, sem -áður voru á Mýrdalssandi. Voru gosin þá alitaf í sjónum? Hvenær urðu Vestmannaeyjar til? Þessum spurn ingum fær enginn svarað, og svör við þeim fá ekki leyst okkur frá vandanum í sambandi við Kötlu. Skynsamlegt er aðeins eitt: Að bú- ast við henni án þess að vera með sifelldan ugg og'ótta, sem oftast eða alltaf væri ástæðulaus Séð héðan frá Þykkvabæ eru tveir áberandi hnúkar á Mýrdals- jökli sunnanverðum. Talsvert bil eða hvilft er á milli þeirra. Gamalt fólk trúði því, að Kötlu mætti bú- ast við, þegar hvilftin milli hnúk- anna væri orðin full af jökli. Amma mín, Valgerður Pálsdóttir, (f. 1833, d. 1919,) lifði tvö Kötlu- gos. Á síðustu árum ævi sinnar talaði hún oft um, að nú væri hvilftin milli hnúkanna orðin full og mætti því búast við Kötlugosi. Þessi ummæli ömmu minnar urðu til þess, að mynd Mýrdalsjökuls, eins og hann þá leit út, festist mér í minni sérlega vel. Hvilft var þá engin sjáanleg, en þó ljós merki til hnúkanna. Milli þeirra lá bunga, sem tók þeim jafnvel lítið eitt hærra, þar sem hún var hæst, áð- ur en gosið kom 1918. Frá nyrðri hnúkunum var sem dregin þráð- 124 i lilllNN SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.