Tíminn Sunnudagsblað - 23.06.1968, Síða 18
Eins og segir í apphafi þessar-
ar greinar, var það 5. janúar
1918, sem hafísinn rak að land-
inu. Þann dag og hinn næsta,
fyllti Eyjafjörð af ís. Þá var norð-
anhvassviðri og hríð og mikið
frost. Umhleypingasamt hafði ver-
ið fyrri hluta vetrarins, einkum
sunnan lands, en nyrðra var ,,hörð
tíð frá því mánuði fyrir vetur og
fram að iólum“, en þá gerði hláku,
og kom upp jörð um áramótin
viðast um land.
Þannig er lýst veðráttu síðustu
mánaða ársins 1917 í Almanaki
þjóðvinafólagsins, 1919.
f almanakinu 1920, bls. 49, (Ár-
bók íslands 1918) segir: Árinu
1917 lauk með þiðviðri, en 5.
janúar gekk í hörkuveður með
frosti og fannkomu, og rak þá haf-
ís að landinu frá Látrabja-rgi og
allt austur um til Gerpis. Eyja-
fjörð fyllti af ís þann 6. janúar.
Gífurlegar frosthörkur voru svo
til 22. janúar. Fór frostið hæst
21. janúar.
„Þá var 25 stiga frost í Reykja-
vík, 26 stig á Seyðisfirði, 28 stig
á ísafiröi 33,5 stig á Akureyri og
36 stig á Grímsstöðum á Fjöllum.
f Vestmannaeyjum 12 stig“.
Þannig er * lýsing þess man-ns,
sem um langt árabil færði í let-
nr wöítorfarolialnmj ffiliando
Hefst þá frásögn mín.
Hinn 5. janúar 1918 gekk i
hörkustórhríð af norðri við Eyja-
fjörð. Ekki var þó fannburður
mjög mikill, en þvi meira hva-s-
viðri. Þennan dag og þann næsta
fyllti Eyjafjörð af hafís. Segja má,
að ísinn kæmi mönnum mjög á
óvart.
Ég, sem þessar línur rita, átti
þá heima í Leifshúsum á Sval-
barðsströnd við Eyjafjörð. Bær-
inn Leifshú-s stendur átta hundruð
metra frá sjó. Umræddan dag var
skyggni svo lítið vegna hríðarinn-
ar, að ekki sá til sjávar. Okkur
var þvi ókunnugt, að hafísinn
væri farinri að reka inn fjörðinn.
Á þessum árum kom það enn
fyrir, að i norðanátt ræki spýtu
og spýtu á fjörur eða eitthvað
annað fémætt. Var þvi oft, þegar
svo viðraði, farið til að 1-íta eftir
því, eða eins og það var kallað,
„að ganga á reka“. Okkur strák-
unum þótti það mjög spennandi.
Það va-r þvi að ráði, rétt fyrir rökk-
ur þennan dag, að við fórum tveir
bræðurnir að ganga á rekann. En
þegar að sjónum kom, var það
annað en rekinn, sem dró að sér
ath-ygli okkar, því að af sjávar-
bakkanum sáum við, að mikinn
hafís rak með flughraða inn fjörð
inn. Við landið var aðeins mjó
renna af auðum sjó, ofan við það,
sem jakarnir stóðu botn.
í þessari rennu voru nokkrir
tugir — eða hundruð — höfrunga,
sem þutu í æðisgenginni hræðslu
við hafísinn norður með landinu.
Líklega hefur þetta verið þeirra
síðasti sundsprettur, því að næsta
dag f-undust um hundrað og tutt-
ugu höfrungair dauðir í vök við
fjörur í landi Grímsness á Látra-
strönd, en þaðan voru al-lar leiðir
iokaðar. Grímsnes var þá næst
nyrzti bærinn við austanverðan
Eyja-fjörð, en þangað eru 35—40
fcm. f-rá þeim stað, er við sáum
höfrungana kvöldið áður.
Eftir skamma stund voru höfr-
ungarnir horfnir sjónum okkar
bræðra, enda var nú myrkur að
skella á. Við héldum því heim og
sögðum tíðindin.
Að morgni þriðja dags, frá því
hriðina gerði, var komið bjart veð-
ur. Sást þá, að Eyjafjörður var
fullur af hafís. Þennan dag fór
Halldór bróðir minn einhverra er-
inda til Akureyrar, en hann var
elztur okkar þriggja bræðra, sem
bá vnrinri liaima HalldAn ynr aníi
skytta og mjög áhu-gasamur veiði-
maður. Við hinir bræðurnir gerð-
um nú ferð okkar ofan að firð-
inum til að skoða hafísinn. En
hann var óðum að frjósa saman.
Ekki hættum við okkur þó telj-
andi út á ísinn, því að jakarnir
voru flughálir og lagísinn á vök-
unum á milli þeirra ekkl orðinn
mannheldur.
Þegar við komum heim úr þess
ari för, var orðið skammt til myrk-
urs. Þó var enn svo bjart, að sjá
mátti hóp manna á fsnum nálægt
vesturströnd fjarðarins. Hópur
þessi þokaðist norður með land-
inu, og af og til heyrðum við skot
og skot á stangli. Og eftir að
dimma tók, sáum við eldblossana
frá skotunum. Líklegast þótti okk-
ur, að þarna væri verið að elta
seli. Þó gerÓu menn sér ekki f-ulla
grein fyrir þvi, hvað um var að
vera.
En þess var ekki langt að bíða
að gátan væri ráðin. Halldór bróð-
ir minn kom með fréttirnar, þeg-
ar hann kom frá Akureyri um
kvöldið. Og þær voru þessar:
Þegar hafísinn rak inn, hrökt-
ust nokkrir tugir háhyrninga und-
an honum allt inn undir fjarðar-
botn. Þegar hríðina birti, sáu Ak-
ureyringar og fleiri hvalina og var
þá brugðið við og gerður út leið-
angur til þess að reyna, ef unnt
væri, að ná einhverju af þeim.
En þetta var miklum erfiðleik-
um bundið og hættulegt, þar sem
lagísinn á vökunum var ekki orð-
inn mannheldur og þurfti því að
stikla á glerhálum hafísjökunum
til þess að komast að hvölunum.
En þeir héldu þá enn opnum nokkr
um smávökum meðfram vestur-
strönd fjarðarins, allt norður und-
ir Gásaeyri. En innan við eyrina
var allstór vök, sem hvalirnir stað-
næmdust í um kvöldið.
Ekkert vil ég segja um þáð,
hvort einnverjir hvalir hafa náðst
þennan dag, en talið var, að þrem
eða fjórum hefði verið grandað,
en að minnsta kosti sumir þeirra
stukku og náðust ekki.
Og svo flaug hvalsagan um
kvöldið.
Næsta dag va-r aftur skollinn á
norðan-hríðarbylur, og enn hafði
frostið hert i var þá líklega orð-
ið um eða yfir 20 stig á Celsíus.
En veðurharkan kom ekki í veg
fyrir, að menn byggju sig til hval-
veiðanna, eg það áður en fullbjart
var nrðið Ravndar höfðn marvir
unnið að því kvöldið áður, og fram
á nótt, að útbúa veiðarfæri, svo
sem skutla, strengi, ífærur og
sveðjur, sem notaðar voru, að ó-
gleymdum byssunum. En þær voru
af ýmsum gerðum — rifflar, hagla
byssur af ýmsum stærðum og gerð
um, og jafnvel voru dregnir fram
gamlir framhiaðningar, sem hlaða
skyldi með niðursöguðum járnbút-
um, hæfilega gild í bysuhlaupið.
Það átti eftir að sýna sig, að síð-
ast töldu byssurnar voru einna á-
hrifaríkustu vopnin.
Segja má, að ríkjandi væri
kapphlaup um að ná í eitthvað af
hval. Það var ekfci aðeins, að slíkt
væri góð björg í bú, heldur og
hitt, ef ekki var reynt að nota
sér þessa veiði, átti ekkert annað
fyrir þessum skepnum að liggja
en örmagnast í vökum eða kafna
undir ísnum og úldna síðan á sjáv-
arbotni, engum til nota nema há-
karlinum.
Af nyrztu bæjum á Svalbarðs-
strönd höfðu menn um kvöldið
bundizt samtökum um að vera
saman í flokki. Um morguninn
komum við saman og urðum sex-
498
TfMINN - SUNNUDAGSBLAÐ