Tíminn Sunnudagsblað - 21.12.1969, Blaðsíða 20

Tíminn Sunnudagsblað - 21.12.1969, Blaðsíða 20
Jóhannes Mölíer: Bréf ævintýraskálds- ins, H.C. Andersens farizt. Hún hæddi og svívirti flota- málastjórnina, og 1 stað sorgarbún- ingsins, sem menn væntu að sjá hana í, klæddist hún jafnan eins og hún væri að fara á gleðifund. Hún brauzt í því að leit væri hald- ið áfram og gerði enn út leiðangur árin 1857—1859. McClintock hét sá, sem þeirri för stýrði, og skip- ið Fox. Hann komst að þvi, að skipin bæði höfðu orðið föst í ís norðan við Vilhjálmsland árið 1846. 11. júní 1847 dó Jón Frank- lín, og árið 1848 yfirgáfu leiðang- arsmenn skipin og héldu suður á bóginn. Allur hópurinn fórst. Sum ir dóu úr skyrbjúg, en hinir síð- ustu dóu úr hungri eða fórust með öðrum hætti, er þeir voru að reyna að brjótast til einnar út- stöðvar Hudsonflóafélagsins. Þetta var mikil fórn á altari vís- indanna. En leitarleiðangrarnir, sem áratugum saman reyndu að grafa upp, hver orðið höfðu örlög þessara horfnu manna, öfluðu mik- iliar vitneskju um þetta svæði og gerðu uppdrætti af löndum og höf- um, sem menn kunnu harla lítil skil á áður eða alls engin. Árið 1866 var Jóni Frankiín reist minnismerki á Waterlótorgi í Lundúnum, og dánarár sitt setti kona hans honum annað minnis- nierki í Westminster Abbey. Örlög Jóns Franklíns og manna hans rifjuðust enn upp við nýja fundi og nýja vitneskju á nýrri öld, og verður sú saga ekki rakin hér. En á hitt verður að drepa, að loks gerðist það árið 1906, að full- hugum tókst að brjótast þessa geig- vænlegu ísaleið allt vestur um Ber- ingssund til Kyrrahafs. Kappi sá, sem þeirri för stýrði, var Norð maðurinn Hróaldur Ámundason, er svo var tíðum nefndur í hér- lendum biöðum á þeirri tíð. Far- kostur hans var stórum svipminni en skip þau, sem flotamálastjórn Englendinga lagði enskum fiotafor ingjum til — aðeins smáskúta, sem hét Gjöa. Hann hafði þriggja ára útivist. □ 1028 H.C. Andersen var ákaflega dug legur rithöfundur. Auk ævintýr- anna, sem náð hafa heimsfrægð, samdi hann margar skáldsögur, nokkrar ferðalýsingar, fjölda leik- rita, sem náðu venjulega litlum vinsældum. Þar ofan 1 kaupið var hann iðinn og ákaflega skemmti- legur bréfritari. og það eru þessi síðustu ummæli, sem ég ætla að reyna að sanna yður í dag. Þegar í byrjun þriðja áratugs nítjándu aldarinnar var hann tek- inn inn á heimili Collins-fjölskyld- unnar, og langflest þeirra bréfa, sem ég vitna í að þessu sinni, eru tii Collins-fólksins. Þarna var „fað irinn“, eins og Andersen kailar hann oftast, gamli Collin. Það var hann, sem frelsað hafði Andersen frá beiskum ósigri með því að út- vega honum styrk frá konungi, og það var hann, sem langflestir ilsta- menn gátu þakkað þá aðstoð, sem þeir fengu frá tinvaldanum. Svo var það elzta dóttirin, Ingeborg, sem beitti alveg sérstakri fram- komu gagnvart Andersen. Hún stríddi honum sí og æ, og hann, sem annars var svo viðkvæmur, var hæstáoægður með þessa stríðni hennar. í einu bréfinu seg- ir hann, að einn morgun heyrði hann hestasvein hrópa: „Stá, dit bæst! til sin hest.“ Og þá hefði sér óðara komið Ingeborg í hug. Þessu líkur hefur þá tónninn ver- ið, sem ríkti milli þeirra. Og svo var það Edvard, hann varð vinur Andersens alla ævi, svolítið smáborgaralegur, skynsam ur, kænn, en kaldlyndari en And- ersen gæti við það unað. En vin- ir voru þeir, og það olli Ander- sen djúpum sársauka, að þeir urðu aldrei þubræður. Loks var fyrsta eiginkona Ed- vards, hin indæla Jette. Flest eru bréfin til þessara þriggja persóna, í dálitið mismunandi tón, eftir því til hvers þessara þriggja bréfin ©ru stíluð. Þó er tilætlunin sú, að’ þau þekki öll efni þeirra. H.C. Andersen hlaut Evrópu- frægð löngu áður en Kaupmanna- höfn viðurkenndi hann. Og rnörg bréfanna utan úr hinum stóra heimi, sem hann ferðaðist mikið um, fjalla um það, að þar er hann viðurkenndur. Collins-fólkið á að komast að raun um, að það hef- ur ekki sóað góðverkum sínurn á mann, sem var þeirra ekki verð- ugur. Sjálfum geðjaðist honum illa að Heiberg og Hertz, en Coll- ins-fólkið mat þá mjög mikils. Loks verð ég að koma á framfæri þeirri athugasemd, að Andersen, sem var mesti fullhugi, þegar um var að ræða verulegar hættur, gat orðið beinlínis yfirkominn af ang- ist við smámuni, svo sem rispu eða smábölu, sem hann klæjaði í, ellegar óverulegt hundsbit. Og síðan snúum við okkur að bréfunum. Hann skrifar Edvard Collin frá Róm 26. april 1846: í átta daga hef ég verið mjög þjáður af kýli á . . . .fyrirgefið. Ég gat varla gengið eða setið. Loks í gærkvöldi, þegar eini danski læknirxhn okkar hér, Uldall, var hér, skar hann í kýlið og þá leið líka yfir mig. Nú veit ég, hvernig það er, þegar maður verður á vegi tígrisdýrs í eyðimörk og það ríf- ur af honum rassinn. í dag varð ég undrandi, þegar ég leit í blaðið Allgemeine Zeit- ung, þar sem talað var um páska- hátíðahöidin og hina mörgu út- lendinga i Róm. Þar var fjallað um þrjá þessara manna einungis, og einn þeirra var ég, ég, hinn ómerkilegi vinur yðar, sem þér voruð of tiginn til að þúa — hér áður fyrr. Já, þegar ég verð ein- hvern tírna etazráð og eignast son, þá á liann líka að neita, þegar hann Jónas yðar viil þúa hann, þar sem þér eruð enn bara júsisráð. Þetta er nú meira bullið, en bull þarf lífca að vera í góðu bréfi. Frá London 27. júní 1847: Kæri vinur! — Þér sjáið bréf- TtUINN — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.