Tíminn Sunnudagsblað - 12.02.1967, Page 18

Tíminn Sunnudagsblað - 12.02.1967, Page 18
sfcvpðu atburði eða birtu áhorfend- um ráðabrug hetjunnar. í leik- verkum nútímans flytja persónur einræður frá upphafi verks til loka jafnvel i návist annarra persóna. Samræður þeirra eru ekki eigin- leg viðtöl heldur tvítal eða þrítal, sérhver rödd talar óhið hinum líkt og í broti því úr „Kirsuberja- garði“ Tsjekhovs, er birtist í mið- kafla þanka þessara. Rétt mun að drepa á eitt atiiði að auki varðandi persónusköpun í leikverkum nútímaská'da, er forðast „góð leikrit“. Þessi leik skáld kæra sig lítið um að rekja sögu persóna sinna allt fram til upphafs leiksins. Þau sýna þær einfaldlega á sviðinu rétt cii s og þær hafi lifað þar árum saman og beðið eftir, að tjaldið drægist frá, svo áhorfendur heyrðu til þeirra Hefðbundið „gott leikrit" hefst nær ævinlega á því að segja frá atburðum, sem urðu til upphafs fyrsta þáttar, en lætur í fyrstunni lítið uppi um persónurnar sjálfar. Áhorfendur, vanir forsögulang- lokum „góðra leikrita," verða tíðum óánægðir með upphaf nú- timaleikverka. „Þetta er engin byrjun“, segja þeir, „þetta gæti allt eins verið piiðjan.1, En nú- tímaleikskáld hafa réttinn sínum megin. Forsagan kemur málinu eiginlega ekkert við, hún heyrir til liðnum tíma. Þegar við kynnumst fólki, þykir okkur litlu skipta að þekkja ævisögu þess til hlitar. Fyrstu stundum vináttunnar er sjaldnast varið til upplýsinga um störf, menntun, hæfileika, misferli og annað slíkt. Við fáum þetta smám saman að vita, og iðulega tekur okkur tug ára að afla efnis f ævisögu eins vinar. Tíminn nemur ekki staðar, svo við getum rifjað upp löngu liðna atburði, og líkt er leikverkum íútímaskáida farið. í verki Osbornes, „Horfðu reiður um öxl“, erum við skyndi lega stödd inn á heimili Porters- hjónanna. Við höfum aldrei séð þetta fólk áður og nú er okkur boðið að fylgjast með lífi þess í tvær klukkustundir, engin við- vörun, engin forsaga, einungis brugðið upp mynd af ensku mið stéttarfólki, og áhorfendur verða sjálfir að geta í eyðurnar sem þeim er og tamt í daglegu hfi sinu. Þetta verður okkur að vera ljóst, ef við eigum að njóta verks ins til fullnustu. Við verðum strax að skynja, hvað hrjáir Portershjón in, án þess að Osborne eyði dýr- mætum tíma í útskýringar og for söguþvogl. Þau sitja á sviðinu rétt eins og nágrannar okkar, og allt, sem nauðsyn er a'ð vita um fortíðina, verður að koma af sjálfu sér, smám saman eins og utan leikhússins. Skáldsagnahöfundur getur rakið forsögu persóna sinna um leið og hann kynnir þær, en slíkt er ekki talið sæma nútíma- leikverki. Fyrrum var efni stórbrotinna leikverka nær ætíð sagnrænt, þar barðist hin göfuglynda hetja gegn kynngimætti örlaganorna og illra vætta. Nú mun flestum ljóst orðið, að leikverk geta og sagt frá al- múgamanninum, smásálarhetj- unni, og verið stórbrotin eigi að síður. Þeir, sem villzt hafa í völ- undarhúsi hins daglega lífs, heyja jafnvel örðugri baráttu en kóngar og kavalerar á vígvelli mannkyns sögunnar. Hinir síðarnefndu gátu hæglega uppgötvað felustaði óvina sinna og samið við leigumorðingja, en þeir, sem glíma við spurnir um innsta eðli tiiverunnar, fá ekki slíkum brögðum beitt. Samt sem áður mun líklegt, að leikskáld nútímans taki að skrifa sagnræn leikverk, sitt eigið til- brigði, sagnaleik nútímans, og vak ir fyrir þeim tvennt: í fyrsta lagi vilja þau gæða sviðið hátiðarblæ hrikaviðburða, og í öðru lagi leggja áherzlu á sígildi mannlegra vandamála með því að höfða til nútímans með fortíðarmyndum. En leikmennt nútímans getur ekki beitt listbrögðum fyrri alda, og sköpunarháttur nútímaleik- skálda samræmist ekki hinni klass- ísku mótun sagnrænna leikverka, sökum þess einfaldlega, að hún fylgdi ávallt staðreyndum sög- unnar. Skrifi leikskáld hefðbund- inn sagnaleik, er því farið sem þeim, er semur „gott leikfit", og er nauðbeygt að starfa eftir for- málum likt og sagt var hér að framan. Skáldið fær ekki sjálft að sníða persónum sínum stakk, og þar með er sjálfstæð og óháð túlkun orðin tóm. Enda þótt við segjum, að fólkið sé skapandi sög unnar, eru sagnfræðirit einungis upptalning staðreynda en ekki mannlýsingar, og sérhvert leik- verk, byggt á sögulegum stað- reyndum, frásögnum atburða og viðteknum hugmjmdum um mikil- menni fortíðarinnar, verður að sjálfsögðu að fylgja slíkum stað reyndum. Skáldið getur bókstaf- lega ekki stefnt saman sex sagna persónum til þess að sjá, hvað þær muni gera, því hann veit það þá þegar. Staðreyndirnar hafa tjáð honum allt saman. Slíkt vandamál er ekki nýtt fyrir bæri. Shakespeare átti við sömu erfiðleika að etja, þegar hann reit sagnaleiki sína, en aðstöðu hans bætti nokkuð, að honum var ein- ungis í mun að réttlæta og efla skoðanir samtíðar sinnar og hann reyndi lítt að^ rýna í sálarfylgsni persónanna. í leikverki sem „Rík arður 111“ sjáum við, aö réttvisin fer loks með sigur af hólmi. Sam tíðarmenn Shakespeares vissu, að svo hlaut að vera, þeim kom ekki annað til hugar, en nú munu flest ir þeirrar skoðunar, að réttlætið eigi tíðum í_vök að verjast og fari á stundum halloka. I „Rik arður 11“ fjaHar Shakespeare um guðdómlegt vald konunga og önn ur fríðindi konungdóms, svo og, að konungar séu meiri en aðrir menn. Nú hafa þjóðarleiðtogar glat að slíkri virðingu. í okkar augum eru þeir ósköp venjulegir menn, kenjóttir og breyskir, sumir fórnar lömb minnimáttarkenndar og ann arra sálarsjúkdóma og eiga lítið skylt við guðdóminn og æðri vizku. Sjáum við konung á leiksviði, er okkur nú tamt að líta á hann sem einstakling í afar sérstæðri að- stöðu, en ekki sem konung. Leik- skáld nútímans vilja rýna I hugar líf fólks, en eru treg að fást við sögufræg mikilmenni, er notið hafa hylli þjóða öldum saman, og því hafa þau tilhneigingu til að semja sagnaleiki um þá, er sjaldan er hampað um of í sögubókum. Þau skrifa um smákónga og minni spámenn, og er þeim gjarnt að sýna þá ekki sem volduga drottn- ara í hásæti eða gáfaða mannvini í öndvegi vizkunnar heldur sem lítil peð, skekin af óþekktum reg inöflum tilverunnar. Þeir eru „Sér hver“, fulltrúar allra manna, við sjáum sjálf okkur í persónum þess- um, og því hafa sagnaleikir nútím- ans svolítinn keim af siðgæðisleikj- um miðalda. Hver sem verður þróun nútíma- leikmenntar, munu sérstakir frum- þættir ætíð halda gildi sínu. Einn þeirra er, að leikverk krefst áhorf enda í sal og innlifun, hugræn tengsl, hjálpar þeim að njóta verks 138 T I M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.