Tíminn Sunnudagsblað - 16.07.1967, Síða 12

Tíminn Sunnudagsblað - 16.07.1967, Síða 12
Kirkjubæjarklaustur. Ljósmyndir: Páll Jónsson. Á tólítu öld var gróðrartími ís- lenzku klaustranna, þá voru flest þeirra stofnuð. Það fyrsta 1133, Benediktsmunkaklaustur á Þing- eyrum, síðar Þverárklaustur 1155, þá klaustur í Skál'holtsbiskups dæmi, Hitardalsklaustur 1166 og klaustur í Þykkvabæ 1168 og Fiat ey 1172, allt munka- og kanoka- klaustur. Var því eigi vanþörf hér lendis fyrir nunnuklaustur, og var hlutazt til um, að eitt slíkt væri stofnað. Kirkjubær á Síðu varð fyr- ir vaiinu sem klaustursetur, og var þar sett systraklaustur af Benediktsreglu árið 1186. Voru lagðar til þess eignir Bjarnhéðins Sigurðssonar prests (d. 1173), sem lengi hafði haldið staðinn með sóma og virðingu og verið ástvinur Þorláks biskups helga Þórhallsson ar. Þorlákur vígði klaustrið og fyrstu abbadís þess, Halldóru Eyj ólfsdóttur. Gegndi hún starfanum frá 1189 til 1210. Er ekki að efa, að mikil aðsókn kvenna hefur verið að klaustrinu þegar frá fyrstu tíð, þótt allar þær, er þar voru systur kallaðar, væru ekki vígðar nunnur. Getið er hér á landi þegar í frumkíistni einsetu- kvenna og nunna, sem sumar hafa tekið vigslu. Má nefna hér Guð- rúnu Ósvífursdóttur á Helgafelli, Guðbjörgu hina víðförlu Þor- bjarnardóttur í Glaumbæ, Hildi, nunnu á Hólum, Guðrúnu, ein- setukonu á Þingeyrum, og Ketil- björgu, nunnu í Skálholti. Margar höfðingsfrúr leituðu í aldurdómi KLAUSTRAÞÆTTIR I sínum á náðir klaustra víða um lönd, og svo hefur verið hér einn- ig. Annars vegar létu höfðingjar ungar dætur sínar í klaustur. Þur- íður og Halldóra, dætur Gizurar Hallssonar lögsögumanns í Hauka dal, urðu báðar nunnur í Kirkju- bæ. Þuríður átti langan og at- burðarikan æviferil, hafði verið tvigift, fyrst Tuma Kolbeinssyni á Víðimýri og síðar Sigurði Orms- syni á Svínafelli. Halldóra var móð- ir Teits Bersasonar biskupsefnis í Skálholti. Er ekki að efa, að mjög auðgaðist klaustrið við að fá slíkar konur til systralags, þær hafa lagt með sér stórfé. Mjög líklega hefur önnur hvor Gizurardætra verið abbadis eða príorinna í klaustrinu, þó að sögur fari ekki af því. Báðar þær systur dóu árið 1224 og eru að vísu kaJlaðar nunnur. Getið er í annálum andláts Guðrúnar príor himiar yngri 1217. Hér á vafalaust að stanóa príorinna, en ekki príor, «12 T I ‘M ■ iv N - :SIINNV1VA<ÍSB!.>*>

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.