Tíminn Sunnudagsblað - 21.12.1969, Side 19

Tíminn Sunnudagsblað - 21.12.1969, Side 19
þeim tækist að brjótast í gegn um ísinn vestur til Kyrrahafs. Vara frá Kína og Indlandi yrði aldrei flutt þá leið. En dýrð Englands var mikil, og þar var fæd'd sú kona, sem mest varð drottning í heimi. Vísindaáhugi blossaði upp, og mynduð voru ríkismannafélög, sem höfðu það markmið að styðja landkönnun. Og nú var ráðizt í mikla leiðangra. Jón Franklín var árum saman við landkönnun í Norður-Kanada og skrifaði marg- ar bækur um þau efni. Þó varð hlé á um skeið, og árið 1835 var hann skipaður landstjóri á Tas- maníu í Ástralíu. Þar var hann í átta ár. En þegar hann kom aftur heim til 'Englands, var hann út- nefndur foringi leiðangurs, sem finna átti norðvesturleiðina. Hvítabtrnir kanna vistirnar í birgðastöð landkönnuða á norðurslóðum. Áður en þetta gerðist höfðu menn gert tilraun til þess að kom- ast þessa leið vestan frá, inn í gegn um Beringssund, og síðan austur með. Austan frá hafði sjó- liðsforingi einn, Parry, fundið Lan- castersund, en orðið að hafa vetur- setu í svonefndri Vetrarhöfn á Mel villeey. Og nú var komið árið 1845, er Jón Franklín, maður kominn fast að sextugu, lét úr enskri höfn á tveim seglskipum, Erebus og Terror, þeirra erinda að brjótast þá leið, sem Parry hafði ekki kom- izt. En leiðangur þessi varð ekki nein sigurför. Hvorugt skipanna kom aftur, og enginn, sem á þeim var, leit framar hin hlýju lönd Skipin sáust síðast í Mellvilleflóa. Þetta var mjög fjölmennur leið- angur, og hvarf skipanna og áhafna þeirra þótti mikil tíðindi. Á árunum 1847—1850 voru gerðir út margir leilarleiðangrar, bæði af enska ríkinu og eiginkonu Jóns Franklíns. Árið 1850 fundust bæki stöðvar og hlutir ýmsir, sem leið- angursmenn höfðu haft með sér. Þar hafði Jón Franklin hafzt við veturinn 1845—1846. Árið 1854 flutti landkönnuður einn, Jón Rae, þær fregnir, að stór hópur hvítra manna hefði farizt norður í íshelj- unni vorið 1850. Enska stjórnin hætti þá öllum eftirgrennslunum, en kona Jóns Franklíns, sem lifði allt fram á árið 1875, neitaði að trúa því, að maður hennar hefði Fyrir nokkrum árum fundu vísindamenn leifar svaneölu í fljótsbakka á Patreksey. Þær voru tíu til tólf metra langar og liföu fyrir hundrað og fimmtíu milljónum éra. Menn hafa gert sér stað. hætti í heimkynnum svan- eðlunnar í hugarlund eins og myndin sýnir. T I M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ 1027

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.