Tíminn Sunnudagsblað - 06.07.1969, Side 3

Tíminn Sunnudagsblað - 06.07.1969, Side 3
rfMINN — SUNNUDAGSBLAÐ Þetta varkára dýr á sér varla aðra óvini en hlébarðana og veiðimenn- ina í frumskóginum. En það er líka hugrakkt og ver sig. Jafnvel hié- börðum stendur stuggur af aftur- fótum ókapans. Dýrið er ákaflega hreiniegt. Það baðar sig á hverjum morgni. Tung- an er furðulega löng, og hana not- ar það baeði ti) þess að þrifa sig og seilast eftir laufblöðum á greinum trjánna. Víða eru ókapar í dýragörðum. Ókapinn Esayo var fluttur f flug- vél til Kaupmannahafnar. Hann var óheppinn með veður. Yfir Alpafjöll umim var slíkt þrumuveður, að Veíta varð í 4000 metra hæð. Langt inni í frumskógum Kóngó eru heimkynni hins fágaeta dýrs, ókapans, ættingja gíraffategundar einn- ar, sem dó út fyrir þúsundum ára. Ókapi er viðlíka stór og hestur. Hvítir menn vissu fyrst um tilveru hans fyrir áttatíu árum. Landkönnuðurinn Stanley og Harry Johnson, landstjóri I Uganda, höfðu spurnir af því, að inni í frumsógunum væru stór og einkennileg dýr. Svertingjar fræddu þá um þetta. Nokkrum árum síðar fann Svíinn Karl Eiríksson leifar af dauðum ókapa. Karl E-iríksson öðlaðist frúnað smávaxinna blökkumanna, sem i skógunum bjuggu. Þeir hjálpuðu honum að grafa leynigryfjur. Einu sinni er þeir komu að vitja slíkr. ar gryfju, stökk hlébarði upp ú> henni. Niðri í gryfjunni lá dýr, sem hlé- barðinn var búinn að vinna á. Þetta var dýrið, sem hann hafði verið að leita að. Hann kom skrokknum f hendur vísindamönnum, sem sáu Ijótt, að þetta var skógargfraffi. Ókapinn minnir að sumu leyti á sebradýr, því að fætur eru rönd- óttir, en höfuð hans og vaxtarlag minnir á gíraffa. Hin svarta dverg- þjóð í frumskógunum veiddi ókapa sér til matar. Kjötið er Ijúffengt.

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.