Tíminn Sunnudagsblað - 02.07.1967, Blaðsíða 18
Tongaeyjar
irinn, Tu'ipelehake prins, er nú
forsæUsráðherra.
í samhljóðan við siðvenjur landj
ins tóku bræðurnir sér konur af
einni hinna þrjátíu og þriggja
aðalsætta í Tongaeyjum. Var brúð
kaup beggja haldið samdægurs ár-
ið 1947. Tupou konungur kvæntist
Halaevalu Mataaho, og Tu'ipeleh-
ake prins kvæntist Melenaite Tup-
ou-Moheofo. Báðar eru konurnar
frænkur bræðranna.
Tupouto konungsson leggur nú
stund á nám við Sandhursthern-
Maiilakongur, Tul aðahháskólann í Englandi. Þess er
Maiiia, þjóðar. vænzt, að hann gangi að eiga
tákn Tongeyja. frænku sína, Melenu dóttur for-
■ Vináttueyjar
Malilakóngur, Tui Malila, var
þjóðartákn Tongaeyja, unz hann
gaf upp öndina fyrir tveimur ár-
um. Á átjándu öld þá konungur
Tongaeyja þessa frægu skjaldböku
að gjöf frá landkönnuðinum James
Cook, og hún dó svo sannarlega í
hárri elli.
Að vísu var Malilakóngur ósköp
hrumur síðustu árin, sem hann
lifði. Hann var haltur og heyrnar-
sljór, og auk þess hafði hann blind-
azt í skógareldum. Bifreið laskaði
„sitjanda“ Malilakóngs árið 1960,
og skömmu síðar sló hann hestur.
Salote, drottning Tongaeyja, erfði
Malilakóng 1918 og bjó honum
bæli undir stofugólfi hallarinnar.
Átti hann þar góða daga. En tæp-
um sólaihring eftir andlát drottn*
lngarinnar safnaðist Malilakóngur
til feðra sinna, og er ekki enn
vitað, hvort hann sprakk af harmi
eða dó sökum aldurs og hrum-
ieika.
Salote drottning var i tölu merk-
ustu valdhafa heims, og fáir þióð-
höfðingjar munu hafa verið svo
dáðir sem hún. Salote fæddist
þrettánda marz árið 1900, og þar
eð hún var elzt systra sinna og
engir voru bræðurnir, tók hún við
riki að föður sínum látnum árið
1918. Salote hlaut menntun sína
í Ástraiíu og á Nýja-Sjálandi, og
hún hafði slíkt vald á enskri tungu,
að öllum, sem heyrðu mál hennar,
þótti hún vera ósvikinn Englending
ur. Þegar hún las fyrir embættis
skjöl, liktist málfarið tungutald
ritsnillinga.
Og Salote hafði fleira sér til
ágætis en gáfurnar. Hún var glæsi-
leg að vallarsýn, tæpir tveir metr-
ar á hæð, grönn og beinvaxin. Hún
brosti við öllum þegnum sínum,
var glaðsinna og látlaus í fram-
komu. Salote var sæmd ótal heið-
ursmerkjum og tignarheitum. Hún
aflaði sonum sínum tveimur hinn-
ar beztu menntunar, og nú ráða
þeir ríkjum eftir hana.
Hinn nýi þjóðhöfðingi Tonga-
eyja er Tungi prins, en hann gegndi
áður embætti forsætisráðherra.
Hann ber konungsheitið Tupou
þriðji, en Tupou er ættarnafn
fconungsfjölskyldunnar. Yngri bróð
sætisráðherrans, þegar hann snýr
heim að námi loknu. Nokkur ár
munu líða, unz það verður, því að
Tupou konungur vill búa son sinn
vel undir framtíðarstarfið. Sem
krónprins var hann sjálfur forsæt-
isráðherra, landbúnaðarráðherra,
utanríkisráðherra, menntamálaróð-
herra, félagsmálaráðherra, yfir-
maður landhers og flota og hafnar-
málastjóri.
Ríki Tupous þriðja tekur yfir
150 eyjar, og eru 39 þeirra i byggð.
Eyjar þessar liggja á stóru svæði
fyrir norðan Nýja -Sjáland og aust-
an Ástralíu, og eru þær samtals
500 ferkíiómetrar. Höfuðborgin,
Nukualofa, er á stærstu eynni,
Aðsetur konungsf jölskyldunnar i Nukualofa, höfuðborg
óngaeyja.
570
T f M I N N — SUNNUDAGSBl.Af)