Tíminn Sunnudagsblað - 21.12.1969, Síða 11

Tíminn Sunnudagsblað - 21.12.1969, Síða 11
Nei, nei. . . Er ég úti í skóginum aftur? Heyri ég ekíki þjóta í gerðinu? PIví rápa ég hér um? . . . Hví er ég ekki hjá (mönnunum, sem þreyja og þreyja . . . En þeir skilja mig bara ekki! Og hví skyldu þeir skilja mig, sem aðeins er fullur örvæntingar og kvalar? Hví skyldu þeir trúa á mig, sem friðiaus rei'ka um í myr'krinu? Ekki get ég frelsað þá! . . . Það er ekki ég, ekki ég! Jú, frelsari þeirra er öll sú angist og neyð, sem þeir ekki skilja. Hann er eins og fugl, sem kveinar í loftinu hátt yfir höfði þeirra. Þeir heyra kvein hans þar uppi, en telja það ekki koma sér við, því að hann flýgur svo hátt. Ekki fyrr en hann fellur dauður og blæðandi til jarðar skilja þeir hann. Þá fyrst mega þeir til að trúa. Krossfestið hann! Krossfestið hann! Já, ég vil, að mér sé fórnað, ég vil, að mér sé fórnað! Fyrir mitt blóð skulu þeir endur- leysast, fyrir mitt fátæka blóð! . . . Brátt, brátt mun það ske . . . Sofið vært, öll þið litlu blóm hér í myrkrinu, öll engin og öll trén, allir menn í heiminum. Frið- ur sé með þér, kæra jörð! Ég mun endurleysa þig. Ég vaki yfir þér í myrkrinu. öll angist þín er mín. Þú skalt ekki þjást, ekki kvíða neinu. Ég mun láta líf mitt fyrir þig. En hve það er dimmt hér í skóg- inum .. . Geng ég á gömlu laufi... Það heyrist ekkert, þegar ég stíg niður . . . Mörg blóm og lauf falla til jarðar nú í haust, og það er svo mjúkt undif trjánum, dimmt og mjúkt . . . Það lyktar eins og mold . . . Er kirkjuiklukkan að slá inni í bænum . . . Eitt. tvö . . Æ, ég e,r svo " þreyttur, svo þreyttur . . ég vil fara heim. Nú má ég líklega fara heim og hvílast, leggjast niður um stund . . . Þeir eru líklega farnir að undr- ast um mig. Nú er ég liklega bominn út á veginn, hér er allt í for. . . það rigndi víst í gær . . .skelfing er hvasst... Nei, klukkan slær og slær! Það dunar í loftinu. Hvað er þetta? Þetta hljómar válega . . . Það eru margar klufckur, þær klingja og dynja eins og þær ræru að boða hinn efsta dag! . . . Hvað er þetta! — Ég verð að hlauþa! Það brennur! Það brennur! Log- arnir teygja sig upp, himinninn er blóðrauður. Það er borgin, sem brennur. Það er veröldin, sem brennur, — sem er að farast! Ó, Guð, ég verð að frelsa þá! Ég verð að frelsa þá! Þeir vonast eftir mér — kemur hann ekki, fcemur hann ekfci? Já, ég hleyp, ég hleyp! Ég er að koma til að frelsa þá. Það er forin, sem ég festist í, en ég hleyp! Himinn og jörð er að brenna! Allt er að falla saman! Eins og eldhaf! Ég verð að frelsa þá, ég verð að frelsa þá! Hjarta mitt, lát þig ekfci verkja svona . . . kæra hjarta, lát þig ekki verkja svona, þá get ég ekki hlaupið, get ekki andað . . . Og ég verð að frelsa þá! Þú veizt lík- lega, að ég verð að frelsa þá! Aðeins eitt eldhaf! Og stormur- inn hvín. Himinninn þýtur logandi yfir heiminn og kveifcir í honum! Nú, nú eru aðrir komnir á hlið við mig. Þeir hraða sér í sömu átt og ég hleyp. Heimurinn er að far- ast, hrópa ég ti'l þeirra. Æ, svara þeir, það er bara fátækra- heimilið. Já, já, það er fátækraiheimilið! Allir vesalings fátæklingarnir — þá hungrar og þynstir, því að þeir mega ekki að trúa, nú brenna þeir inni! Nú farast þeir! Aðeins ég get frelsað þá! Hjarta mitt, lát kvölina svía, nú erum við brátt á leiðarenda, brátt, brátt .. . Logarnir teygja úr sér, reykinn leggur um götuna, ég finn hitann . . . Nú er ég kominn. Forstöðumaðurinn og fjöldi fólks er hér kominn. Ég verð að frelsa þá, ég verð að frelsa þá! æpi ég. Hér er engu að bjarga, hrópa þeir, og ganga í veg fyrir mig. Ég stekk inn i eldinn. Hitinn er sð kæfa mig . . . Nei,. ég fell ekki niður, frelsari þeirra fellur ekki niður. Ég aðeins reika til að byrja með . . . 'þreifa mig áfram . . . gegn um forstofuna . . . inn í stof- una Hér er allt tómt . . Þeir eru uppi . •. Reykurinn er að kæfa mig í stig. anum . . . Nei, nei, ég fell ekk' niður. . . . Ég verð að frelsa þá ..' alla . alla ! Hvar eru þeir? Ég þreifa mig áfram sem í leiðslu . . reykjarmökkurinn er kafþykkur . . . logarnir teygja fram álkuna . . ég reika um . . . Hvað eru þeir? Gamalmennið Enok, sem er ósjálfbjarga . . . og Anton, sem er lamaður á fótum . . . og gamla Kristín, sem er alveg út úr heim- inum . . . og Samúel . . . og Man- freð. Ég finn þau ekki. Ég skríð eftir gólfinu . . . log- arnir teygja sig eftir mér . . . það dynur alls staðar í kringum mig . . . það dunar . . . þýtur . Hvar eru þeir? . . Þeir eru víst ekki hér . . bara ég .. . bara ég . .. Það brennur! Brennur! Bjálkarn ir falla einn af öðrum, logunum skýtur upp hvarvetna . . . Ég hleyp nú um. Hvar eru þeir . . . hvar eru þeir . . . allt fátæka fólk- ið? Ég finn þau bara ekki . . þau eru ekki hér . . . Bara eldur og auðn . . . bara ég . . bara ég ó, hjarta mitt — ert það þú, sem brennur? Ef til vill ert það bara þú? Ég finn, hvernig þú eyð- ir líkama mínum, brjósti mínu, lim um mínum, þar til ekkert verður eftir nema þú! Já, eyddu hpnum, eyddu honum! Ég vil aðeins vera þú, aðeins þú, hjartað, sem hungr- ar og þyrstir, aðeins þú, eldurinn, sem uppbrennir mig! Ekkert annað . . .ekkert annað .. . bara þú .. . Nei, nú stenzt ég ekki . . .ekki meir . . .því er lokið Já, já, ég læt fallast niður . . því er lok- ið . . .lokið... Ó, guð, fyrirgef mér, að ég finn ekki þá, sem mér bar að frelsa . . . ég finn þá efcki . . . Fyrirgef, hjarta, sem brennur . . . af ein- skærri fórnarlöngun . . . að rnega deyja . . . að mega deyja .. . Já, ég finn, að þú fyrirgefur mér . . . þú fyrirgefur því hjarta, sem brennur fyrir þig . . . það elskar þú . . . já, það elskar þú . það lætur þú eyðast . . eyðast . því gefur þú frið . . frið . Krossfestið hann! Krossfestið hann! Atli Magnússon þýddi. rÍMINN SUNNUDAGSBLAÐ 1019

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.