Tíminn Sunnudagsblað - 02.11.1969, Page 3

Tíminn Sunnudagsblað - 02.11.1969, Page 3
 Lakinn, sem Svíar kalia, er af kyni þorskfiska, en þrífst þó í ósöltu vatni. Hann er breiðmynntur og út- eygður og ekki nettfríSur. En hann er góSur matfisk- ur. Hann er veiddur með sérkennilegum hætti. Það er gert á nýium, giærum ís, og vatnsdýpið má ekki vera meira en einn metri. Tréhamar er notaður við veiðina. ísinn er brotinn með honum, þegar fiskurinn syndir ná- lægt isnum, Við það lamast hann í bili. *4~- > - Fiskurinn leitar til hrygningar á staksteinóttum leirbotni. Hrygnan sýnir hængnum Ijósan kvið sinn. Hængurinn syndir undir hana, og fiskarnir gæla hvor við annan með uggunum. Þeir synda þannig i hringi, fast hvor við annan, hraðar og hraðar. Allt í einu byltir hængurinn sér á bakið, og sviljar hans blandast hrognum hrygn- unnar. Þetta er margendurtekið. Þannig geta fiskarnir haldið áfram í allt að fjórar klukkustundir sam- fleytt. í hrognunum er ofurlítill lýsisdropi sem veldur þvi, að þau sökkva ekki alveg til botns. ■ ^ '■;_ ■ ■ Hrognin klekjast út á fjórum til fimm vikum, og seiðið leitar á grynnra vatn og felur sig við steina. Ársgsmalt flytur það sig á meira dýfi Þessi fiskur getur lifað á hundrað metra dýpi á sumrin. Það eru gömlu flskarnir sem kjósa mest dýpi. Oft verða þeir blindir og afla sér fæðu um nætur. Þetta fiskakyn lifir t. d. í fjallavötn um Svíþjóðar jafnvel allt að þúsund metra yfir sjárarmál, Þegar Lappar veiða það, fleygja þeir fiskinum ævinlega. Simm1 T I M I N N SUNNUDAGSBLAÐ 867

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.