Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 12.02.1967, Qupperneq 10

Tíminn Sunnudagsblað - 12.02.1967, Qupperneq 10
Háskólahúsið þykir fögur bygging á nýársnótt, þegar logasterkum kastljósum er beint að framhlið þess, en stúdentar eru ekki á eitt sáttir um ágæti þessara húsakynna, sem löngu eru of lítil orðin. tóku að rétta úr kútnum efnahags- lega að loknu seinna stríði. Hlutur Háskóla íslands í hinni miklu efna- hagsuppbyggingu er enn allt of iít JU. Þetta stendur honum fyrir þrif- um. j: Hver ber sökina? S: Ég vil ekki sakfella nokkurn mann, en ástæður þess, hve litlu háskólanum hefur verið úthlutað af ríkisfé, eru að mínu áliti aðal- lega tvær. í fyrsta lagi virðast stjórnarherrar ekki hafa skilning á því, hvaða hlutverki háskólinn verður að gegna í þessu þjóðfé- : lagi, og í öðru lagi hefur kröfu- pólitíkin, sem löngum v.v og er j enn ráðandi afl í íslenzku þjóð- j félagi, ekki verið rekin frá hendi ! forráðamanna háskólans á jafn I ábyrgðarlausan máta og hún al- mennt gerist í þessu landi. j: Gætirðu nefnt dæmi um treg- i an vöxt Háskóla íslands? S: Við getum hæglega kannað, j hvað hefur orðið í húsbyggingar- | málum. Eina byggingin, sem reist j hefur verið á síðastliðnum tuttugu \ og fimm árum, að mestu fyrir eig- ið fé háskólans og ætluð til kennslurannsókna, er Raunvísinda stofnunin hjá Háskólabíói. Miðað við þróun háskóla erlendis, væri ekki óeðlilegt að telja, að húsa- skortur Háskóla íslands ætti að tvö- eðajafnvel þrefaldast á tutt- ugu og fimm árum. Ég tel þetta sýna nægilega vel, hversu íslend- ingum er lítið metnaðarmál að hlúa að æðstu menntastofnun þjóð arinnar. j: Nú rekur háskólinn happ- drætti, og mér skilst, að með þeim rekstri skuli háskólinn afla sér þess fjár, sem hann þarfnast, að minnsta kosti meginhluta þess. S: Happdrætti Háskóla íslands var að vísu nauðsynlegt fjáröflun- artæki til þess að standa styaum af kostnaði við byggingu háskóla- hússins sjálfs, en margt hefur tek- ið breytingum síðan. Svo heitir, að háskólinn hafi einkaleyfi á rekstri peningahappdrættis í landinu, en allir sjá að einkaleyfið er til einsk- is orðið nú í dag, en hefur samt sem áður kostað happdrættið all- góðan hluta af tekjum þess. Að vísu er svo um mælt, að leyfis- gjaldið skuli renna óbeint til há- skólans aftur, með því að fénu er veitt til vísindaþrifa, en slíkt bæt- ir ekki kennsluaðstöðu háskólans, og það er hún, sem krefst ræki- legra umbóta. Með happdrættinu var ákveðið, að Háskóla íslands skyldi sjálfur afla sér fjár til ailra bygginga og viðhalds á húsakosti, og ekki verður annað séð en rík- isvaldið haldi enn þá dauðahaldi í þetta löngu úrelta bjargræði. Mér þykir ekki grunlaust um, að stjórn arvöld hafi tíðum bent á happ- drættið, þegar beðið var um beina fjárveitingu til byggingafram- kvæmda, en eins og gefur auga leið hrökkva tekjur happdrættis- ins, að leyfisgjaldinu frádregnu, skammt til stórra átaka. j: Ekki er fátítt, að almenningur bendi glottandi á Háskólabíó, þeg- ar forráðamenn skólans kvarta um fjárskort, og kveði háðslega upp úr með það, að í bíóið hefðu þeir getað sólundað milljónum og aftur milljónum og sé ekki nema sjálfsögð hegning, að þeir sitji uPpi félitlir. S: Það er mikið satt, að for- ráðamönnum skólans er oft núið um nasir, að háskólinn hafi koll- keyrt sig, þegar hann réðist í bygg- ingu samkomuhússins. Meðan Há- skóli íslands rak Tjarnarbíó, var ágóði þess stoð fyrir skólann, og að fenginni áratuga reynslu í skipt- um við stjórnvöld, verður því að telja mjög eðlilegt, að háskóhnn reyndi að efla þessa tekjulind með því að reisa Háskólabíó. Hvað sem illar tungur kunna að mæla, þá er bíóið stórmerkilegt framlag til menningar í landinu, því þar hefur til dæmis sinfóníuhljómsveitin dafnað eins og blóm í eggi og þroskast til mikilla muna. Hvað við kemur breyttum viðhoríum, sem orðið hafa í kvikmyndahús- rekstri frá því, er húsið var reist, þá eru það hlutir, sem fæstum er gefið að sjá fyrir. Hins vegar skal ég fúslega viðurkenna, að það er almenn skoðun stúdenta á meðal, að myndavali kvikmyndahússins sé mjög ábótavant og til lítiis sóma æðstu menntastofnun þjóðarinnar, hvar svo sem sökin liggur. j: Þú telur sem sagt, að efling háskólans frá því sem nú er ,verði því aðeins veruleiki, að skólinn fái aukið fé til umráða? S: Já, það er mín skoðun. En skilyrði þess, að stjórnvöldin g^ri slíkt, er, að stjórnarherrum, svo og allri þjóðinni, verði Ijóst hið gífur- lega mikilvægi háskóla í íslenzku þjóðfélagi. Mikilvægi hans er þrí- þætti: í fyrsta lagi er þjóðinni hag- ur að geta menntað sína eigin for- 130 TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.