Tíminn Sunnudagsblað - 06.10.1968, Blaðsíða 17

Tíminn Sunnudagsblað - 06.10.1968, Blaðsíða 17
Að vera bóndi og skáld, hvort tveggja í senn. Að vera samgróinn íslenzkri náttúru og íslenzkum dýr um í blíðu og stríðu, vetur, sumar, vor og haust. Að vera skáld og leggja stund á bókleg fræði á löngum vetrar- kvöldum í friði og kyrrð sveitar- innar. Er það ekki þetta, sem hef- ur verið óskadraumur bókhneigðra íslendinga um aldaraðir? Og er það ekki þetta, sem flestu öðru fremur hefur haldið þjóðinni lif- andi í þúsund ár, og gert íslend- inga að þvi, sem þeir eru? Árið <1942 vakti Magnús heitinn Ásgeirsson athygli manna á Guð- mundi Böðvarssyni með þessum orðum m.a.: „Vafasamt er, hvort sú fáskipaða sveit, sem ennþá ann fögrum ljóð- u'm hér á landí, héfur gert sé” SYO ljóst sem skyldi, hversu merkur at- burður útkoma hinnar fyrstu ljóða bókar Guðmundar Böðvarssonar (1936) var í raun og veru: Einyrki í afskekktri sveit, óskólagenginn og fáförull, sendir frá sér fyrstu iijóðabók sína, þar sem hvert kvæði er með ótvíræðum menningar- brag, og nokkur þeirra (Kyssti mig sól, — Það uxu tvö tré, „Ok velkti þá lengi í hafi“) meðal þess sem bezt hefur verið kveðið á ís- lenzku.. .“ Nú eru liðin 32 ár síðan „Kyssti mig sól“ kom út, og nú hefur „sú fáskipaða sveit, sem ennþá ann fögrum Ijöðum hér á landi“ fyrir löngu gert sér ljóst, hve merkilegt framlag bóndans á Kirkjubóli til íslenzkra bókmennta er. Hann er sá núlifandi höfundur Islenzkur, sem skyldastuir er Steph ani G., bæði um lifnaðarháttu og lífsviðhorf. Báðir skyggnast þeir vítt um veröld í ljóðum sínum og hvoi'ugum dettur í bug að vikja Bóndinn og þjóðskáldið sér undan því að kenna til í storrn- um sinna tíða. Kveðja til hlutlauss vinar eftir Guðmund Böðvarsson er mögnuð skilgreining á viðhoi’fl hans til samtíðarinnar, vanda og vegsemd þess að vera þátttakandi 1 lífsstríði mannkynsins. Hann hef- ur ekki miklar mætur á hlutleysi vinar síns: Þér átti að lærast að fara í felur, og finna þér afdrep og hlíf við feiknum þess leiks, þar sem fylkingar berjast um fraimtið og mannlegt líf. Enda hræddist þú skuggann og skelkaður hímdir í skotinu, ábyrgðarlaus. Þú lézt bjóða þér hlutskipti blauðasta þrælsins að byrgist þinn dýrmæti haus. En það eru ekki allir á þeim buxunum að skríða í skjól þegar hætta steðjar að. Kvæðið er ber- sýnilega ort á þeim örlagaþrungnu dögum, þegar veröldin stóð á önd- inni yfir þvi, hvort tækist að stöðva framrás þýzku herjanna við Stalín- grad í seinustu heimsstyrjöld: Og þeim hefði fundizt þín lífshætta lítil og lagt á þig kýmilegt mat, sem börðust í Transvaal, sem vörðust hjá Verdun og verja nú Stalíngrad. Og það gæti líka verið dálítið fróð- legt að hafa tal af þeim sem barðist á Noregs fönnuðu fjöllum og féll par við bróður síns hlið. . . En Guðmundur er nógu sann- gjarn til þes að lofa þeim hlut- lausa að malda í móinn: Jú, þú átt þér eitt svar: Þar sem orustur heyjast til úrslita þar eða hér, þá velta þau lítið á vesaling einum. — Og þó velta þau alltaf á þér. Já, þú sjálfur. Þú verður að beTá ábyrgö á þítíu eigin lífi, það geta ekki aðrir gert fyrir þig. Þú sjálfur. Þú ert mannkynið. Það er engin von til þess að veröldin sé betri en einstaklingarnir, sem í henni búa Og bresti þig manndóm til þess að lifa lífinu samkvæmt þessu .. . þá mun hugleysið verða þín gröf, og þá tapast þér tramtíð og tilveruréttur, þá tapast þér lönd þín og höf. Það er sannarlega ekki auðvelt að standa og híma álengdar eftir sl-ikia brýningu. Kvæði Guðmund- ar, í Bifröst, gengur í líka átt eins og Bréf til hlutlauss vinar. Þar brýnir hann íslenzka æsku að duga landi sínu og verða ekki verrfeðr- ungar: Ef æskan bregst þeirri ætt- jörð, sem henni var gefin Guðnwndur Böí vursson T I M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ 785

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.