Tíminn Sunnudagsblað - 08.06.1969, Síða 16

Tíminn Sunnudagsblað - 08.06.1969, Síða 16
burtu rándýr, Stóm mikið var um þar í skóginum. Ég minniist þess, þótt ungur væri, að ég fór með Birni, frænda mínum, út í skóg- inn hjá bæ afa míns og þar sá ég hirti, músdýr og úlfa. Bezt man ég þó eftir hérum og vatnsrottum, etn þær voru mikið veiddar í gildr- ur í læk skammt frá húsinu. Skinn ilð af þeiim var sefllt á fimmtán sent og notað í stúkur eða bryddingar ó hanzka. ísflendingum, sem orðnir voru fullorðnir þegar þeir fluttust til Kanada, gekk fremur illa að læra eniskuna, og sum ensk nafnorð, sem mikið komu fyrir í daglegu við- skiptaiífi vildu bTandast í daglegt miál með skoplegum hætti. Um það vitnar þessi vísa, sem ég lærði: Það er meinið, þegar treinið kemur önderstendur ekki ég, æslander í Winnipeg. Treinið var járnbrautarlestin, önderstanda að skilja og æslander íslemdingur. Ekki höfðu þau afi og arruma lengi dvalizt í Vesturheimi, er heimþrá tók að gera vart við sig hjá ýmsum í fjölskyldunni, svo að að ráði varð að flytjast aftur heim tiil íslánds sumarið 1907. Það, sem ég man frá heimferðinni, er allt noikkuð óljóst og mikið blandað frásögnum, sem ég síðar heyrði af vöruim fólks míns. Farið var með járnbrautarlest frá Winnipeg tii Quebeck á austurströnd Kanada. Það er mjög löng leið, og eitthvað mun hafa verið numið staðar á leið inni á brautarstöðvum og senni- lega skipt um lestir. Lagt mun hafa verið af sta® 1. júM í eimum á- fangastað man ég eftir því, að Bjöm, frændi minn, fór út úr Test- inni og út í skósarrunna, sem þar var rétt hjá. Þar sá ég hóp af Indíánum Í furðulegum búningum með als konar fjaðraskraut í hött- um sínum. Mér stóð einhver ótti af návist þessara manna, og ég varð hræddur um, að þeir myrdu gera Birnj frænda mínum, mein. En svo varð þó ekki. Þegar til Quebeck kom, var ferð ákveðin þaðan með skipi til Eng- iands. Dag einn, er við dvöldurmst þama, kom maður nokkur að máli við þá aifa mimn og Björn og sagði við þá: „Mér lízt illa á bessa ferðaáætl- un ykkar yfir Atlanfcshafið. Þetta skip,, sem þið æfclið með er með gamghjól á hliðum, en ekki skrúfu og því mjög gangtregt og í alla sfcaði ótraust skip á svo langri leið. En hér á höfninni er annað sikip, sem er í þann veginn að Teggja úr höfn tifl Englands. Það er Skrúfuskip og því margfalt traust- ara og hraðskreiðara. Þetta skip er eign Allanlínunnar og heitir „Cor- sígan.“ Ég er viss um, að þið getið fengið far með þessu skipi, ef þið talið við skipstjórann.“ Þetta leizt þeim afa mínum og Birni að vera myndi heilaráð. Björn fór svo þegar á fund þessa skipstjóra. Skipstjórinn tók erindi Björns vel og lofaði að bíða eftir fólkinu í tvo tíma. Fór Björn þegar og sótti fólk og farangur og flufcti yfir í „Corsígan“. Með þessu skipu sigldum við svo ÖIT í góðu gengi til Englands. Em það er af hinu skipinu að segja, sem í upphafi heimferðar átti að verða farkostur okkar yfir Afclants- hafið, að frá því að það lét úr höfn í Quebeck., hefur ekkert til þess spurzt. Frá Englandi fór fjölskyldan með kolaskipinu „Ankoris“ til Reykjavíkur. Þar var beðið í þrjár vikur eftir skipsferð til Horna- fjarðar. Þegar til Hornafjarðar kom, var haldið heim að Diiksnesi og þar dvalizt um hríð. Daginn eftir heim- komuna fóru þeir afi minn og Björn út í fjörð og skutu sel. Var það fyrsta veiði þeirra eftir heim- komiuna. Stuttu síðar var hafizt handa að búast um til vetursetu í Lækjarnesi. Gömul tóft, sem þar hafði staðið, var Tagfærð og sett á hana skúrþak. Þar var innréttað svefnherbergi og eldhús. Fenginn var að láni lítill kolaofn hjá þeirn Dilkisneshjónum og settur þar upp sem eldstæði. Svo um eða upp úr vetu'rnótbum var fluitt í nýja húsið í Lækjarnesi og nýju landnámi og heimkomu þar fagnað með kaffi og nýbökuðum pönnukö'kum. Furðuheimar. Ég var ekki sérlega gamaH mað- ur, þegar mig fór að dreyma ýnnsa athyglisverða drauma. Ég fór líka að sjá dularfulfl fyrirbrigði. Ein fyrsta endurminning mín um slí'kt, mun vera frá vetrinum 1920. Sig- urður, móðurbróðir minn, var þá kvæntur Agnesi Steinsen, og bjuggu þau i Þinganesi, en afi minn og amma dvöldust þar hjá þeim. Þetta mun hafa verið um eða eftir miðjan desember. Þá er ég sendur frá Lækjarnesi austur að Þinganesi til að færa fjölskyld- unni þar mjólk. Ég kem mjólk- inni tl skila og fer síðan til baka a'ftur beint vestur úr Dil'ksneslandi og var þá eitthvað farið að bregða birtu. Eitthvað leið mér ekki vel á þessari göngu minni þarna. Þeg- ar ég kem á mýrarnar austur við Dilksnesholtið, er fram undan mér smáhólil, og uppi á hólnum situr maður með hönd undir kinn og svartur hundur við hlið hans. Ég hugsa mér strax að heilsa upp á þennan mann, sem ég taldi víst, að væri frændi minn, Jón Björns- son í Dilksnesi. Ég greikkaði göng- una að hólnum, en leit snöggvast við, en þegar ég leit aftur á hól- inn, var sýnin horfin. Ég hljóp upp á hólinn og leit yfir mýrina vest- an við hann, en sá þar ekki neitt, en mýrin milli DiTksnesholts og hólsins, sem ég stóð á, var svo breið, að fljótasti hestur hefði ekki haft tíma til að komast yfir hana og í hvarf. Legsteinninn. Það mun svo hafa verið árið 1923. Kona í nágrenninu, Guðlaug Björnsdóttir á Móa, lá mikið veik, og höfðum við í Lækjarnesi verið beðnir að annast flutning á henni á vélbátnum Auðuni rauða út á Höfn, en þaðan átti að flytja hana með skipi til Reykjavíkur. Dagur- inn var ákveðinn, og ég var beðinn að fara á smábátnum Dverg eftir flóðkíl upp að Brekku, en þangað átti að flytja konuna í rúmi. Ég var kominn á ákvörðunarstað á til- teknum tíma, en ekkert bólaði á mönnunum með sjúklinginn. Mér tók að l'eiðast biðin þarna, óg lagði ég af stað upp úr sandi og gekk alla leið inn að Laxárbrú. Þar staðnæmdist ég á háum_ hól, sem er austan við brúna. Ég horfði þaðan upp með ánni, heim að bæn- um Móa, en sé þar ekkert nema hesta á túninu. Ég lít svo niður með ánni aftur og niður að kirkj- unni. Þá sé ég, að legsteinn s'tend- ur á milli kirkjugarðsgirðingarinn- ar og þjóðvegarins Mér verður hálfhverft við þessa sýn, sem ég átti ekki von á þarna. Svo verður mér litið út á veg- inn og sé þá, hvar menn eru á ferð með sjúklinginn í rúmi Þeg- ar ég lít til baka, er sýnin horf- in. Ég sneri þá við að bátnum, en 496 f iu 1 IM N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.