Tíminn Sunnudagsblað - 19.04.1970, Blaðsíða 17

Tíminn Sunnudagsblað - 19.04.1970, Blaðsíða 17
Margrét FriBriksdóttir og Þórhallur Björnsson, Uan vorið flutti iiann til Kópaskers. Tveim árum síðar gekk hann að eiga Rannveigu Gunnarsdóttur frá Skógum. Gg ári síðar eða svo var innréttuð ibúð og skrifstofa í að alhúsi félagsins, en ný búð byggð skammt frá. Heimsstyrjöldinni fyrri var lokið, en mjög-mikil ó- vissa ríikjandi í viðskiptamálum. ís lenzkar afurðir stigu mjög í verði, svo menn fengu alt í einu fuilar hendur fjár. En útsogið lét þá ekki á sér standa. Að ári iiðnu varð verðhrun á innlendum afurðum og mikil harðindi komu í ofanálag, svo bændur þurftu að kaupa ó- grynni fóðurbætis. Sló það illa í baksegl. Innstæður þurrkuðust út og skuldasöfnun hófst. Tvennt koni til hjálpar á Kópa skeri. Tekizt hafði að vinna mark- að fyrir kjöt þaðan, í Reykjavík, en þar gætti verðfalls síðar, og lögð hafði verið áherzla á að afla sem mestrar erlendrar vöru, svo af henni voru miklar birgðir, er hún tók að stíga í verði. Segja má, að héV hafi heppni verið með. En annað kom einnig til — það er hyggindi, aðgæzla, einstök árvekni forstjórans, sem aldrei svaf á verði. Hér mátti kenna einkenni hins íslenzika, fyrirhyggjusama bónda, sem rís árla úr rekkju, gá ir til veðurs og tekur ákvarðanir eftir útliti, sér um að hver heim- ilismanna geri skyldu sína og dreg ur sízt af sjálfum sér — getur svo að kvöldi fagnað því, að öllu var til skila haldið. Segja má, að þess ara einkenna hins vitra og fram- sýna foriugja hafi gætt allt starfs tknabil beggja þessara feðga til anargfaldrar uppbyggingar fyrir stað og hérað og hagnaðar, sem ekki verður tölurn talinn fyrir hvern einstakling. Lengi var við mikla erfiðleika að etja millistriðs árin, en reynt var að láta haldast í hendur hófsamlega uppbyggingu og þó viðhöfð ráðdeild og spar- semi, en kyrrstaða aldrei látin leggjast yfir sem sligandi farg. Saga félagsins liggur fyrir skráð að mestu í tíð Björns og verður e'kki rakin hér — þess aðeins aninnzt, að fyrir frumkvæði Björns er ráðizt í að byggja þarna frysti hús, vegna hrynjandi saltfiskmark aðar, á undan flestum öðrum kaupfélögum. Eftir brunann niikla á skrifstofu og íbúðarhúsi var ný búð og skrifstofa reist, ásamt gisti- húsi, og setur sú bygging glæsi legan svip á stað og umhverfi o.g stendur skammt frá höfn. Félagið rak einnig útibú á Raufarhöfn, og þar fór margs konar uppbygging fram. Sá þáttur verður hér ekki rakinn, enda viðfangsefnið hér vöxtur Kópaskers fyrst og fremst. Þess skal aðeius getið, að er tim ar liðu, var útibúið gert að sér- stöku kaupfélagi. Árið 1947 tekur Þórhallur við kaupfélagsstjórn, en hafði áður unnið við félagið um langt árabil. Saga hans sem forstjóra er enn óskráð, en öll hin merkasta. Gætir á því tímabili mikilla umsvifa og framfara, jafnframt því sem fjár hagur félagsins eflist, svo sérstaka athygli vekur. Hér verður aðeins drepið á nokkur atriði, sem ekfci sízt snerta vöxt og uppbyggingu staðarins og um leið félagsins í hans tíð. Þórhallur fæddist á Víkingavatni 9. janúar 1910. Hann var átján óra gagnfræðingur frá Akureyri, stundaði síðan nám 1 samvismu- skólanpm, gerðist starfsmaður hjá vSambandi íslenzkra samviflnufélaga i Kaupmannahöfn, síðan í Reykja vík, var verkstjóri við fyrirtæki Sambandsins í Reykjavík um ^keið, á sfcrifstofu hjá Kaupfélagi Eyfirð inga á Akureyri tvö ár, slðan skrifstofumaður á Kópaskeri. Hann er kvæntur Margréti Friðrika dóttur frá Efri-Hólum. Með því að starfa hjá stsérstu fyrirtækjum samvinnunnar hér og erlendis hefur hann fengið gott yfirlit yfir rekstur stórfyrirtækia, séð með eigin augum strauminn, þar sem hann var þyngstur í verzl un og viðskiptalífi, og hversu mik- ils virði það er að vera vel vak andi á því sviði og geta á skjótan hátt tekið ákvarðanir. En sem stjórnarnefndarmaöur kynntist ég því oft, hversu fljótur hann var að koma auga á ýnisar nýjungar, sem orðið gætu félaginu og heiid Snnd'hólar, hús Þórhalls og Margrétar. TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 305

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.