Tíminn Sunnudagsblað - 02.11.1969, Side 19
Tröllatunga. Ljósmynd: Páll Jónsson.
og Elínar barnsmóður hans, átti
hann Guðmund, er síðar varð
bóndi í Arnkötludal. Guðmundur
var tvikvæntur og átti börn með
báðum konum sínum, sem voru al-
systur. Meðal barna hans var Guð
jón bóndi í Arnkötludal, síðar i
Reykjavík. Sigrún seinni kona -Tóns
Guðmundssonar frá KjörvogL
Karl á Valshamri í Geiradal og
Guðrún, kona Óskars Arinbjarnar-
sonar á Eyri í Gufudalssveit.
Fjórða og seinasta barn Sæ-
mundar utan hjónabands var Krist
mundur, sem flutti til Vesturheims
25 ára að aldrj um 1880, ókvænt
ur og barnlaus. Móðir hans var
Anna Einarsdóttir frá Gýögri, Guð-
mundssonar prests í Árnesí.
Bjarnasonar. Þótt ekki snerti það
afkomendur Sæmundar Björnsson-
ar má nefna það sem aukagetu,
að dóttir Önnu og Mikaels Guð-
mundssonar var Guðrún, kona
Magnúsar Kristjánssonar bónda á
Hafnarhólmi. Áttu þau fjölda
barna, en mörg þeirra munu hafa
dáið í bernsku.
VII. Guðrún Björnsdóttir (f.
1802, d. 1874). Hún giftist Grimi
Jónssyni hreppstjóra á Kirkjubóii
í Tungusveit. Einkabarn þeirra var
Valgerður, er átti Benedikt Jónsson
frá Kleifum í Gilsfirði. Þau bjuggu
á Kirkjubóli um 20 ára skeið, unz
Benedikt andaðist 1884, tæplega
hálfsextugur að aldri. Benedikt var
merkismaður, vel metinn og vin-
sæll. Ilreppstjóri og varaþingmað-
ur um hríð, en sat aldrei á þingi.
Börn hans og Valgerðar voru þrjú
Eitt þeirra var. Grímur, er bóndi
var ó Kirkjubóli um fjóra tugi ára.
VIII. Einar Björnsson (f. 1803,
d. 1860). Hann ólst ekki upp hiá
foreldrum sínum, og dó ókvæntur
og barnlaus.
IX. Herdís Björnsdóttir (f. 1804
d. 1865). Hún átti Tómas Jónsson
frá Kirkjubóli og var seinni kona
hans. Þau bjuggu á Smáhömrum,
Kirkjubóli og síðast á Broddanesi.
Nær þau létu af búskap fluttust
þau inn að Þóroddsstöðum i Hrúta-
firði og munu hafa andazt þar.
Börn þ irra voru fjögur. Guðný,
kona G iðmundar Sakaríassonar,
síðast b.rida í Þorpum. Jón, bóndi
á Kollsá í Hrútafirði. Valgerður,
kona Daníels Jónssonar hrepp-
stjora á Þóroddsstöðum og séra
Brandur, prestur á Prestsbakka í
Hrútafirði og síðar á Ásum í Skaft-
árþingi. Meðal barna sr. Brands
voru Tómas, lengi verzlunar- og
kaupmaður á Hólmavík og séra
Jón, prófastur á Kollafjarðarnesi.
X. Finnbogi Björnsson (f. 1806.
d. 1862). Hann bjó í Heiðarbæ i
Miðdal og var kvæntur Guðrúnu
Jónsdóttur, ættaðri úr Reykhóia
sveit. Böm þeirra voni tvö, sem ti!
aldurs komust, Björn og Ingveld-
ur. Björn bjó í Heiðarbæ eftir föð
ur sinn, nema tvö síðustu æviár
sín í Hólum í Staðardal. Hann átti
fyrir konu Þórunni Jónsdóttur frá
Miðdalsgröf. Þeirra börn voru þrjú:
Guðrún, sem fyrr var nefnd í sam
bandi við gamanvísur Valdimars
frænda hennar. Finnbogi, bóndi i
Miðhúsuim í KoMafirði og Ingibjörg,
seinni kona Kristjáns Kristjáns
sonar, sem ættaður var af Snæ
felisnesi. Þau Ingibjörg áttu ekki
börn saman, en áður eignaðist hún
tvo syni, sinn með hvorum manni.
Ingveldur Finnbogadóttir, giftist
Þorkeli Jónssyni frá Miðdalv: of.
en hann var bróðir Þórunnai inag
konu hennar. Þorkell og Jqn bróð-
ir hans voru báðir orðlagðir söng-
menn á sinni tíð, og getur sr.
Bjarni Þorsteinsson Þorkéls í þjóð
lagasafni sínu, eftir heimild frá
Finni fræðimanni Jónssyni á Kjör^
eyri. Þeir bræður voru dóttursyr-
ir sr. Sölva prests í Flugumýrar-
þingum, Þorkelssonar stiftprófasis
883
TlMlNN - SUNNUDAGSBLAÐ