Tíminn Sunnudagsblað - 06.10.1968, Blaðsíða 6

Tíminn Sunnudagsblað - 06.10.1968, Blaðsíða 6
Rakul og hesturinn hennar. GESTIR AF MANANUM Þórshöfn, minn bernskubær, stendur á austurströnd Strauaneyj- ar. Rösklega mílu vegar þaðan, á vesturströnd eyjarinnar, er hinn sögufrægi Kirkjubær. Þar var bisk- upsstóU Færeyinga á miðöldum, og þar má enn sjá veðraðar rústir got neskrar dóm'kirkju, sem aldrei var fullgerð. Milli Kirkjubæjar og Þórs hafnar gnæfir fjallið Kirkjubæjar- reyn. Þórshafnarmegin líkist það feykistórum, hvössum uglukambi, en þar uppi er í reyndinmi viðáttu- mikil háslétta, að mestu þakin blágrýtisdyngjum. Auðn — sem á sér þó nokkra líkn: bláar fjalla- , tjarnir og mosaþembur, fuglahreið ur og þjótandi héra. Fjall sem þetta hlaut að örva ímyndunarafl barnshugans. Við egg þess var endir heimsins, og jafn- framt upphaf alls sem er, þar settist sólin í skammdeginu, þar eftir William Heinesen urðu aftanskuggar lengstir, þar skein kvöldstjarnan, þar kom máninn stundum upp, stór og rjóð- ur eins og leirdiskur, og ég ímynd- aði mér, að vestur við sæinn, hand- an hins dimma fjalls, stæði kletta- borg, hlaðin úr björgum úr hlíð- inni, klettaborg eins og frá segir í ævintýrum og fornum kvæðurn. í klettaborginni bjó seiðkonan Rakul með æringjanum Níelsi og öðrum náunga, sem við kölluðum Manninn af mánanum, því að hann hafði, að sagt var, „dottið of- an úr skýjunum“. Þessi merkilega þrenning átti sér tvöfalt, leyndar- dómsfullt líf: var að hálfu drauma og þjóðsagnakennd, að hálfu á- þreifanlega mennsk. í seinna gervinu birtust þau af og til sem gestir á bernskuheimili mínu í Þórshöfn. Þau komu gang- andi austur yfir fjall og heiði og fossandi læki. Oft teymdu þau einn eða tvo klyfjahesta, litlar, síð- hærðar og gerningalegar skepn- ur, stundum líka folald. Hestarn- ir voru klyfjaðir laupum og gutl- andi byðum. í laupunum voru hvítir ostar og smjöröskjur, í byð- unum mjólk eða rjómi — þær voru loklausar, en strengdir yfir þær skinmsneplar. Utan um ost- ana voru líka skinmpjötlur, og laupar og byður voru bundin við klyfberana með gildum, trosnuð- um reipum. Gestirnir þrír voru sjálfir klæddir í vaðmálsföt og heimagerða skinnskó með ull- arlindum. Lindar karlmannanna voru hvítk á litinn, lindar Rakul- ar rauðir, og undir grófu lérefts- svumtunni, sem hún tók af sér úti á stéttimni var hún í dökkbláu vað- málspilsi. Af þessari litlu lest lagði sætan og áleitinn þef ó- byggða, mjólkur og bleyttra 774 T í M I N N — vSUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.