Tíminn Sunnudagsblað - 23.06.1968, Page 6
Ekki munu mörg ár líSa fyrr en tölvur verða notaðar við barnakennslu, eftir því sem vísindamenn segja. Drengurinn
á myndinni er að œfa sig í‘ stærðfræði. Tölvar spyr hanr> gegnum heyrnartækin, hvernig eigi að leysa jöfnuna, sem
sésf efst á raftjaldinu. í miðlínunni og neðstu linunni eru tvö hugsanleg svör, og hann á að snerta hið rétta me'ð Ijós-
penna. Gangi honum vel, ber tölvan smám saman upp þyngri spurningar — gangi honum mjög illa, getur tölvan sent' boð
tjl lifandi kennara um að koma til hjálpar.
líkist tvöíöldum plötuspilara.
Raunverulega er þarna um að
ræða tvo seguldiska á stærð við
hljómplötur. Á hvorum diski eru
geymdar tvær milljónir fölustaía.
Diskarnir snúast fimmtán hundruð
snúninga á mínútu. Þó er það
hægðarleikur fyrir hreyfanlegan
les- og skriftararm að hitta hvenær
sem er á réttan stað, lesa forskrift-
ina, sem gjarna er heiilöng talna-
runa og tilkynna miðkassanum,
vélkjarnanum, efni hennar.
Samt finnst Oddi véiin ekki sér-
iega vitur. Hann segir, að hún hafi
hivorki undirmeðvitund né ályfct-
unargáfu.
„Þegar þú ferð á fætur á morgn-
ana og eldar morgunverð, þá er
sú athöfn framkvæmd með við-
bragðakeðju, sem er langtum
^ flófcnari en nokkur tölvureikning-
ur. Eða setjum svo, að þú akir
bifreið vestan úr bæ inn á Snorra-
braut. Á þessari stuttu leið þarftu
að meta og vega mörg atriði. Þú
temprar hráða, velur rétta gíra og
réttan vegarhelming, og við hver
gatnamót ákvarðar þú stefnu. Þú
tekur tillit tii annarra farartækja.
Óvæntar hindranir, svo sem gatna-
gerð, eða árekstrar milli annarra
bifreiða, kunna að mæta þér og þá
er að bregðast við á réttan hátt.
Þetta litia ferðalag krefst sífellt
nýrra ákvarðana f.rá þinni hendi.
Tölva gæti aldrei nokkurn tíma
leikið það eftir. Að vfsu geta raf-
tæki stýrt skipum, en aðeins á rúm-
sjó, og þar sem stefnan er fyrir-
fram ákveðin.“
Oddur segir, að þáð sé raunveru-
iega aðeins eitt mál, sem tölva
geti tekið afstöðu til, oig það er,
hvort tiltekin tala sé jákvæð eða
neikvæð. Sé hún til dæmis að lesa
bankareilkninga og rekist á nei-
kvæða tölu, það er yfirdráttur, þá
ritar hún númer þess reiknings á
sjálfvirka ritvél, sem henni er
tengd.
Gataspjöld (hvert gat táknar
ákveðna Lölu) eru mikið notuð' til
að skrifa inn á minni vélarinnar,
hvað hún eigi að gera, eða þá til
að taka við niðurstöðunum af út-
reikningum hennar. Spjöldin hafa
aðsetur í kassanum lengst
til hægri og getur vélin gatað um
125 þetrra á mínútu. Hún er helm-
ingi fljótari að lesa, les 250 spjöld
á mínútu, en skrifar á sjá'lfvirka
ritvél fimmtán stafi á sekúndu.
„Haf'rannsóknastofnunin hefur
til dæmis á spjöldum allar upp-
lýsingar um þau sex þúsund sfldar
sýnishorn, sem Jakob Jákobsson
fiskifræðingur fékk síðastliðið sum
ar, og getur tölvan á augabragði
486
T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ