Tíminn Sunnudagsblað - 19.04.1970, Blaðsíða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 19.04.1970, Blaðsíða 13
dál. Éig man það, að við uiðum beylausk oig urðum við að fá hey hrjá nágrönnunum og bera það síð- an á bakinu milli bæja. Þá var efcki hægt að grípa til fóðurbætis til þess að drýgja heyin eins og nú er gert. Árið 1913 kvæntist ég svo Guð- rúnu Stefánsdóttur og fór óg þá í húsmenmsiku, var lengst af á Stóru-Borg í Víðidal. — Og hvernig var húsmennsk- an? — Þann tíma tel ég mig hafa átt einna vérsta ævi, þótt ég væri hamingjusamur með konu og börn um. Húsmennska var hvorki bú- skapur né vinnumennska, heldur einhvers staðar mitt á milli. Maður fékk að vera þarna og fékk úrkast af slægjum. Það varð enginn rík- ur á húsmennskunni, drengur minh. — Það hef'ur verið erfitt með alla aðdrætti? — Jú, jú. Til dæmis get ég sagt frá því, þegar ég fór með Tryggva Guðmundssyni, sem bjó á hálfri Stóru-Borg, til Hvamms- tanga frostaveturinn milda 1913. Þá var það orðið fastur siður að hafa ekki meiri kaupstaðarvöru heima en sem mundi endast til áramóta, en aftur flutt heim dð vetri til, enda oft greið leið að fara ísana með sleða. Þá voru ekki komnir akfærir vegir. Við fórum af stað í góðu veðri, og okkur gekk vel til Hvammstanga. Við tófcum vöruna og hióðum henni á sleðana, en gistum svo á Hvammstanga um nóttina. Um morguninn var komin sunnan- rigning og hláka. Við fórum af stað og gefck ferðin sæmiiega, þangað til við vorum komnir rúm- iega hólfa leið. Þar var á leið okk- ar brekika, sem við treystum ekki hesíunum til að draga ækin upp, svo að við selfl'uttum sleðana með því að setja tvo hesta fyrir hvorn sleða. Þetta gekk vel, og leyfðum við hest'unum síðan að blása mæð- inni. En e kki höfðum við beðið lengi, er Tryggvi varð svo vei'kur, að hann var með háhljóðum. Ég viidi fara með hann heim á næsta bæ, einkum vegna þess að veður- útlit hafði ljókkað og ég bjóst við, að það skylli á stórhrið, þegar minnst varði. En hann tók efcki annað í mál en haldið væri áfram, sagðist treysta mér til þess að koma sér hei.m. Svo lagði ég af stað út í hríðarkólguna, sem aíls staðar lagðist í kringum okkur. Sleðafærið var gott, og ég fór eins hratt og hægt var. Eftir dá- litla stund var komin stórhrið, og mér leizt illa á þetta ferðalag með vei'kan mann, og við báðir renn- andi blautir. Þó gekk allt þetta undarlega vel, og þegar ég var kom inn þá leið, sem hægt var að koma sleðum með góðu móti, tók ég hest- ana frá og lét Tryggva á bak öðr- um og teymdi undir honum heim, þar sem hann fékk góða aðhlynn- ingu. Nokfcru sei.nna fór Tryggvi til Reykjavífcur til lækninga. Hann var skorinn upp og dó á skurðar- borðinu. Tryggvi var greindur mað- ur og einn af heztu mönnum, sem ég hef kynnzt. — Fórstu fleiri svipaðar ferðir? — Iðulega var ég beðinn um að sækja héraðslæfcninn á Hvam.ns- ttnfca, þegar veikindi voru. Einu sinni var ég beðinn að sæfcia lækni vegna drengs, sem veiktist. Þetta var rétt fyrir jólin, og það var komið til mín seint um kvöld og ég beðinn um þetta. Ég lagði strax af stað, og mér gekk ágæt- lega til Hvammstanga — það var þetta þriggja klukkustunda reið þangað. Ég fór beint til læknisins og vildi fá hann með mér strax um nóttina, en hann. vildi það e'kki — sagðist mundu fara með mér um morguninn. Um morguninn lögð um við svo af stað, en þá var kominn norðan-stórhríð, og vorum við tíu klukkustundir á leiðinni. Svo þegar við komum að Sigríðar- stöðum — en þaðan var drengnr- inn — var ekfcert að barninu. — Svo það hefur verið mikil fyrirhöfn, en litið erindi? % T 4 M I N N — SUNNUDAGSBLAD 301

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.