Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 21.12.1969, Qupperneq 18

Tíminn Sunnudagsblað - 21.12.1969, Qupperneq 18
Skipreika landkönnuSir á hafís með báta slna á hundasleðirm. skýlum æðarfugls, er ekki geta verið handaverk Eskimóa. Sé þetta rétt ályktað, hafa þeir kom izt norður fyrir Lancastersund, sem er hliðið að svonefndri norð- vesturleið. En allt er þetta myrkr- um hulið og veit enginn þá sögu, er á bak við kann að búa. En óumdeilanlegt er, að langt norður með Grænlandi brutust norrænir menn. Á sextándu öld gerðist Englend- ingum sér í lagi hugleikið að kom- ast skipaleið norðan Ameríku til Kyrrahafs. Þá leið hugðust menn flytja gull og kryddvöru frá Aust- urlöndum, og því voru Englend- ingai- þar fremstir í flokki, að þeir höfðu með vaxandi öfund fengið að reyna, hvernig Spánverj- ar, sem urðu ríkari og ríkari með hverjum áratug, heftu siglingar við suðurodda Suður-Ameríku, og grannþjóð þeirra nálega jafnvold- ug, Portúgalar, hindraði skipaferð- ir við Góðrarvonarhöfða á svipað- an hátt. Skammt var umliðið síðan Vest urálfa fannst á ný. Hún var Elísa- betu Englandsdrottningu ekkert sérstakt keppikefli, heldur miklu fremur torfæra, er sneiða varð hjá. Auðvitað vissu allir, sem nasa- sjón höfðu af höfunum vestan Grænlands, að harla torfært myndi að brjótast á skjpi norður fyrir Ameríku. En svo mikils þótti um það vert að finna nýja sigl- ingaleið til hinna ríku Austur- Ianda, að enginn háski.gat hald- ið aftur af mönnum. Hver leiðang- urinn hélt af stað af öðrum. Nöfn foringjánna er-u enn munntöm: Frobisher, Davis, Hudson og Baff ín. Þeir voru allir uppi um 1600. Frobisher komst ekki lengra én í vík á þá Baffínslandi, sem enn er við hann kennd, en hinir cnáðu lengra, og eru löh'd og hafsvæði eftir þeim héitin. En engu var nær en áður, að norðvesturleiðin opn- aðist mönnum. Samtímamaður þessara sægarpa var Jens Munk, danskur maður, sem tilraun gerði til þess að finna og kanna norðvesturleiðina. í bók hans, Navigatio Septentrionalis, segir af því, að hann varð að hafa vetursetu, þar sem nú er hveiti- útflutningshöfnin Churohill við Hudsonflóa. Með annað tveggja skipa sinna og tvo menn Efs af förunautum sínum komst hann um síðir til Kaupmannahafnar. Þess vegna auðnaðist honum að verða foringi flotadeildar á Norðursjó í þrjátíu ára stríðinu. Enginn maður hafði enn kom- izt norðvesturleiðina í Napóleons- styrjöldunum í byrjun nítjánd-u ald ar. í enska sjóliðinu, sem vann sigur, þó ekki sérlega hetjulegan á danska flotanum í Kaupmanna- höfn árið 1801, var maður að nafni Jón Franklín, þá fimmtán eða sextán ára gamall. Fjórum ár- um seinna tók hann einnig þátt í Trafalgar-orrustunni. Þegar Napóleon hafði verið yfir- .unninn, var fátt um verkefni handa enska flotanum, ægilegustu stríðsmaktinni í veröldinni á þeim dögum. Þá kom upp á ný sú hug- imynd að gera út fræga flotafor- ingja til þess að kanna ísaslóðir vestan Grænlands og við Ameríku. Norðvesturleiðin komst á dagskrá á ný. Menn gerðu sér raunar fulla grein fyrir því, að ekki hafði það lengur neina hagnýta þýðingu, þótt 1026 TfMINN SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.